Fréttablaðið - 04.07.2009, Síða 19
LAUGARDAGUR 4. júlí 2009 19
UMRÆÐAN
Karl V. Matthíasson skrifar um ölvunar-
akstur
Í hvert sinn sem við leggjum af stað út í umferðina ætlum við hvorki að lenda í
óhappi né slysi og sem betur fer komumst
við oftast heil heim. En stundum er það
ekki svo því að fjöldi fólks lendir í alvarleg-
um umferðarslysum. Aftur og aftur erum
við minnt á að spenna beltin, virða reglur
um hámarkshraða, nota ekki farsíma undir
stýri, gefa stefnuljós og vera meðvituð um aksturs-
skilyrði, svo sem veðurlag, gerð vegar og fleira. Einn
er sá þáttur sem mig langar að víkja hér að en það
er ölvunarakstur. Gott er að rifja upp að upphafleg
merking orðsins ölvaður er: Sá sem er undir áhrifum
öls. Það er sannað mál að ölvunarakstur veldur fjölda
umferðarslysa. Allir ættu að hafa þá reglu í heiðri að
stýra ekki neinu ökutæki eftir að hafa drukkið áfengi
eða neytt einhvers konar fíkniefna. Það sama gildir
um fráhvörfin. Sá sem er timbraður eða á „niðurtúr“
getur einnig verið stórhættulegur í umferðinni.
Á þessum tíma fara margir í frí og sumir fá sér í
glas. Einn bjór eða tvo og stundum létt vín með matn-
um. Í þessum drykkjum er alkóhól, en það slævir
dómgreind, viðbragðsflýti og skynjun alla. Alkóhól
hefur komið við sögu margra umferðarslysa. Í
sumum tilvikum vegna þess að Bakkus hafði alger-
lega tekið völdin, en í öðrum út af því að viðkom-
andi trúði þeirri reginfirru að allt í lagi væri að aka
eftir að hafa drukkið „smávegis“ léttvín eða bjór. Til
eru þeir sem halda því fram að hvers konar ölvunar-
akstur einstaklings sé vísbending um að
hann ætti að hafa samband við Vog.
Þeir sem fá boð í fínan kokteil, opnun við-
burðar, mikilvæga móttöku eða þvíumlíkt
ættu að gæta þess að fá sér óáfenga drykki
ef þeir eru á bílnum. En ef þeim finnst brýna
nauðsyn og kurteisi bera til þess að fá sér
áfengan drykk svona til samlætis þá hvet ég
viðkomandi til að skilja bílinn eftir og taka
leigubíl eða ganga heim.
Stundum ber við að fólk fari upp í bíl hjá
ökumanni sem hefur neytt alkóhóls eða ann-
arra vímugjafa. Slíkt er lögbrot. Því miður
eru þess dæmi að nánir aðstandendur eða vinir láti
undan frekju og jafnvel hótunum drukkins ökumanns
og þegið far í stað þess að kæra verknaðinn. Það er
misskilin ást að líða sínum nánustu ölvunarakstur.
Lögreglan hefur í mörgum tilvikum komið í veg
fyrir slys með því að taka ökumenn sem eru undir
áhrifum úr umferð. Ökumaður sem staðinn er að
ölvunarakstri verður fyrir áfalli, niðurbroti og
skömm. Hann hefur jú framið alvarlegt lögbrot og
hlýtur fyrir það þungar sektir. Áttum okkur á því
að ölvunarakstur er alvörumál og það verður aldrei
aftur tekið ef sá sem ekur ölvaður veldur slysi.
Við þekkjum það mörg hvað lífið getur breyst á
svipstundu, hvernig dagur sem átti að gefa okkur
„vort daglegt brauð“ varð skelfilegur örlagadagur og
í sumum tilvikum af því að einhver fékk sér „aðeins
einn“ og lagði þannig af stað út í umferðina. Ökum
aldrei undir áhrifum áfengis eða annarra fíkniefna.
Höfundur er vímuvarnaprestur og
formaður Umferðarráðs.
Fáeinir sopar eyðileggja allt
UMRÆÐAN
Bergþóra Snæ-
björnsdóttir skrifar
um kjör námsfólks
Mannkynið hefur í gegnum aldirn-
ar verið óþreytandi við
að spinna upp og segja
sögur af ofurhetjum
– fólki með ofurmann-
lega eiginleika. Gunn-
ar á Hlíðarenda átti að geta hopp-
að mannhæðir í herklæðum, Jesús
var sagður geta breytt vatni í vín
og hver hefur ekki heyrt um Súper-
mann sem er allt í senn sætur,
sterkur og getur flogið. Og nú virð-
ist sem íslenskum námsmönnum sé
ætlað að slást í hóp með ódauðleg-
um hetjum heimsins.
Fyrir skömmu voru undirritað-
ar nýjar úthlutunarreglur LÍN þar
sem kveðið er á um að framfærsla
námsmanna verði ekki hækkuð um
krónu. Framfærslan, 100.600 kr., er
þriðjungi lægri en atvinnuleysis-
bætur og töluvert undir fátæktar-
mörkum (miðað við miðgildi tekna
í árslok 2008). Stúdentar eiga því
að lifa á sömu framfærslu og áætl-
að var að þeir gætu skrimt á í árs-
byrjun 2008. Síðan þá hefur mat-
arkarfan hækkað um 30%, verð á
fatnaði og skótaui um tæp 23%, á
húsgögnum hefur orðið um 24%
hækkun og allt hækkar þetta enn.
