Fréttablaðið - 04.07.2009, Síða 20

Fréttablaðið - 04.07.2009, Síða 20
20 4. júlí 2009 LAUGARDAGUR UMRÆÐAN Helgi Sigurðsson skrifar um lán til hlutabréfakaupa starfsmanna Kaupþings Í umræðum um lán til starfs-manna Kaupþings banka vegna hlutabréfakaupa hefur ýmsum fullyrðingum verið haldið fram sem sumar hverjar eru beinlínis rangar og aðrar afar villandi. Hér á eftir verður farið yfir nokkrar þessara staðhæfinga í því skyni að reyna að leiðrétta helstu rang- færslur án þess þó að um tæmandi umfjöllun sé að ræða. Engin niðurfelling í september „Stjórn gamla Kaupþings felldi niður 50 milljarða skuld nokk- urra starfsmanna bankans í lok september rétt fyrir hrun.“ Engar skuldir voru felldar niður af stjórn gamla Kaupþings í september 2008. Stjórn bankans felldi niður 10,5 milljarða persónu- lega ábyrgð á skuldunum þannig að ábyrgð starfsmanna takmarkað- ist við verðmæti þeirra trygginga sem lagðar voru fram til greiðslu lánanna. Á þeim tíma voru eignir fjölmargra starfsmanna umfram skuldir og í sumum tilvikum veru- lega umfram skuldir. Þó að niður- fellingunni væri rift gæti krafa bankans á hendur starfsmönnum aldrei orðið hærri en sem nemur mismuninum á eign starfsmanns- ins og skuld enda var bankanum í lófa lagið að ganga að undirliggj- andi tryggingum lánanna og gera þannig upp persónulega ábyrgð þeirra. Sá mismunur er verulega lægri en 10,5 milljarðar. Starfsmenn Kaupþings báru upphaflega enga persónulega ábyrgð á umræddum lánveiting- um. Lánin voru veitt í samræmi við launastefnu félagsins sem kynnt var Fjármálaeftirlitinu í árslok 2003 og samþykkt af hlut- höfum á aðalfundi í ársbyrjun 2004. Upphaflega var skaðleysi starfsmanna tryggt með útgáfu sölurétta. Á árinu 2005 voru lánin flutt frá öðrum fjármála- fyrirtækjum yfir til Kaupþings í samræmi við tilmæli FME um að starfsmenn mættu ekki eiga í viðskiptum við aðra banka. Sam- hliða þessum flutningi óskaði stjórn bankans eftir því að sölu- réttirnir yrðu felldir niður og fundin yrði önnur útfærsla til að tryggja skaðleysi. Persónuleg ábyrgð starfsmanna, sem upphaf- lega var engin, var þá takmörkuð við 10% af fjárhæð lánsins. Jafn- framt var ákvæði í lánssamningi um að gengið yrði að tryggingum ef verðmæti þeirra lækkaði niður fyrir tiltekin mörk og andvirði þeirra nýtt til greiðslu skuldar- innar. Með þessu var talið að starfsmenn væru tryggðir fyrir því að ekki reyndi á persónulega ábyrgð þeirra. Á þessum tíma var tryggingarstaða starfsmanna afar sterk vegna mikilla verðhækkana hlutanna og almenn veð- setningahlutföll bankans því að fullu virt. Vandi bankans Þegar verð hluta lækkaði í lok árs 2007 og í ársbyrj- un 2008 var bankanum nokkur vandi á höndum að nýta sér ákvæði um veðköll bréfanna. Lánveitingar til starfsmanna byggðust á því að um langtíma- fjárfestingu væri að ræða á kaup- um á allt að 9% af heildarhluta- fé félagsins, þar sem starfsmenn væru varðir fyrir fjárhagslegum skaða og gætu staðið af sér verð- sveiflur á markaði. Umfangsmikil sala starfsmanna þegar verðmæti hluta í félaginu fór lækkandi var í andstöðu við yfirlýsta stefnu félagsins auk þess sem það hlaut að vera afar óheppilegt fyrir bankann að starfsmenn væru með þeim fyrstu sem seldu hluti sína þegar verðið lækkaði. Bankinn ákvað því að nýta sér ekki ákvæði samningsins um veðköll og full- vissaði starfsmenn þegar í árs- byrjun 2008 að þeir þyrftu ekki að hafa áhyggjur af því að gengið yrði að þeim persónulega vegna skulda við bankann sem tengdust hlutafjárkaupum. Hafa verður í huga að sala bréf- anna var óheimil án skriflegs samþykkis bankans sem lagðist eindregið gegn sölu starfsmanna á hlutum í bankanum. Þessi afstaða bankans var í andstöðu við þær grundvallarforsendur sem gengið var út frá í lánssamningi og áttu að tryggja skaðleysi starfsmanna. Bankinn getur ekki á einum tíma