Fréttablaðið - 30.05.2009, Blaðsíða 34
● heimili&hönnun
S umir kastalar eru teiknaðir af Disney, aðrir eru úðaðir
af brasilískum götugengjum.
Það var þó ekki í leyfisleysi
sem brasilískir götulistamenn
hresstu upp á fornan skoskan
kastala, heldur voru það eig-
endur Kelburn-kastala í Skot-
landi sem fengu þá til að mála
turna og spírur í glaðlegum
litum.
Eins og sjá má er brasilískt
graff litríkt og líflegt. Það lýsir
upp skosku sveitasæluna með
skærum litum. - sg
Litríkur kastali
í Skotlandi
Kelburn kastali er einn sá elsti í
Skotlandi.
Nýtt víkur smám saman fyrir
notuðu á íslenskum kaffi- og veit-
ingahúsum, þar sem tekkhill-
ur og gömul bollastell leysa nú
innréttingar í háglans af hólmi.
Efnahagsástandið setur strik
í reikninginn en eigendur og
rekstraraðilar þriggja nýlegra
kaffi- og veitingahúsa vilja meina
að fortíðarþrá ráði för.
„Við hugsuðum staðinn sem
mótvægi við þetta steríla veit-
ingahúsaumhverfi í Reykjavík.
Leituðumst því við að hafa hann
hlýlegan og heimilislegan með
skírskotunum í sögulega atburði
í íslensku samfélagi; búsáhalda-
byltingin var eiginlega kveikjan
að honum,“ segir Aðalsteinn Sig-
urðsson, hjá Íslenska barnum. Þar
fengu menn fengu vini og vanda-
menn til að hjálpa til við að inn-
rétta allt með notuðum munum.
Í sama streng taka Sonja Grant,
annar eigenda Kaffismiðjunnar á
Íslandi, og Methúsalem Þórisson,
annar eigenda Kaffi Haiti. Sonja
segir ekki annað hafa komið til
greina en að innrétta með ein-
hverju notuðu. „Við vildum hverfa
aftur í tímann. Leggja frekar
áherslu á gæðakaffi en nýtískuleg-
ar innréttingar. Þess vegna tæmd-
um við stofurnar, okkar eigin og
hjá vinum og ættingjum.“ Met-
húsalem og kona hans, Elda Þór-
isson Faurelien, nýttu hins vegar
innréttingar frá veisluþjónustu
sem var áður í húsinu með góðri
útkomu.
Öll eru sammála um að tími
nútímalegs stíls sé liðinn. Að
minnsta kosti í bili. Heimilislegt
sé það sem fólk kjósi nú.
- rve
Horfið aftur til betri tíma
Notuð húsgögn eru að verða sífellt meira áberandi í kaffi- og veitingahúsum í Reykjavík. Fréttablaðið tók eigendur þriggja
slíkra staða tali, sem segja að annað hafi ekki komið til greina en að innrétta þá með gömlum mublum.
„Ég held að þetta sé góð viðbót við
það öfluga samfélag sem hér er orðið
til,” segir Metúsalem um Kaffi Haiti.
Á Kaffi Haiti létu eigendurnir hagsýni
ráða för og nýttu í staðinn mublur úr
veisluþjónustu sem var áður í húsinu.
Eigendur Kaffismiðjunnar, Sonja Grant
og Ingibjörg Sigurðardóttir, hressar.
Í Kaffismiðjunni er ljúffengt kaffið borið
fram í kaffistellum frá ömmu og afa.
„Hugmyndin var að fanga stemninguna í
þjóðfélaginu áður fyrr,“ segir Aðalsteinn
um Íslenska barinn.
Á Kaffi Haiti er framandi kaffi í boði.
