Fréttablaðið - 30.05.2009, Blaðsíða 8
30. maí 2009 LAUGARDAGUR
EFNAHAGSMÁL Alþjóðagjaldeyris-
sjóðurinn telur ekki svigrúm fyrir
Seðlabankann að lækka vexti.
Fundur peningastefnunefndar
verður í næstu viku. Þetta kom
fram í máli Marks Flanagan, yfir-
manns sendinefndar AGS, sem
yfirgaf landið í gær.
„Ég vil leggja áherslu á að þetta
er ákvörðun Seðlabankans,“ sagði
Flanagan, en ef litið væri til þess
að gengi krónunnar væri nálægt
sögulegu lágmarki væri hætta á
að krónan myndi lækka enn meira
við vaxtalækkun, sem hefði áhrif
á verðbólgu og erlend lán.
Franek Rozwadowski, fastafull-
trúi sjóðsins hér á landi, sagði lík-
legt að það hefði einhver, jafnvel
veruleg, jákvæð áhrif á stöðu efna-
hagsmála hér á landi að sækja um
aðild að Evrópusambandinu. Hafa
þyrfti þó í huga að það gæti tekið
nokkur ár. Ávinningurinn væri því
ekki í hendi.
Fram kom í máli Rozwadowskis
og Flanagans að ef Ísland sækti
um aðild að ESB þyrfti að aðlaga
áætlun AGS hér á landi, en þeir
vildu ekki útskýra nánar hvað í
því fælist.
Flanagan sagði ekki komnar upp
aðstæður til að losa um gjaldeyris-
höftin, svo sem virka bankastarf-
semi og drjúgan gjaldeyrisvara-
sjóð. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
og íslensk stjórnvöld sæju þó fram
á að hægt yrði að byrja að losa um
gjaldeyrishöftin síðar á þessu ári.
Spurður hvort það hefði áhrif á
efnahagsmálin að norrænu lánin,
sem gert hefði verið ráð fyrir,
væru ekki í höfn svaraði Flanag-
an því til að vissulega hefði verið
gert ráð fyrir að norrænu lánin
kæmu fyrr. „Það hefur ýmis áhrif
á efnahagsmálin, til dæmis seink-
ar það sannarlega öllum áætlunum
um að losa um gjaldeyrishöftin,“
sagði Flanagan.
Þessa seinkun, auk þess sem
seinkun hefur orðið á uppbygg-
ingu fjármálakerfisins og áætl-
unargerðar til að skera niður fjár-
lagahallann, segir Flanagan helst
koma til vegna kosninganna. Mikið
starf hafi hins vegar verið unnið á
bak við tjöldin sem kæmi til fram-
kvæmda á næstu vikum. Þá myndi
áætlun Íslands og AGS væntanlega
komast aftur á áætlun.
„Það hefði hjálpað til ef áætlun-
in um að minnka fjárlagahallann
hefði orðið ljós fyrr,“ sagði Flanag-
an. Meðal annars hefði áhættuálag
á Ísland hækkað mikið við efna-
hagshrunið og myndi ekki lækka
fyrr en markaðir hefðu meiri vissu
um áætlun Íslands að þessu leyti.
Gert er ráð fyrir að fyrsta end-
urskoðun á áætluninni, sem átti
að fara fram í febrúar, fari fyrir
stjórn AGS um miðjan júlí.
svanborg@frettabladid.is
Lækkun vaxta fellir
krónuna enn frekar
Ekki eru aðstæður til að lækka vexti eða losa um gjaldeyrishöftin, sögðu full-
trúar AGS í gær. Umsókn að ESB myndi breyta efnahagsáætlun AGS hér á
landi. Forgangsverkefni að koma fram með áætlun til að draga úr fjárlagahalla.
FRANEK ROZWADOWZKI OG MARK FLANAGAN Reiknað er með að fyrstu endurskoð-
un ljúki í seinni hluta júnímánaðar og fari fyrir stjórn AGS um miðjan júlí.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
UTANRÍKISMÁL Ráðherrar og staðgenglar þeirra
frá hinum 47 aðildarríkjum Evrópuráðsins luku
tveggja daga fundi sínum í Reykjavík í gær með
því að samþykkja aðgerðaáætlun sem nær til
stefnumótunar samtakanna á sviði fjölmiðlunar og
internetsins.