Leiga á stúdentagörðum hækkar í
samræmi við vísitölu og hefur því
hækkað um tæp 12%. Til að kóróna
þetta allt saman er svo ekkert tillit
tekið til breyttra atvinnuaðstæðna
í hinum nýju úthlutunarreglum en
þar er gert ráð fyrir að meðalstúd-
ent hafi um eina milljón króna í
árstekjur. Nokkuð bjartsýn spá það
í þessu árferði. Ætli einhver sér að
lifa á þeirri upphæð sem stúdent-
ar fá í framfærslulán verður við-
komandi hreinlega að geta mett-
að sjálfan sig og alla fjölskylduna
með örfáum rúnstykkjum og tveim-
ur silungum á mánuði.
Segjum sem svo að Jóhanna Sig-
urðardóttir forsætisráðherra hygð-
ist leggja stund á B.A.-nám í kín-
versku í haust. Segjum einnig að
hún fengi fulla framfærslu upp á
100.600 kr. frá LÍN (þar með hunds-
um við alla tekjuskerðingu) og að
hún þyrfti ekki að borga bönkunum
kostnað við vexti af framfærslulán-
um. Jóhanna er stálheppin stúdína
og kemst að á stúdentagörðum í
Skuggagörðum þar sem leigan er
68.323 krónur. Það þýðir að eftir
húsaleigubætur á Jóhanna 50.000
krónur þann mánuðinn. LÍN miðar
við að fæði fyrir einstakling kosti
um 895 krónur á dag eða um 28.000
krónur á mánuði. Til samanburðar
má nefna að kostnaður fæðis fyrir
hvern fanga á Íslandi var ríflega
1.600 krónur á dag síðastliðið ár
og er stúdent því helmingi spar-
neytnari en einstaklingur í fang-
elsismötuneyti samkvæmt reikni-
líkani LÍN. Í mötuneyti HÍ kostar
heit máltíð um 650 krónur og því
ætti Jóhanna einungis 250 krónur
eftir fyrir mat þann daginn. Hún
yrði að koma með nesti daglega
en það yrði að vera sparlegt þar
sem ódýrasta matarkarfan kostar
nú um 14.000 krónur og fer hækk-
andi. Tækist Jóhönnu að halda sig
við hina ótrúlegu matarviðmið LÍN
ætti hún um 22.000 krónur eftir til
afnota. Útgjöld vegna bókakostnað-
ar í kínversku, ritfanga og skrán-
ingargjalda eru um 8.750 krónur á
mánuði á haustönn. Þá á hún eftir
13.250 krónur á mánuði. Jóhanna
tekur ætíð strætó en þar sem skrúf-
að hefur verið fyrir Frítt í strætó
verkefnið er líklegt er að hún borgi
15.000 krónur á ári eða 1.667 kr. á
mánuði í strætókort. Eftir mánað-
arleg útgjöld standa því eftir heil-
ar 11.583 krónur sem Jóhanna
getur notað í lækniskostnað, fatn-
að, menningu og annað til-
fallandi á mánuði. Höfum
hugfast að Jóhanna þarf
ekki að taka yfirdráttarlán
hjá bönkunum auk þess að
fá full framfærslulán sem
nánast enginn fær.
Námsmenn eru stór og
fjölbreyttur hópur fólks á
öllum aldri með mismun-
andi sögur og byrðar að
bera. Oft er okkur sagt að
það sé bara rómantískt að
vera blankur á námsárun-
um. Þeir sem það segja eru tæp-
lega að reyna að lifa af þeim náms-
lánum sem námsmönnum standa til
boða í dag. Það er nefnilega ekkert
rómantískt við að þurfa að steypa
sér í skuldasúpu án nokkurs starfs-
öryggis að námi loknu. Það er ekk-
ert rómantískt við að skrimta undir
fátæktarmörkum. Sama hvaða sam-
félagshóp maður tilheyrir. Blákald-
ur veruleikinn er sá að verði ekkert
að gert á næstunni til að koma til
móts við námsmenn verður mennt-
un að forréttindum þeirra fáu og
útvöldu sem búa yfir ofurkröftum
– eða hafa verulega loðna vasa!
Höfundur er oddviti Röskvu,
samtaka félagshyggjufólks við
Háskóla Íslands.
Eru bara menn …
KARL V.
MATTHÍASSONBERGÞÓRA
SNÆBJÖRNSDÓTTIR
Auglýsingasími
– Mest lesið
Taktu flugið!
A-hluti samkeppninnar er ætlaður fagfólki og öðrum sem uppfylla
tiltekin skilyrði og er í samvinnu við Arkitektafélag Íslands.
B-hluti samkeppninnar er ætlaður almenningi án nokkurra skilyrða
um efni, form eða framsetningu hugmynda.
Farið nú á flug og skilið okkur hugmyndum í skrifuðum texta, með
teikningu, ljósmynd eða jafnvel í ljóði ef svo ber undir! Aðalatriðið
er að láta hugann reika þannig að Gamla höfnin fái að njóta þess.
• Heildarverðlaun verða fjórtán milljónir króna, þar af tvær milljónir
króna fyrir hugmyndir almennings í B-hluta samkeppninnar.
• Samkeppnislýsingu má nálgast á faxafloahafnir.is og á ai.is.
• Frestur til að skila tillögum rennur út 6. október 2009.
• Dómnefnd birtir niðurstöður sínar í lok nóvember 2009.
Stjórn Faxaflóahafna sf. kallar eftir hugmyndum
frá almenningi til að leggja í púkk í samkeppni
sem stendur yfir um heildarskipulag Gömlu
hafnarinnar og Örfiriseyjar í Reykjavík.
Hugmyndaflug
yfir Gömlu
höfnina
A
T
H
Y
G
L
I