Fréttablaðið - 04.07.2009, Síða 1
HELGARÚTGÁFA
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI4. júlí 2009 — 157. tölublað — 9. árgangur
inni&úti
LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 2009 Sumarblað Fréttablaðsins
● STEFÁN SVAN AÐALHEIÐARSON
SAFNAR SÉRSTÆÐUM MUNUM
● LIST
MINNINGARBROT ÚR BERNSKU
● MATUR
LJÚFFENGIR ÁBÆTISRÉTTIR
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ERÓTÍSKT Í BÚSTAÐINN
Silja Aðalsteinsdóttr mælir með
kvikmynd um Molière í sumar-
bústaðinn.
SÍÐA 2
EINS OG HJÁ ÖMMU
Nýtt kaffihús hefur verið
opnað í elsta húsi Hafnar í
Hornafirði.
SÍÐA 6
Sölufulltrúar Viðar Ingi Pétursson vip@365.
is 512 5426 Hrannar Helgason hrannar@365.
is 512 5441
MONTESSORI
Vantar Montessori kennara eða manneskju me
ð
reynslu í Montessori stefnunni í 60% starf.
Þarf að geta hafi ð störf í lok ágúst/byrjun septe
mber.
Umsókn með ferilskrá óskast sent á skoli@
montessori.is
ÓSKUM EFTIR VÖNUM ÚTHRINGJARA.
VEL LAUNAÐ STARF.
Vinnutími 3-4 kvöld í viku frá kl 18-22 (sam
komulag).
Miklir tekjumöguleikar. Þægileg vinnuaðsta
ða.
Æskilegur aldur 30 – 60 ára.
Nánari upplýsingar gefa
Samúel s. 8970948, Eiríkur s. 8227303.
STJÓRNMÁL 24
INNI OG ÚTI 8
Skoðar innsta eðli
mannsins
VIÐTAL 28
TVÖ SÉRBLÖÐ Í DAG
Tempur
– 15 ár á Íslandi
Frábær
afmælistilboð í júlí
KJARAMÁL Fulltrúar allra aðildar-
félaga BSRB, utan eins, og fulltrú-
ar Starfsgreinasambands Íslands
(SGS) skrifuðu í gær undir kjara-
samninga við ríkið. Í samningunum
er tekið mið af stöðugleikasáttmál-
anum, og munu því aðeins lægstu
launin hækka.
„Auðvitað er enginn ánægður
með þessa niðurstöðu, en miðað við
aðstæður er þetta það sem mögu-
legt var,“ segir Signý Jóhannes-
dóttir, sviðsstjóri sviðs opinberra
starfsmanna innan SGS.
Þeir sem lægst launin hafa munu
hækka um samtals tuttugu þúsund
krónur í þremur áföngum. Laun
undir 210 þúsund krónum munu
hækka frá 1. júlí síðastliðnum og 1.
nóvember, og laun undir 310 þús-
undum munu hækka 1. júní 2010.
„Í þessum kjarasamningum er
bara verið að horfa til allra lægstu
launanna, þeir sem hafa hærri laun
fá engar hækkanir,“ segir Árni
Stefán Jónsson, starfandi formaður
BSRB. Aðeins lítið hlutfall félags-
manna fær því kjarabætur þar til
samningurinn rennur út, í lok nóv-
ember 2010.
Samningarnir sem undirritaðir
voru í gær eru innlegg í stöðug-
leikasáttmálann, segir Gunn-
ar Björnsson, formaður samn-
inganefndar ríkisins. Hann segir
að samið hafi verið um minni
hækkanir en á frjálsum markaði,
enda ekkert launungarmál að ríkið
sé í erfiðri stöðu og ráði ekki við
meiri hækkanir.
BSRB og SGS eiga eftir að semja
við sveitarfélögin og Reykjavíkur-
borg. Signý segir að það geti reynst
erfiðara, þar sem fleiri lægra laun-
aðir starfsmenn séu hjá sveitar-
félögum, og fjárhagsstaða þeirra
sé erfið. Undir það taka aðrir við-
mælendur Fréttablaðsins.
Ríkið á einnig eftir að semja við
tugi félaga, þar með talað Bandalag
háskólamanna, Félag framhalds-
skólakennara og fleiri.
Atkvæði verða greidd um samn-
ingana á næstunni. - bj
Hækka lægstu launin
Aðildarfélög BSRB og Starfsgreinasambandið skrifuðu undir kjarasamning við
ríkið í gærkvöldi. Líklegt er að samningar við sveitarfélögin verði erfiðari.
TOMASZ
NAPIERAJCZYK
FERÐAHELGIN HAFIN Það er ekki laust við að ferðahugur hafi verið kominn í stóran hluta landsmanna í gær, og þétt umferð var
úr borginni fram eftir kvöldi. Áður en lagt er í ferðalagið er auðvitað nauðsynlegt að fylla á tankinn og því nóg að gera á bensín-
stöðvum við helstu umferðaræðar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI Athygli hefur vakið að
í fyrsta sinn er erlendur ríkis-
borgari að sinna dómgæslu í
efstu deild Íslandsmótsins í
knattspyrnu að
staðaldri. Sá
heitir Tomasz
Jacek Napier-
ajczyk og er
pólskur verka-
maður sem
kom hingað
til lands fyrir
rúmum þrem-
ur árum.
Fyrir ári var
hann hvattur
til að hafa samband við Knatt-
spyrnusamband Íslands þar
sem hann hafði lengi starfað
sem dómari í heimalandi sínu.
Hann þótti standa sig það vel
að honum var gefið tækifæri til
að vera aðstoðardómari í efstu
deild, þar sem hann dæmir nú
reglulega. - esá / sjá síðu 48
VIÐTAL 22
ÞRIÐJA GRÁÐAN 32
MENNTUN 26
DRAUGABANI Í
ÚTRÝMINGARHERFERÐ
GUÐLAUGUR KRISTINN ÓTTARSSON
Eftirréttir í
ferðalagið
VERKFÆRIÐ ER
MAÐUR SJÁLFUR
Valdarán í Róm-
önsku Ameríku
FÆR BRAGÐLAUKANA
AF STAÐ
Tomasz Napierajczyk:
Pólverji dæmir
í efstu deild
EFNAHAGSMÁL Forsvarsmenn
stærstu samtaka atvinnurek-
enda sem og verkalýðsforyst-
unnar taka undir þau rök að
samþykkja verði frumvarp
Steingríms J. Sigfússonar fjár-
málaráðherra um ríkisábyrgð
vegna Icesave-samningana.
Felli Alþingi samningana
verði staða Íslands jafnvel
enn alvarlegri en hún er nú.
Afgreiðsla málsins sé okkur
lífsnauðsynleg til að aðgang-
ur fáist að erlendu fjármagni
sem endurreisn efnahagslífsins
verði byggð á.
- shá / sjá síðu 4
Aðilar vinnumarkaðarins:
Icesave-málinu
verður að ljúka