Fréttablaðið - 04.07.2009, Side 78
54 4. júlí 2009 LAUGARDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
PERSÓNAN
LÁRÉTT
2. báru að, 6. skst., 8. kjaftur, 9. kvk
nafn, 11. átt, 12. aðfall, 14. fótmál, 16.
hróp, 17. frjó, 18. nafar, 20. tveir eins,
21. ókyrrð.
LÓÐRÉTT
1. nýja, 3. líka, 4. afbrot, 5. líða vel, 7.
orðrómur, 10. þrá, 13. hluti verkfæris,
15. matur, 16. hljóðfæri, 19. kyrrð.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. komu, 6. no, 8. gin, 9.
gró, 11. sa, 12. aðsog, 14. skref, 16.
óp, 17. fræ, 18. bor, 20. ðð, 21. órói.
LÓÐRÉTT: 1. unga, 3. og, 4. misgerð,
5. una, 7. orðspor, 10. ósk, 13. orf, 15.
fæði, 16. óbó, 19. ró.
Jón Eðvald Vignisson
Aldur: 25 ára.
Búseta: Vesturbær Reykjavíkur,
aðeins of nálægt KR-vellinum.
Starf: Tæknistjóri CLARA.
Stjörnumerki: Tvíburi.
Fjölskylda: Barnlaus, hamingju-
samlega ástfanginn.
Birgitta Haukdal og maðurinn
hennar, Benedikt Einarsson, eign-
uðust lítinn strák hinn 25. júní.
Móður og syni heilsast vel en strák-
urinn ku vera mikill myndar piltur.
Heimilið að Bakkaflöt 3 í Garða-
bænum er því í miklum blóma
um þessar mundir og lífið leikur
við ungu hjónin, sem hafa verið
að koma sér fyrir í þessu glæsi-
lega húsi. Ekki verður langt fyrir
ættingjana að heimsækja hvít-
voðunginn því frændi Benedikts,
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðis flokksins, á heima beint
á móti þeim og tveir aðrir af hinni
margfrægu Engeyjar ætt búa við
þessa virðulegu götu í Garðabæn-
um.
Undanfarnir mánuðir hafa því
verið viðburðaríkir hjá hjóna-
kornunum. Þau gengu í það heil-
aga í október á síðasta ári við
hátíðlega athöfn í Dómkirkjunni.
Nokkrum dögum síðar fengu þau
svo að vita að söngkonan ástsæla
bæri barn undir belti. „Litla barn-
ið var því leynigestur í brúðkaup-
inu okkar,“ sagði Birgitta í viðtali
við Föstudag í mars. Birgitta lýsti
því reyndar yfir í sama viðtali að
hún hefði fengið æði fyrir súr-
mat, hún hefði hakkað í sig súra
hrútspunga og annan þorramat
af bestu lyst á meðgöngunni. Þá
upplýsti hún einnig að barneignir
hefðu ekki verið á dagskránni hjá
sér í mörg ár. „Mín skoðun er sú
að við verðum að finna manninn
okkar sem við viljum eyða ævinni
með og koma okkur fyrir áður en
barneignir byrja. Ég lít alls ekki á
barneignir sem sjálfsagðan hlut og
á hverjum degi þakka ég fyrir litla
kraftaverkið okkar.“
- fgg
Birgitta og Bensi fengu strák
ALSÆL Birgitta er alsæl með soninn sem
kom í heiminn þann 25. júní en hann
þykir mikill myndarstrákur.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Hljómsveitin Hjaltalín heiðr-
aði Michael Jackson á tónleikum
sínum á Hróarskelduhátíðinni
á fimmtudagskvöld með því að
spila lag hans Don’t Stop ‘til You
Get Enough. Lagið var það síðasta
sem hún tók fyrir uppklapp. „Við
tókum það líka á Nasa á laugar-
dagskvöldið [27. júní]. Það hitti
mjög vel í mark og það var mikið
dansað,“ segir Guðmundur Óskar
Guðmundsson, bassaleikari Hjalta-
lín, sem skemmti sér vel á Hróars-
keldu. „Þetta gekk rosalega vel.
