Fréttablaðið - 30.05.2009, Blaðsíða 26
26 30. maí 2009 LAUGARDAGUR
leiðtoga er að öllu leyti einkafram-
tak sem kostaði þau mikla vinnu og
fjármuni.
Óvíst hvað gerist þegar Dalai Lama
fellur frá
„Það sem er svo merkilegt við Dalai
Lama er umburðarlyndi hans gagnvart
öðrum trúarbrögðum og þjóðerni, vilji
hans til friðar og áhugi hans á vísind-
um. Hann er sérlega opinn fyrir vís-
indalegum rannsóknum á andlegum
málefnum og hlynntur því að þróanir í
vísindalegum rannsóknum og andleg-
um fræðum verði að mætast einhvers
staðar á miðri leið í stað þess að þró-
ast hvort í sína áttina.“ Þórhalla segir
Dalai Lama vera afskaplega „spont-
ant“ mann og mikinn mannvin. „Hann
hlær lengi og djúpt og tekur gjarnan
utan um hendur fólks og heldur þeim
lengi. Í hvert skipti sem hann sér mig
hrópar hann „Ísland!“ og kætist mjög.
Hann nýtur þess að vera meðal fólks-
ins og er besti vinur sérhvers manns.“
En hvað gerist þegar Dalai Lama fell-
ur frá? Og hvernig mun frelsisbar-
átta Tíbeta þróast við andlát hans?
„Panchen Lama hefur það hlutverk að
leiða leitina að hinum nýja Dalai Lama,
en Panchen lama hvarf sporlaust árið
2001 þegar hann var sex ára gamall.
Kínverjar komu með annan pilt í hans
stað sem þeir halda fram að sé hinn
rétti Panchen. Það er því erfitt að segja
til um hvað gerist. Þegar Dalai Lama
er sjálfur spurður út í hvað gerist í
framtíðinni þá segir hann aðeins að
hann heiti því að koma aftur á jörðina
til þess að hjálpa mannkyninu, hvort
sem hann verður aftur Dalai Lama
eða einhver annar. Það er ótrúleg upp-
lifun að sitja fyrir framan mann sem
lofar manni af mikilli fullvissu að hann
muni snúa aftur.“
Upplýsingar um komu Dalai Lama
til Íslands ásamt áhugaverðum tengl-
um eru á www.dalailama.is
Þ
að er frábært að eitt pró-
sent þjóðarinnar mun
hlýða á Dalai Lama í
Laugardalshöllinni á
þriðjudaginn og það lítur
út fyrir að annað prósent
Íslendinga hafi viljað koma,“ segir Þór-
halla Björnsdóttir, en ljóst er að upp-
selt er á fyrirlestur hins andlega leið-
toga á Íslandi. „En það er svo sem ekki
skrýtið að hann fylli húsið því það er
alltaf uppselt hvar sem hann kennir.