● Forsíðumynd: Valgarður Gísla-
son Útgáfufélag: 365 miðlar ehf.,
Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, s. 512
5000 Ritstjórar: Roald Eyvindsson
roald@frettabladid.is og Sólveig
Gísladóttir solveig@frettabladid.is
Auglýsingar:
Hlynur Þór
Steingrímsson
s. 512 5439
Útlitshönn-
uður: Kristín
Agnarsdóttir
kristina@fretta-
bladid.is.
maí 2009
fjölskyldan
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FJÖLSKYLDUNA ]
Margir þekkja gæludýr af eigin raun
og geta jafnvel ekki hugsað sér lífið án
þeirra. Aðrir velta fyrir
sér hvað sé svona
frábært við þau.
Við fengum þrjár
fjölskyldur til
að leiða okkur í
allan sannleika
um það.
Þær fjölskyldur sem rætt var við eiga að vísu töluvert fleiri gælu-dýr en gengur og gerist en hafa jafnframt af þeim mikla og góða
reynslu. Allir voru sammála um að gildi
gæludýra í uppeldi barna væri dýrmætt
og að af þeim megi læra ýmislegt um
lífið og tilveruna.
Fjörugt heimilislíf
Stella Sif Gísladóttir býr á líflegu
heimili með manni sínum, Ragnari
Geirdal, fósturdótturinni Sigríði
Ólafíu Ragnarsdóttur, sem kölluð
er Sól, og þremur hundum, ketti,
tveimur páfagaukum og fullt af fisk-
um. „Við erum með sjávarfiskabúr
en maðurinn minn vinnur við umhirðu
svona búra. Ég starfa sem hundasnyrt-
ir í Dýraríkinu þannig að hundarnir eru
lítið mál en ég á þrjá hunda. Tíkin er hins
vegar í einangrun núna en hún er sama
tegund og þessi stóri,“ segir Stella og við-
urkennir að vissulega taki sinn tíma að
sinna öllum þessum dýrum.
Stóri hundurinn, Imbir Bezy Bezy, og
tíkin Íla eru af frönsku fjárhundakyni
sem kallast Briard en Imbir var fluttur
inn frá Póllandi og Íla frá Svíþjóð. Ein-
ungis eru nítján slíkir á landinu. „Litli
hundurinn heitir Tom Cruise og er af
shihtzu-tegund. Kötturinn er blanda af
norskum skógarketti og persa og heit-
ir Mjása en fuglarnir eru gárar og sá
sem er á myndinni heitir Púki,“ útskýrir
Stella.
Kötturinn hefur lengst búið á heimil-
inu og fylgdi Ragnari. „Mjása er orðin
ellefu ára en við Ragnar höfum bæði
alist upp við að eiga gæludýr. Því var
nokkuð ljóst að dóttir okkar myndi líka
alast upp við það. Hún er eiginlega meiri
dýramanneskja en við bæði til samans og
þá er mikið sagt,“ segir Stella og hlær
góðlátlega.
Ekki er sjálfgefið að hundar, kettir,
fiskar og fuglar lifi í sátt og samlyndi
en á heimili Stellu og fjölskyldu neyðast
dýrin til að láta sér vel lynda. „Þau eru
vön hvert öðru. Fuglarnir fljúga stund-
um um heima og kötturinn hefur engan
áhuga á þeim, henni var kennt það frá
FRAMHALD Á SÍÐU 4
Stella Sif og Ragnar áttu
bæði gæludýr þegar þau
voru að alast upp og nú
nýtur hin 10 ára Sól þess
að búa nánast í dýragarði.
Jóga fyrir börn
Öðruvísi sumarnámskeið í
Önundarfirði. SÍÐA 7
Lautarferðir
Leynistaðir fyrir lautarferðir
á höfuðborgarsvæðinu.
SÍÐA 6
Kenna okkur margt um lífið
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
ÍS
LE
N
SK
A
/S
IA
.I
S
/N
AT
4
40
74
1
0/
08
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/V
A
LL
I
30. MAÍ 2009 LAUGARDAGUR2