Við spiluðum fyrir stappað tjald
af fólki, svona þúsund manns, og
það var vel tekið í allt.“ Aðeins
um tvö hundruð Íslendingar eru á
Hróarskeldu í ár sökum lágs geng-
is krónunnar og var hluti þeirra
mættur til að sjá Hjaltalín. „Maður
sá að þegar við spiluðum Þú komst
við hjartað í mér fóru allir Íslend-
ingarnir á hreyfingu. Þá sá maður
hverjir voru útlend-
ingar og hverjir voru
Íslendingar,“ segir
Guðmundur.
Fregnir af meiri
þjófnaði á hátíðinni
en áður hafa tröll-
riðið dönskum
fjölmiðlum en
Guðmundur
segist ekkert
hafa orðið
var við slíkt. „Við vorum með allt
okkar dót í mjög vel girtri aðstöðu
baksviðs. Það var enginn séns að
komast þangað nema að vera með
þar til gerða passa og pappíra.“
Kira Kira spilaði á Hróarskeldu
á þriðjudagskvöldið við góðar
undirtektir og gafst liðsmönnum
Hjaltalín tími til að hitta hana áður
en þeir héldu á brott til Póllands
þar sem þeir spiluðu í gærkvöldi.
Aftur á móti gafst enginn tími til
að blanda geði við stjörnur hátíðar-
innar á borð við Oasis, Coldplay og
Nick Cave. „Það gafst ekki mikið
tækifæri til þess. Við þurftum að
ná flugvél snemma um morgun-
inn og við rétt náðum að labba um
hátíðarsvæðið.“ - fb
Heiðruðu Jackson á Hróarskeldu
HJALTALÍN Hljómsveitin
Hjaltalín heiðraði hinn
sáluga Michael Jackson á
Hróarskelduhátíðinni.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
MICHAEL
JACKSON
Popparinn er í
miklu uppáhaldi
hjá Hjaltalín.
Kaffi Oliver var nokkuð þétt setinn
á fimmtudagskvöldinu og var engu
líkara en að um laugardagskvöld
hefði verið að ræða. Gestirnir voru
af öllum stærðum og gerðum
en þar mátti meðal annars sjá
Björgvin Pál Gústavsson, markmann
íslenska landsliðsins, og Aron
Pálmarsson, vonarstjörnu íslensks
handbolta. Ingó veðurguð lék
nokkur létt lög á kassagítar en
Sprengju hallar maðurinn
Atli Bollason lét sér fátt um
finnast og sat úti. Hins vegar
virtist Ásgeir Kolbeinsson,
sem sjálfur er að fara að
opna skemmtistað,
kunna vel við lagaval
Ingós þegar hann
spjallaði við nokkrar
yngismeyjar.
Ágúst Guðmundsson, kvikmynda-
gerðarmaður og formaður
Bandalags íslenskra listamanna,
sendi fjölmiðlum yfirlýsingu í
gær. Þar kom fram að stjórn BÍL
harmaði þá umræðu sem átt hefði
sér stað í kringum bókun hans og
Áslaugar Thorlacius í menningar- og
ferðamálaráði þegar ákveðið var að
tilnefna Steinunni Sigurðardóttur
sem borgarlistamann. Fréttablaðið
greindi frá bókuninni
sem virtist fara heldur
skakkt ofan í aðra
félagsmenn því nokkur
aðildarfélög BÍL lýstu
yfir stuðningi sínum við
Steinunni. Fatahönn-
uðurinn sjálfur hvatti
til sameiningar í
samtali við Fréttablaðið.