bannað starfsmönnum að selja hluti í félaginu til að forðast tjón og ætlað síðar að innheimta kröf- una óháð slíku sölubanni. Færa má því sterk rök fyrir því að krafa bankans sé fallin niður jafnvel þó að ekki hefði komið til sérstök yfirlýsing frá stjórn bankans um niðurfellingu. Skattgreiðsla útilokuð „Skattayfirvöld hafa haldið því fram að starfsmenn Kaupþings þurfi að borga tekjuskatt“. Skattayfirvöld hafa ekki hald- ið því fram að starfsmenn Kaup- þings þurfi að greiða tekjuskatt heldur óskað eftir upplýsingum um málsatvik og lýst sig reiðu- búinn til að veita svokallað bind- andi álit um skattgreiðslu. Þeir skattasérfræðingar sem bankinn hefur ráðfært sig við vegna máls- ins hafa talið slíka skattgreiðslu útilokaða enda hljóti slíkar skatt- greiðslur meðal annars að þurfa að taka mið af auðgun starfs- mannsins og því endurgjaldi starfsmannsins sem fólst í sölu- banninu og kom í veg fyrir að starfsmaðurinn gæti forðað sér frá tjóni. Þess má geta að starfsmenn Kaupþings hafa nú þegar greitt tekjuskatt af kaupréttum á hlutum sem nú eru verðlausir. Staðhæfing 1 „Starfsmenn hafa reynt að tefja og þagga niður málið og sögðust síðan ætla að endurgreiða kröf- una þegar málið komst í hámæli“. Strax við hrun bank- ans óskuðu starfsmenn eftir viðræðum við Price- waterhouseCoopers og FME um stöðu starfsmannalána og öll gögn afhent vegna þessara lánveitinga. Á fyrsta fundi nýrrar bráðabirgðastjórnar 22. október 2008 var þetta mál rætt sérstak- lega að beiðni starfsmanna og bókað að mikilvægt væri að ljúka málinu og eyða þeirri óvissu sem væri fyrir hendi. Þá kemur fram í fundargerðinni að rætt yrði við ráðuneytisstjóra fjármálaráðu- neytisins vegna málsins. Í tölvu- pósti sem greinarhöfundur sendi til þáverandi ráðuneytisstjóra fjármálaráðuneytisins segir orð- rétt: „Ég vil biðja þig um að taka því ekki óstinnt upp þó að ég leggist á þig með að þessu máli verði hraðað eins og kostur er. Þetta hefur beinlíns áhrif á heilsu starfsfólksins og þar með starf- semi bankans auk þess sem við viljum hafa skýr svör ef fjölmiðl- ar spyrjast fyrir um málið enda stendur ekki til annars en að leysa það með sambærilegum hætti og mál annarra viðskiptavina.“ Eins og þessi tölvupóstur ber með sér var engin umræða um þessi mál í fjölmiðlum á þeim tíma sem hann var sendur til ráðuneytisins og fól í sér ósk um að fundin yrði lausn sem væri sambærileg við úrlausn mála gagnvart almennum við- skiptavinum bankans. Kristján Arason ekki í ábyrgðum „Kristján Arason og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir fengu felld- ar niður persónulegar ábyrgðir.“ Kristján Arason fékk enga niður fellingu á persónulegri ábyrgð meðal annars af þeirri ein- földu ástæðu að hann var ekki í neinum persónulegum ábyrgðum gagnvart bankanum. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttur hefur ekki annað til saka unnið en að vera eiginkona Kristjáns Arasonar og hvorki fengið lán frá Kaupþingi né niðurfellingu á lánum. Samkvæmt lögum bera hjón ekki ábyrgð á skuldum hvort annars og umfjöll- unin því ómakleg. Lán til almennra viðskiptavina bankans vegna verðbréfakaupa voru ekki veitt á grundvelli per- sónulegrar ábyrgðar. Slík lán voru að jafnaði veitt til eignarhalds- félaga út frá ákveðinni tryggingar- þekju. Af heildarlánum bankans vegna verðbréfalána er persónu- leg ábyrgð innan við 2,5% og ein- ungis 0,5% ef tveir fagfjárfestar eru undanskildir. Starfsmönnum var hins vegar ókleift að stofna slík eignarhaldsfélög í upphafi þar sem FME taldi að þau brytu gegn gagnsæisreglum á markaði. Eng- inn vafi er á því að starfsmenn bankans hefðu sett þessi kaup inn í eignarhaldsfélag eins og aðrir viðskiptavinir ef afstaða FME á sínum tíma hefði ekki komið í veg fyrir það. Á árinu 2006 breyttust reglurnar að þessu leyti og fluttu þá nokkrir starfsmenn eignina yfir í eignarhaldsfélag. Á meðan starfsmenn Kaupþings hlýddu tilmælum FME að þessu leyti virðast starfsmenn annarra fjármálafyrirtækja hafa stofnað eignar haldsfélög um kaup sín á hlutafé í viðkomandi fjármála- fyrirtækjum sem nú hefur verið afskrifað. Niðurfellingin var lögmæt „Ný stjórn bankans og viðskipta- ráðherra hafa vitnað til lögmanns Kaupþings eins og guðs almátt- ugs.