Í pólitískri lokaályktun samþykktu ráðherrarnir,
sem eru ábyrgir hver í sínu landi fyrir málefnum
fjölmiðla, að Evrópuráðið skyldi vinna að endur-
skoðun fjölmiðlahugtaksins, einkum með tilliti til
þróunar nýmiðla á borð við bloggsíður, samskipta-
síður á netinu og leitarvélar.
Ráðherrarnir ályktuðu einnig að stjórnvöld í
aðildarríkjunum ættu að endurskoða reglulega
hryðjuverkavarnalög sem í gildi væru í hverju
landi með það fyrir augum að þrengja möguleika á
misbeitingu þeirra, einkum og sér í lagi með tilliti
til verndar tjáningarfrelsisins og upplýsingafrelsis.
Reglulegt eftirlit væri mikilvægt með því að
ákvæði og framfylgd slíkrar hryðjuverkalöggjafar
væri með þeim hætti að hún bryti ekki í bága við
borgararéttindastaðla Evrópuráðsins, sérstaklega
ekki dómafordæmi Mannréttindadómstóls Evrópu.
Rússland studdi allar ályktanir fundarins nema
þessa um kvöð um endurskoðun hryðjuverkalaga.
- aa
Ráðherrafundur Evrópuráðsins í Reykjavík ályktar um fjölmiðlun og hryðjuverkalög:
Endurskoðun minnki hættu
á misnotkun hryðjuverkalaga
ÁLYKTUN RÆDD Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra
og Philippe Boillat af fastaskrifstofu Evrópuráðsins ræða við
fjölmiðla að loknum fundinum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VIRKJANIR Steingrímur J. Sigfússon
fjármálaráðherra telur nauðsyn-
legt að gera Kárahnjúkavirkjun
heildstætt upp og fá á hreint hver
er nettó virðisaukinn sem eftir
verður í samfélaginu. Hann segist
hafa beðið sitt fólk í ráðuneytinu að
kanna hvort ekki sé hægt að taka
þau gögn saman. Ekki er þó ákveð-
ið með heildarúttektina.
Steingrímur segir OECD hafa
gagnrýnt það á sínum tíma að slík
athugun hafi ekki legið fyrir. Hann
og flokksmenn hans, hafi tekið
undir þá gagnrýni, enda sé nauð-
synlegt að gera sér grein fyrir raun-
verulegri arðsemi virkjunarinnar.
„Við þurfum að átta okkur á því,
bæði til að gera þetta verkefni
upp og eins fyrir framtíðina, hver
heildararðsemi af verkefni er. Hver
nettóarðurinn er fyrir þjóðarbúið af
verkefni af þessu tagi. Sú vinna fór
aldrei fram,“ segir Steingrímur.
„Það verður að fá á hreint hver
nettóvirðisaukinn er sem eftir
stendur í íslensku hagkerfi af fjár-
festingu sem er á þessum forsend-
um; að eigandinn sé erlendur og arð-
urinn gangi til hans. Inn í það þarf
að taka allan kostnað, til dæmis við
fjárfestingu. Slík greining er nauð-
synleg og verður að liggja fyrir.“
Steingrímur segir dóm reynsl-
unnar þó vera hið raunverulega
arðsemismat. - kóp
Fjármálaráðherra vill gera Kárahnjúkavirkjun heildstætt upp:
Skoða nettóarð virkjunar
Verðandi
lagahöfundar
óskast
Lagadeild
www.lagadeild.hi.is
Umsóknarfrestur til 5. júní
Kennarar við lagadeild Háskóla Íslands skrifa
nánast allar kennslubækur í lögfræði sem notaðar
eru í landinu. Við byggjum framsækið og krefjandi
nám á 100 ára hefð við langöflugasta háskóla
landsins.
Engin skólagjöld
Skrásetningargjald aðeins kr 45.000
FJÁRMÁLARÁÐHERRA Steingrímur telur
að nauðsynlegt sé að reikna út hversu
mikil nettó verðmætaaukning verði
í samfélaginu af verkefni á borð við
Kárahnjúkavirkjun. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM