Fréttablaðið - 30.05.2009, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 30.05.2009, Blaðsíða 10
 30. maí 2009 LAUGARDAGUR Grunnnám málmiðngreina er grunnur að bjartri framtíð og faglegri undirstöðumenntun fyrir: Blikksmíði• Rennismíði• Stálsmíði• Vélvirkjun• Véltækniskólinn býður nýtt og áhugavert nám að loknum grunnskóla. Grunnnám þar sem fléttast saman vélstjórnarnám og málmiðnir. Fagfólk vantar Atvinnulífið þarf vel menntað starfsfólk. Menntaðu þig til starfa framtíðarinnar. Skráning í grunndeild málmiðna stendur til 11. júní. Nánari upplýsingar á www.tskoli.is. í málm- og véltækni FRÉTTAVIÐTAL: Skýrsla um árangur íslenskrar kynningarhátíðar í Brussel Góðar niðurstöður umfangs- mikils markaðsverkefnis í Brussel gefa ágætar vonir fyrir íslenskar listir, ferða- þjónustu og afurðir, sem og orðstír landsins á erlendum vettvangi. Að sögn Höllu Hrundar Logadóttur, verk- efnisstjóra hátíðarinnar, er líklegt að áhrifa verkefnis- ins eiga eftir að gæta enn frekar þegar fram í sækir. Íslandshátíðin Iceland on the Edge er eitt stærsta kynningarverkefni af sinni tegund sem Ísland hefur haldið á erlendum vettvangi. Til- urð verkefnisins má rekja til þess að eftir að hafa orðið vart við mik- inn áhuga á Íslandi, ákvað sendi- ráð Íslands í Brussel, sem er undir stjórn Stefáns Hauks Jóhannesson- ar sendiherra, að kanna hvort fýsi- legt væri að halda kynningarverk- efni um Ísland í borginni. Í ljós kom að mikill áhugi var á slíku verkefni af hálfu heimamanna, til dæmis sýndu tvær lykilmenningar- stofnanir í Brussel, menningar- miðstöðin Bozar og tónlistarhús- ið Ancienne Belgique, áhuga á að taka rækilega þátt í fjármögnun og framkvæmd þess. Í kjölfarið leitaði sendiráðið til fjölmargra íslenskra aðila um samstarf, þar á meðal ráðuneyta, Reykjavíkur- borgar, Ferðamálastofu, Útflutn- ingsráðs, Landsbankans, Ice- landair og fleiri, svo úr varð kynningarverkefni sem náði yfir um 10 mánuði frá 2007 til 2008. „Brussel er að mörgu leyti heppilegur staður fyrir verkefni af þessu tagi,“ segir Halla Hrund Logadóttir, einn af frumkvöðlum og síðan verkefnisstjóri Íslands- hátíðarinnar, sem hefur nú tekið saman ítarlega skýrslu þar sem gerð er tilraun til að leggja mat á árangur hátíðarinnar. „Brussel er alþjóðlegur suðupottur; þarna hafa mörg sendiráð, alþjóðastofnanir, félagasamtök og fyrirtæki aðset- ur. Þetta er því afar alþjóðlegur vettvangur sem einkaaðilar og önnur ríki hafa nýtt sér í miklum mæli til að koma sér á framfæri. Borgin hefur það líka fram yfir margar aðrar borgir að hún telur ekki nema um eina milljón manns; mergðin er því ekki slík að við týn- umst í fjöldanum. Þannig að þetta er góður markhópur á góðu svæði fyrir Ísland.“ Tvískipt verkefni Verkefnið var tvískipt: annars vegar 10 mánaða markaðsherferð og hins vegar fimm mánaða hátíð frá árslokum 2007 fram í júní 2008. Íslenskar listir og menning voru meginstoð hátíðarinnar, sem fól í sér 35 menningarviðburði og sýningar, auk 10 til 15 viðburða á sviði ferða-, ráðstefnu-, orkumála og viðskipta. Menningardagskráin spannaði allt frá sýningu á verkum íslenskra nútímalistamanna til Ice- land Airwaves tónleikakvölda. Þá var viðskiptasendinefnd íslenskra hönnuða send út af örkinni auk þess sem haldin var ráðstefna um Ísland og orkumál og ýmsa ferða- málatengda viðburði. „Markmið verkefnisins var að efla ímynd Íslands á alþjóðavett- vangi, þekkingu á þeim sviðum sem það tók til og efla tengsl, til dæmis fyrir listamenn,“ segir Halla Hrund. Að hátíðinni og markaðsher- ferðinni lokinni tók við það yfir- gripsmikla verkefni að leggja mat á hvernig verkefnið hafi tekist. „Við skoðuðum tölulegar upplýs- Stoðir Íslands − menning, HALLA HRUND LOGADÓTTIR Segir árangur verkefnisins sýna að áhugi umheimsins á Íslandi sprettur ekki af sjálfu sér. Hún telur þó að skilningur stjórnvalda á mikilvægi markviss kynningarstarfs sé sífellt að aukast. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.