“ Án þess að greinarhöfundur sé haldinn sérstakri minnimáttar- kennd hafa hvorki bráðabirgða- stjórn Nýja Kaupþings banka hf. né núverandi stjórn Nýja Kaup- þings banka hf. eða aðrir yfir- leitt vitnað til hans eins og guðs almáttugs. Bráðabirgðastjórn Nýja Kaupþings banka hf. óskaði eftir áliti Viðars Más Matthías- sonar prófessors og núverandi stjórn eftir áliti Harðar Felix Harðarsonar hrl. Ný stjórn bank- ans og viðskiptaráðherra hafa vísað til þessara lögfræðiálita. Niðurstaða þessara lögfræði álita var sú að niðurfellingin væri lög- mæt og færa megi sterk rök fyrir því að bankanum væri ekki stætt á því að innheimta lánssamning- ana þrátt fyrir að komist yrði að þeirri niðurstöðu að niður- felling stjórnar á persónulegum ábyrgðum stæðist ekki. Krafa bankans gæti auk þess aldrei orðið hærri en sem nemur auðgun starfsmanns ins en eins og áður er rakið voru fjölmargir starfsmenn með eignir umfram skuldir þegar niðurfellingin átti sér stað. Á móti 10,5 milljarða niðurfellingu persónulegra ábyrgða þann 25. september 2008 voru verulegar eignir sem verður að draga frá kröfunni. Lokaorð Einn megintilgangur með skrán- ingu bankans á markaði árið 2000 var að tryggja eignarhald starfs- manna. Í skráningarlýsingu var tekið fram að starfsmönnum yrði veitt lán til kaupanna til að ná þessu markmiði. Þessi kaup eru nánar útfærð á árinu 2003 og á aðalfundi 2004 er samþykkt að starfsmenn geti eignast allt að 9% af heildarhlutafé bankans. Á fund- inum er gerð grein fyrir því að augljóslega geti starfsmenn ekki eignast þennan eignarhlut nema til komi lánafyrirgreiðsla frá bankanum. Á fundinum og í kynn- ingu til FME í árslok 2003 er lögð áhersla á það að slíkar lánafyrir- greiðslur feli ekki í sér persónu- lega áhættu fyrir starfsmenn. Hagnaður starfsmanna af þessum lánveitingum reyndist enginn. Þvert á móti þurftu þeir að greiða skatta af kaupréttum vegna kaupa á hlutafé sem þeim var óheimilt að selja. Sú tekjuskattsgreiðsla hefur einatt verið tilefni til mikill- ar umræðu um óhófleg launakjör sem í raun voru tilkomin vegna hlutabréfa sem nú eru verðlaus. Möguleikar starfsmanna til að draga úr áhættu með sölu bréf- anna voru háðir samþykki bank- ans sem beinlínis lagðist gegn því að þeir gerðu það og þeir fullviss- aðir um að lánafyrirkomulagið yrði útfært með þeim hætti að þeir þyrftu ekki að hafa sérstakar áhyggjur. Síendurtekin skrif um lán til starfsmanna Kaupþings og upp- lýsingar úr skýrslum ýmissa skoð- unarnefnda sem vinna að rann- sókn á falli fjármálakerfisins vekja grunsemdir um að verið sé að dreifa athygli frá því sem máli skiptir. Íslenskir skattgreiðend- ur þurfa ekki að velta því fyrir sér hvort þeir þurfi að greiða 350 eða 700 milljarða vegna innstæðu- eigenda Kaupþings og skattgreið- endur þurfa ekki heldur að hafa áhyggjur af því að greiða tapið af verðbréfalánum Kaupþings, það féll því miður á lánveitendur bankans. Af einhverjum ástæðum hefur þessi skipulagða lekastarf- semi nær eingöngu snúið að Kaup- þingi. Það er lagaleg og siðferðis- leg skylda núverandi stjórnar Nýja Kaupþings, Skilanefndar Kaupþings, Fjármálaeftirlits og Ríkislögreglustjóra að koma tafar- laust í veg fyrir að frekari upp- lýsingum úr lánabók bankans sé dreift í fjölmiðlum landsins. Höfundur er fyrrverandi lögfræð- ingur Nýja Kaupþings. Lán til starfsmanna Kaupþings banka hf. HELGI SIGURÐSSON

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.