Fréttablaðið - 30.05.2009, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 30.05.2009, Blaðsíða 18
18 30. maí 2009 LAUGARDAGUR HULDA GUNNLAUGSDÓTTIR Hulda segir að á Íslandi séu styttri biðlistar og minni biðtími en víðast hvar á Norðurlöndunum. Hún ætli að koma Landspítalanum í hóp fimm bestu sjúkrahúsa Norðurlanda, á næstu fimm árum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON H vernig var að koma heim eftir tuttugu ára feril í Noregi og semja við lækna og stjórnmálamenn hér? Hver er mun- urinn á kerfunum? Sjúkrahús eru allstaðar svipuð og sérstaklega er hugmyndafræð- in lík á Norðurlöndum. En það sem er ólíkt er að á Íslandi menntar fólk sig úti um allt og sérstaklega í Bandaríkjunum, hvort sem það er í Alaska eða Kaliforníu. Í Noregi er þetta samræmdara því fólkið er allt þjálfað innan sama kerfis. Kosturinn við íslenska kerfið er sá að þetta er fjölbreytilegt, en ókosturinn er sá að kúltúrinn getur verið gjörólíkur, jafnvel innan sömu stofnunar. Þetta er fólk með sömu þekkingu en mismunandi bakgrunn og hefðir. Stjórnsýslan er svo enn ólíkari. Hér er stjórnsýslan einfald- ari að því leytinu til að maður getur nálgast fólk á fornafninu fyrr. En hún er mjög lítið öguð. Það vantar meiri strúktúr og aga í heilbrigðis- málin. Þú sóttir um starfið í bláenda góðærisins og bjóst líklega ekki við því að þurfa að skera niður um næstum þrjá milljarða í ár og reka fólk. Langar þig ekki heim aftur? Nei. Maður tekur við verkefni og gerir sitt besta. En það sem er erf- iðast er að sjá á bak nýs háskóla- sjúkrahúss, ef sú verður raunin. Við erum komin á það stig að við getum ekki sagt að við höfum eina bestu heilbrigðisþjónustu í heimi, nema við hugum að þessu máli. Húsnæð- ið sinnir ekki sínu hlutverki, ekki fyrir öryggi sjúklinga, starfsmanna eða út frá hagræði. Landspítalinn er á 21 stað núna og það kostar sitt. Þú hefur kynnt millileið um að byggja við núverandi húsnæði á Hringbraut, sem kostar 51 milljarð. Hvar fæst fé til þess? „Ef við skoðum þetta í ljósi núver- andi ástands, þá eigum við einn milljarð á fjárlögum til að fara í hönnunarsamkeppni og þá myndu skapast hundrað störf fyrir arki- tekta og verkfræðinga. Á meðan mætti nota tímann til að finna fjár- magn. Við gætum byrjað vorið 2011, þegar Tónlistarhúsið er tilbú- ið. […] Heilbrigðisráðherra er mjög jákvæður gagnvart þessu. Slæmir kjarasamningar 2,7 milljarðar eru ekkert smáræði til að spara á einu ári. Hvað ertu búin að reka marga og hvað eiga margir eftir að fara? Það eru ekki margir. Við erum með 5.100 starfsmenn. Við sett- um okkur markmið um þrennt: að halda uppi þjónustustigi, það er hversu marga við meðhöndlum og gæði þjónustunnar. Síðan ætluðum við að reyna að komast hjá uppsögn- um en við erum með 69 á lista sem þurfa að hætta í ár. Þeir eru ekki allir farnir enn. Að lokum ætlum við að standa við kjarasamninga, það er engin spurning. Annað væri líka lögbrot. Já, en það er ýmislegt sem fólk gerir í svona ástandi! Leiðin sem við förum er að draga úr yfirvinnu með skipulagsbreytingum. Í stað dag- vinnu og mikillar yfirvinnu tökum við upp vaktafyrirkomulag og svo framvegis. Auðvitað eru ekki allir ánægðir með þetta, en við gerum þetta í díalóg við starfsfólkið. Kjaraskerðingin er mikil hjá sumum og það er vegna þess að kjarasamningarnir eru svo léleg- ir. Nú tala ég hreint út. Á Íslandi tekur fólk allt með yfirvinnunni. Ef fókusinn hefði verið á að fólk ætti að lifa á dagvinnu, þá hefðu kjara- samningar verið betri. En þetta