Koma hans verður vonandi góð fyrir
þjóðina og líka vegna þess að þá fáum
við eitthvað jákvætt í fréttirnar í stað
niðurdrepandi frétta sem tröllríða öllu
um þessar mundir.“ Fyrirlesturinn er
klukkan þrjú á þriðjudaginn og stendur
yfir í að minnsta kosti einn og hálfan
tíma. Spurð um hvort erfitt sé að skilja
ensku hans á fyrirlestrinum segir Þór-
halla að mikilvægt sé að hlusta ekki
aðeins með eyrunum. „Hann er með
hreim og fólki finnst misjafnlega erf-
itt að skilja hann. En hann er ekki endi-
lega að segja eitthvað allt annað en svo
margir aðrir. Það sem er svo einstakt
er að hlutirnir sem hann segir koma
frá svo miklu dýpi og frá svo miklum
óendanlegum skilningi að það er best
að reyna að slaka á, leyfa sér að njóta
andrúmsloftsins og leyfa skilningnum
að koma.“
Ferðaðist landleiðina til Indlands
Þórhalla segist alltaf hafa gengið með
þá hugmynd í maganum að fara til
Indlands. „Alveg frá barnæsku lang-
aði mig að fara þangað, það var næst-
um eins og ég væri að sækja í eitthvað
sem ég hafði þekkt áður og ég get jafn-
vel lýst þessu sem heimþrá. Ég var þó
orðin tuttugu og fimm ára þegar ég
loksins fór til Indlands en þá hafði ég
safnað fyrir ferðinni í mjög langan
tíma.“ Þórhalla segist í raun hafa haft
mjög takmarkaða þekkingu á búddisma
eða austrænum fræðum enda hafi lítið
farið fyrir slíkum hlutum á Íslandi á
þessum tíma. „Það var dálítið skondið
að á þessum tíma voru peysur úr lama-
ull mikið í tísku og það eina sem ég hélt
að ég vissi um „lama“ á þessum tíma
var að þeir væru að búa til þessar peys-
ur uppi í háfjöllunum!“ Í rauninni voru
svo litlar upplýsingar um þessi mál á
þessum tíma að það eina sem ég vissi
var að ég var að leita að svörum sem ég
fann ekki í þeim menningarheim sem
ég þekkti. Ég hélt reyndar frekar að ég
væri að leita að hindúisma en eins og
ég segi þá snerist þetta allt saman um
að komast til Indlands. Þarna var ég,
sumsé, tuttugu og fimm ára gömul árið
1975 og fór landleiðina til Indlands. Ég
leitaði mér að ferðafélögum í Istanbúl
og fann þar tvo Breta og síðar einn
Þjóðverja sem deildu ferðakostnaðin-
um með mér. Við fórum mjög krókótta
leið upp að Himalayafjöllin en ég hafði
hugsað mér að skoða Afganistan, Íran
og Pakistan. Það var allt of erfitt að
ferðast til þeirra landa þegar maður
var ein, ung kona. För mín endaði því
í Dharam Sala.
Hippastemning og tíbeskt samfélag í
Dharam Sala
Í Dharam Sala var hópur fólks að
nema þau tíbesku búddafræði sem
Dalai Lama kenndi, en hann hafði
verið í útlegð frá heimalandi sínu
allt frá fjórða áratug síðustu aldar.
„Þarna hitti ég fólk sem var að vinna
með þessar sömu spurningar og ég
hafði verið að velta fyrir mér, spurn-
ingar sem vörðuðu líf okkar og dauða,
hvað tæki við handan dauðans, endur-
holdgun og eðli mannsins. Sem krist-
in manneskja hafði ég lært þau gildi
að maður ætti að vera góður, gjöfull
og þolinmóður en það var aldrei sagt
hvernig maður ætti að finna eða rækta
þessa eiginleika innra með sér. Þarna á
Indlandi fann ég aðferðafræði og leiðir
sem notaðar voru til þess að vinna með
okkur sjálf. Á þessum tíma var greiður
aðgangur að Dalai Lama og þeim kenn-
urum sem voru í kringum hann. Þarna
hafði myndast lítið samfélag í kring-
um Dalai Lama sem snerist mikið um
það að viðhalda þessari menningararf-
leifð sem eftir var í Tíbet. Það hafði
mikið af ritaðri þekkingu glatast en
munkarnir í Tíbet læra á allt öðruvísi
hátt en við erum vön á Vesturlöndum.
