Fréttablaðið - 30.05.2009, Blaðsíða 35
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
Reykjavíkurmótið í hestaíþrótt-
um er haldið dagana fyrir og um
hvítasunnuhelgina. Sylvía Sigur-
björnsdóttir verður því harla upp-
tekin enda komin í úrslit í meist-
araflokki í fjórgangi á hestinum
Þóri frá Hólum auk þess sem hún
keppir í fleiri greinum.
„Það er mikil yfirlega sem fylg-
ir svona móti enda er þetta eins
konar uppskera þess sem maður
hefur verið að gera í vetur,“ segir
Sylvía. Hún var í námi á fyrsta
ári á hestabraut við Háskólann á
Hólum í vetur og stefnir ótrauð á að
halda áfram og útskrifast sem reið-
kennari. „Mér líður mjög vel fyrir
norðan, enda frábært að gera akk-
úrat það sem maður hefur ástríðu
fyrir,“ segir Sylvía og bætir við að
á Hólum sé skemmtilegt og sam-
heldið samfélag.
Sylvía er fimmta inn í úrslit-
in í fjórgangi sem haldin verða
á mánudag. Hún er bjartsýn á að
geta unnið sig upp. „Ég hef fulla
trú á því ef allt gengur upp,“ segir
hún jákvæð en bætir við að Þórir
sé ungur hestur sem sé enn að slíp-
ast til. „Hann er aðeins sjö vetra
og ég hef þjálfað hann í tvo vetur,“
segir Sylvía. Og er hún stoltur eig-
andi? „Nei, því miður. Mamma og
pabbi eiga hann, en ég er heppin að
fá að hafa hann,“ segir Sylvía, sem
er dóttir hins þjóðþekkta hesta-
manns, Sigurbjörns Bárðarsonar.
Þar sem úrslitin eru á mánudag
fer helgin í að þjálfa Þóri ásamt
öðrum hrossum sem Sylvía hefur
á sínum snærum. „Ég reyni að
haga þjálfuninni þannig að hest-
urinn sé í góðu líkamlegu og and-
legu ástandi og sé tilbúinn í átök-
in,“ segir Sylvía og telur mikilvægt
að samspilið milli knapa og hests
sé gott.
Sylvía verður þó ekki alla helg-
ina á hestbaki. Hluti tímans fer í
að sitja í brekkunni og horfa á aðra
keppa. „Maður verður að halda sér
upplýstum um dóma og keppend-
ur,“ segir Sylvía. Innt eftir því hvað
sé skemmtilegast að horfa á svarar
hún: „Það er alltaf skemmtilegt að
horfa á flott par, flottan hest sem
er flott riðinn, hvort sem það er í
barnaflokki eða meistaraflokki. En
sú grein sem er mest spennandi að
fylgjast með á úrslitadegi er oftast
tölt í meistaraflokki.“
Blaðamaður hefur oft heyrt af
skemmtanagleði hestamanna. Verð-
ur eitthvað slíkt á boðstólum? „Það
eru oft haldin bjórkvöld eða aðrar
skemmtanir í tengslum við hesta-
mót en ég tek lítinn þátt í þeim,“
segir Sylvía enda drekkur hún ekki
áfengi. „Svo verður maður að vera
með hugann við keppnina ef maður
ætlar að gera vel,“ segir hún og
ætlar að vera skynsöm og fara að
sofa á skikkanlegum tíma svo hún
verði klár í átökin á mánudag.
solveig@frettabladid.is
Undirbýr átök úrslitanna
Sylvía Sigurbjörnsdóttir hestakona gerir fátt annað um hvítasunnuna en að hugsa um, horfa á og keppa
á hestum enda stendur Reykjavíkurmótið í hestaíþróttum yfir og Sylvía er komin í úrslit.
Sylvía Sigurbjörnsdóttir með hestinn Ísak frá Oddhóli en hún tekur ásamt fjölda annarra hestamanna þátt í Reykjavíkurmótinu í
hestaíþróttum sem fram fer um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
HARMÓNIKUHLJÓMSVEIT æsku Bæjaralands leikur á tón-
leikum í Guðríðarkirkju í Grafarholti laugardaginn 30. maí klukkan
17 og í Hömrum á Ísafirði þriðjudaginn 2. júní klukkan 20. Áhersla
verður lögð á að leika nútímatónlist, sérsamda tónlist fyrir harmón-
ikuhljómsveit, umritanir klassískra verka og þýskra höfunda.
NÝ
SEN
DIN
G
Áður 19.900
Nú 9.900
Stærðir 10-24
2 týpur
Litur: svart
Sölustaðir.: Járn og Gler hf - Garðheimar - Húsasmiðjan, Skútuvogi
www.weber.is
Weber Summit
Tilboðsdagar
Dagana 30 mai til 5 júní færðu
Weber Summit S450 og S650 á verði
sem kemur aldrei til með að sjást aftur.
Afsláttur allt að 85.900 kr.
- mikið úrval af aukahlutum
Bergmál – opið hús!
Nýtt hús Bergmáls, líknar- og vinafélags
að Sólheimum í Grímsnesi verður til sýnis
sunnudaginn 31. maí milli kl. 13,00 og 17,00.
Allir hjartanlega velkomnir.
Stjórnin
líknar og vinafélag