var ekki gert af því Íslendingar eru svo viljugir til að vinna og fólk hugsaði ekki um þetta í góðærinu. En á móti höfum við dæmis hækkað fólk um launaþrep eða -flokka í staðinn. Hagræðir áður en hún rukkar En meiri kostnaðarþátttaka sjúk- linga? Margir segðu að það væri eina vitið. Þetta er ein leið sem þarf að skoða, en fyrst þurfum við að hafa stefnumörkun, svo við getum for- gangsraðað. Á meðan við forgangs- röðum ekki vitum við ekki í hvað peningarnir fara. Við þurfum að skilgreina hvað við eigum við með góðu heilbrigðiskerfi. Við erum til dæmis með slysa- og læknavakt sem þekkist ekki ann- ars staðar í heimi, nema fólk komi í bílum með blikkandi ljós, eða sé búið að fara á læknavakt. En við tökum fólkið beint inn í dýrasta hluta kerfisins. Að fara að krefjast meiri kostnað- arþátttöku frá sjúklingum, án þess að vita hvað við ætlum að nota pen- ingana í, er auðveld leið til að gera ekki óþægilegu hlutina. Ég er ekki á móti sjúklingagjaldi sem slíku, en mér finnst of auðvelt að setja bara gjöld og halda áfram að gera eins og við höfum alltaf gert. Hvernig stöndum við í þjón- ustu miðað við Norðmenn, þar er algengur biðtími eftir aðgerðum víst þrír mánuðir? Við höfum miðað mikið við bið- lista hér á landi, og ég vil breyta því. Sjúklingi er alveg sama hvort hann er númer hundrað eða tíu á biðlista, svo framarlega sem hann fær bestu faglegu meðferðina. Ef biðtíminn er innan við viku þá skiptir engu máli þó ég sé númer hundrað. Það er til litteratúr sem skilgreinir ásættanlegan biðtíma án þess að hann komi niður á lífs- líkum eða lífsgæðum. Þessi stuðull er notaður opinskátt í Noregi. En við höfum ekkert notað hann til að forgangsraða. En Ísland er miklu betra að mörgu leyti. Við höfum nán- ast enga biðlista lengur og erum langt fyrir innan flest ásættan- leg mörk, miðað við Noreg. Hér er styttri biðtími í flestar aðgerð- ir og meðhöndlun en víðast á Norðurlöndum. Við getum tekið dæmi um krabbamein í ristli. Gæðastuðull- inn í Noregi segir að svona aðgerð þurfi ekki að gerast fyrr en eftir fjórar vikur. Hér komumst við í aðgerð innan viku til tíu daga. Í hóp fimm bestu sjúkrahúsa Ég las eftir þér haft að hér væri réttur sjúklinga lítill því hér væri lítil samkeppni. Þarf meiri sam- keppni? Mér finnst að það eigi að vera samkeppni. Það er í mannskepn- unni að vilja vera betri og mæla sig við aðra. Við erum bara 315.000 og með eitt háskólasjúkrahús. Ég hef það markmið að við ætlum að verða eitt af fimm bestu sjúkra- húsum á Norðurlöndum innan fimm ára. Við ætlum í samkeppni við þau. Við getum ekki sagt að við höfum bara einn spítala hér og engan til að bera okkur saman við. Við verðum að finna eitthvert viðmið og við ætlum að komast að því hvað einkennir þá bestu og hvernig við getum orðið þannig. Þú þarft að skera niður um 2,7 milljarða og árið er hálfnað. Getur þú nefnt mér einhverja þjónustu sem minnkar? Nei. Engin þjónusta minnkar. Ég skal vera sú fyrsta sem segir það opinberlega ef eitthvað þarf að leggja niður. En ég veit að við getum gert hlutina á annan hátt. En ég get ekki sagt að í lok ársins verðum við ekki búin að segja upp fólki. En þjónustu til sjúklinga ætla ég að verja á þessu ári. Talaðu við mig aftur 2010 og 2011, ég veit ekki hvað þetta verður erfitt þá. En 2009 mun ég ekki skerða hana, ef eitt- hvað er, verður hún betri. Tekur ekki ábyrgð á krónunni Hvaða áhrif hafa gengissveiflur á rekstur spítalans? Gengisáhrifin hafa gífurleg áhrif á okkur. Lyfjakostnaður getur auk- ist um tuttugu