Þar eru nemendur látnir læra mikið
af flóknum heimspekilegum fræðum
algjörlega utanbókar. Ég reyndi eins
mikið og ég gat, og reyni enn, að fara
eins mikið í kennslu til Dalai Lama og
ég get. Hann kennir bæði í lokuðum
hópum og á stærri fyrirlestrum en er
umfram allt einstaklega mikill maður
fólksins.“
Tíbeska mikið og flókið tungumál
„Mín fyrsta upplifun af Dalai Lama
var sú að vera á fyrirlestri og skilja
ekki neitt því allt var á tíbesku,“ segir
Þórhalla hlæjandi. „Það eina sem ég
hugsaði um þá var að ég óskaði þess að
einhvern tímann síðar á ævinni gæti ég
skilið það sem fór fram. Ég sá allt þetta
fólk sitjandi þarna með mikilli lotningu
en skildi ekki neitt sem hann sagði. Það
tók mig nokkur ár að læra tíbesku og
var orðin ágætlega talfær í því. En
tíbeska tungan er svo miklu meira
öðruvísi en íslenska tungan og miklu
flóknari. Svo er málið sem er notað í
daglegu tali og málið sem er kennt á
mjög ólíkt. Svo skiptist tungumálið í
mismunandi hreim innan landsins og
þeir skilja varla hver annan. Ég sá því
að þetta yrði tíu ára nám í tungumál-
inu ef ég ætlaði að skilja heimspeki-
lega fyrirlestra hjá Dalai Lama og not-
ast núna við túlk.“ Þórhalla hefur verið
með annan fótinn á Indlandi síðastliðin
þrjátíu ár og hefur að mestu leyti búið
í Dharam Sala. „Ég hef einnig kynnt
mér aðrar greinar búddisma í löndum
eins og Malasíu, Búrma og Taílandi og
hef ferðast mikið.“
Mikil vinna að baki komu Dalai Lama
Þórhalla segir að það hafi lengi staðið
til að flytja Dalai Lama til landsins og
það hafi tekið mörg ár að skipuleggja
það. „Það hefði aldrei orðið neitt úr
neinu nema fyrir tilstilli tveggja vin-
kvenna, Önnu Töru Edwards og Þór-
önnu Sigurðardóttur sem komu til
mín og sögðu mér að það væri nú eða
aldrei. Dalai Lama er alltaf á ferða-
lagi um heiminn en það verður að taka
tillit til þess að hann er orðinn sjö-
tíu og fjögurra ára gamall og maður
verður að taka tillit til þess. Hann er
bara mannlegur og heilsu hans hrak-
ar eins og annarra þrátt fyrir að vera
uppfullur af lífskrafti eins og er.“ Í
framhaldi af þessari ákvörðun komu
fleiri góðir vinir til sögunnar að sögn
Þórhöllu en heimsókn hins andlega
Heitir því að snúa aftur
Andlegur leiðtogi Tíbeta, hinn fjórtándi Dalai Lama, er væntanlegur til Íslands um helgina og heldur fyrirlestur í Laugardals-
höll á þriðjudag. Anna Margrét Björnsson ræddi við Þórhöllu Björnsdóttur, einn skipuleggjenda viðburðarins, en hún hefur eytt
meirihluta síðustu þrjátíu ára á Indlandi undir leiðsögn Dalai Lama og kennara hans.
MIKILL MANNVINUR Dalai Lama á heimaslóðum í Dharamsala en hann hefur verið í útlegð frá
Tíbet meirihulta ævinnar. MYND / GETTY
HIN RÉTTILEGA HÖLL DALAI LAMA Í LHASA Nú er Lhasa í Tíbet hluti af Kína og Dalai Lama er í
útlegð á Indlandi. MYND / GETTY
STEFNDI ALLTAF TIL INDLANDS Þórhalla
Björnsdóttir fór fyrst til Indlands árið 1975
en hafði ásett sér að komast þangað allt frá
barnæsku. FRÉTTABLAÐIÐ / GVA
Hann er
sérlega opinn
fyrir vís-
indalegum
rannsóknum
á andlegum
málefnum og
hlynntur því
að þróanir í
vísindalegum
rannsóknum
og andlegum
fræðum verði
að mætast
einhvers
staðar á miðri
leið í stað
þess að þróast
hvort í sína
áttina