Fréttablaðið - 30.05.2009, Side 48

Fréttablaðið - 30.05.2009, Side 48
● heimili&hönnun H eimilisiðnaðarsafnið á Blöndu-ósi hefur endurútgefið bókina Vefnaður eftir Halldóru Bjarnadóttur og verður hún kynnt á samsýningu þriggja listakvenna sem hefst í safninu 1. júní og ber heitið Hring eftir hring. „Vefnaðarbók Halldóru er sígilt rit fyrir alla þá sem vilja afla sér traustr- ar undirstöðuþekkingar á vefnaði og tóvinnu á Íslandi,“ segir í tilkynningu en í henni er fjallað um vefnað á ís- lenskum heimilum á 19. öld og fyrri hluta 20. aldar. Með endurútgáfu bókarinnar vona útgefendur að komið sé til móts við þá fjölmörgu sem leita slíkra fanga. -ve Undirstöðurit Vefnaðarbók Halldóru er sígilt rit. MYND/ÚR EINKASAFNI LISTRÆNT OG LITRÍKT LEIRTAU Samstarf danska hönnuðarins Louise Campbell og hins hefð- bundna borðbúnaðarfyrirtækis Royal Copenhagen gat af sér sérstakt, litríkt en umfram allt skemmti- legt leirtau. Louise fékk frjálsar hendur við skreytingar Elements-borðbúnaðar frá Royal Copenhagen. Hún notaði diska úr lituðu postulíni og vann hvern og einn á sérstakan máta. Hönnuðurinn sjálfur segist fátt vita fallegra en litríkt matarborð sem lítur út fyrir að litum hafi verið blandað saman eða sullað á. Hún segir hollt fyrir alla að láta tilviljanir stöku sinnum ráða för, meira að segja sé það hönn- uðum hollt. Það gefi oftar en ekki af sér fallegra munstur en það sem skipulagt er út í æsar. Litríkt og leikandi unglingaherberbergi. MYND/BETTER HOMES B arna- og unglingaherbergi mega oft við því að skarta litum og skrauti enda ekki verra ef herbergið geislar af gleði sem smitar jafnvel út frá sér. Í þessu orkumikla herbergi eru doppur í aðalhlutverki. Einfalt er að líma doppur á veggina og þá má taka þær niður þegar hentar. Einn- ig er mikið til af boxum og skraut- munum ýmiss konar með doppóttu mynstri og gaman er að hengja upp minnistöflu með kringlóttum segl- um. Þá má líma saman kringlóttar glasamottur og hitaplatta sem nýst geta sem minnistöflur og festa miða á með teiknibólum. - hs Litríkar doppur 30. MAÍ 2009 LAUGARDAGUR4

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.