prósent milli mán- aða. Af þrjú hundruð milljónum í rekstrarhalla eru fimmtíu prósent vegna gengisins. Við erum svo háð innflutningi, til dæmis lyfja. En það er hlutverk ríkisstjórnar- innar að ákveða hvernig hún tekur á þessu. Ég fæ fjárhagsáætlun og allt sem gerist eftir það, fall krónu til dæmis, er ekki á mína ábyrgð. Það er á herðum ríkisstjórnarinnar. Það hefur verið kvartað undan því reglulega að ekki sé auglýst í lausar stöður á spítalanum. Í vik- unni kom upp svona mál. Hverju sætir þetta? Ég veit að spítalinn hefur lengi verið gagnrýndur fyrir þetta og þess vegna verðum við að vera afar varkár. Ég geri einungis það sem ég hef leyfi til að gera. En þetta sem var fjallað um í vik- unni var misskilningur. Ef þetta hefði verið ný staða þá hefði ég auðvitað auglýst hana. En ég er alls ekki viss um að þetta verði ný staða. Við þurfum að fá hjálp við að styrkja almannatengsl og gagn- sæi í stjórn spítalans. Ég athugaði með ráðgjafastofur en það kostar mikla peninga. Svo í stað þess að auglýsa stöðu sem ég var ekki viss um hvort yrði til, ákvað ég að fá reyndan mann til sex mánaða og ekki meir. Þannig sparast tími og peningar. Ég skil vel að það veki athygli, en ef þetta verður síðar að stöðu þá verður hún að sjálfsögðu auglýst. Við förum eftir reglum. Of auðvelt að rukka bara meira Hulda Gunnlaugsdóttir hefur verið forstjóri Landspítalans síðan í október. Hún telur aukna kostnaðarþátttöku sjúklinga í sam- drættinum vera of auðvelda lausn. Betra sé að endurskipuleggja. Stjórnsýsla heilbrigðiskerfisins sé fjölbreytt en ekki nógu öguð. Í samtali við Klemens Ólaf Þrastarson ætlar hún ekki að skerða þjónustuna neitt, en skera niður um 2,7 milljarða. Lenti sjálf í hlutverki sjúklings Hulda tók við starfi forstjóra í október síðastliðnum. Hún starfaði áður sem forstjóri Aker-háskólasjúkrahússins í Noregi, bar þar ábyrgð á 3.500 starfsmönnum og veltu upp á fjóra milljarða norskra króna. Hún ólst upp í Kópavogi og lærði hjúkrun við Hjúkrunarskóla Íslands. Hún útskrifaðist þaðan 1981. Þá lærði hún stjórnun við sama skóla og varð hjúkrunarforstjóri á Kristnes- spítala í Eyjafirði. Síðan hélt Hulda til Noregs. Hún er gift Norðmanni, Lars Erik Flatø, sem er forstjóri sjúkrahúss í Ósló og eiga þau til samans fjögur börn. Dóttirin er hjá henni, tveir drengir eru í Noregi, en einn í Bagdad að vinna fyrir bandarísku utanríkisþjónustuna. En Hulda var ekki búin að starfa lengi á Landspítala þegar hún þurfti sjálf að fara í einfalda skurðaðgerð. Hún ákvað að fara í hana í jólafríinu sínu í Noregi. Þá þyrfti hún ekki að vera frá vinnu nema í nokkra daga og gæti verið með fjölskyldunni á sama tíma. „En hagsýnin varð mér ekki í hag, ég fékk svæsna sýkingu og var lögð inn aftur. Ég lá inni í tíu daga aukalega og var frá í einn og hálfan mánuð,“ segir hún. „En þetta getur gerst á öllum sjúkrahúsum. Ég hef alltaf sagt að það er hættulegt að vera á sjúkra- húsi. Mannleg mistök geta orðið frá því þú gengur inn um dyrnar. Fólk heldur að það sé alveg öruggt á sjúkrahúsi en þú ert hvergi nokkurs staðar hundrað prósent öruggur. Það á að halda fólki fyrir utan spítala eins lengi og hægt er.“ HULDA OG TINNA DÓTTIR HENNAR Tinna ákvað nýlega að koma til móður sinnar, en nánasta fjölskylda Huldu er annars erlendis. Ef fókusinn hefði verið á að fólk ætti að lifa á dagvinnu, þá hefðu kjarasamningar verið betri. En þetta var ekki gert af því Íslendingar eru svo viljugir til að vinna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.