Jóhanna Guðrún verður á faralds-
fæti í lok þessa mánaðar því hún
verður ein af aðalstjörnum sérstaks
Eurovision-teitis sem Gay Pride-
gangan í Stokkhólmi
stendur fyrir dagana 27.
júlí-2. ágúst. Annars
hefur verið óvenju hljótt
um þjóðhetjuna eftir
að hún sneri heim
frá Moskvu með
silfrið í farteskinu og
menn eru því farnir
að vera ansi spenntir
að heyra um nýja
landvinninga söng-
fuglsins. - fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Nei, nei, þetta kemur mér ekkert
á óvart. Og ég á von á fleirum, það
er áhugi frá hinum enskumælandi
heimi. Ég held að þeir hafi þá til-
finningu að kannski hafi ég bara
hitt naglann á höfuðið hvað þessi
mál varðar,“ segir Einar Már
Guðmundsson rithöfundur. Þýsk-
ir, danskir og norskir útgefendur
hafa keypt útgáfurétt Hvítu bókar-
innar sem Einar sendi nýverið frá
sér. Hún rauk beint í efsta sæti
bóka lista Eymundssonar en þetta
er fjórða bókin um íslenska efna-
hagshrunið sem kemur út á skömm-
um tíma. Hvíta bókin velti Hruni
Guðna Th. Jóhannessonar úr sessi
en einnig hafa komið út Sofandi að
feigðarósi eftir Ólaf Arnar son og
Íslenska efnahagsundrið eftir Jón
F. Thoroddsen.
Einar segir að vinsældir þessara
bóka ættu ekki að vera neitt undr-
unarefni. Íslendingar séu að reyna
að skilja þennan veruleika sem nú
blasi við þeim. „Þetta eru líka allt
mjög ólíkar bækur. Sjálfur fann ég
fyrir því, þegar ég fór að tjá mig,
að það var mikill hljómgrunnur
fyrir mínum málflutningi. Ég segi
þetta bara blátt áfram og beint
út.“ Rithöfundurinn segist telja að
áhugi erlendra bókaútgefanda stafi
af því að í alþjóða efnahagskrepp-
unni finnist mönnum aðstæður
Íslendinga vera málið í hnotskurn.
„Mér finnst eins og mönnum þyki
ég vera að lýsa heimi sem er ann-
aðhvort á leiðinni til þeirra eða er
jafnvel til og á eftir að koma upp á
yfirborðið.“ Hvíta bókin sé þannig
upplifun hins venjulega Íslend-
ings af þessum sögulegu viðburð-
um sem hafi breytt íslensku sam-
félagi til frambúðar. „Þetta er bara
tilraun til að skilja þetta allt, þetta
eru svo mörg svið. Eitt er fjármála-
kerfið, annað eru stjórnmálaöflin
og svo er þriðji hlutinn hugsunar-
hátturinn. Og svo er það að tengja
alla þessi hluti saman.“
Einar viðurkennir að það sé
kannski svolítið fyndið að bókin
sé á leiðinni í útrás, þar sem það
orð hafi fengið frekar neikvæða
merk ingu eftir að bankarnir
hrundu. „Mér hefur samt tekist
að halda mér á svæðinu í þrjátíu
ár og kannski getur fjármálalíf-
ið bara lært af mér. Menn eiga
ekki að þurfa að mæta með ímynd-
að alvæpni og hrópa á torgum úti.
Sígandi lukka er best. Sá sem hefur
eitthvað fram að færa þarf ekki að
tilkynna það í gegnum hátalara eða
forseta.“ freyrgigja@frettabladid.is
EINAR MÁR GUÐMUNDSSON: ÍSLAND ER MÁLIÐ Í HNOTSKURN
Hvíta bókin seld til Þýska-
lands, Noregs og Danmerkur
HVÍTA BÓKIN Í ÚTRÁS Þýskir, norskir og danskir útgefendur hafa fest kaup á útgáfuréttinum að Hvítu bók Einars Más. Einar segist
telja að í alþjóða efnahagskreppunni finnist mönnum aðstæður Íslendinga vera málið í hnotskurn. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Auglýsingasími
– Mest lesið
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8
1 Faust.
2 Innsiglishringur úr gulli.
3 Bubbles.
2009
Lokað vegna sumarleyfa
1. júlí - 10. ágúst
Kynnið ykkur dagskrá haustsins
á www.gerduberg.is
Gerðubergi 3-5 ı 111 Reykjavík
Sími 575 7700 ı www.gerduberg.is