Fréttablaðið - 09.07.2009, Blaðsíða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
viðhald og viðgerðir
FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 2009
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Þetta eru nýjustu uppáhaldsföt-in mín,“ segir Oddur Sturluson barþjónn spurður um fötin sem hann klæðist. „Ég var úti í Berlín nýlega og keypti bolinn, peysuna og jakkann þar. Buxurnar keyptiég á Íslandi f
dýra merkjavöru. „Ég kaupi mér frekar eina áberandi flík sem fullkomnar stílinn og svo fylli ég upp í með einföldum fötum. Égvil vera virðuleg
það fara eftir skapi sínu hvern dag. „Ef ég sé föt í bíómynd sem mörgum finnast fáránleg þá kist é þ
Skóáhugi frá unga aldri
Oddur Sturluson hefur mikinn áhuga á tísku og segist hafa verið nörd sem hafði áhuga á skóm þegar
hann var yngri. Hann finnur ekki beint innblástur hjá hönnuðum en gengur þó í merkjavöru inn á milli.
Oddur Sturluson klæðist nýjustu uppáhaldsfötunum sem hann fékk að stærstum hluta til í Berlín fyrir stuttu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
MICHELLE OBAMA hefur unnið hug og hjörtu Rússa með
heillandi framkomu. Hún hefur ekki síður sýnt og sannað að
hún er með tískuna alveg á hreinu og hefur skartað hverri
glæsilegu flíkinni á fætur annarri í heimsókn sinni í Rússlandi.
Bonito ehf. Friendtex, Faxafen 10, 108 Reykjavík,sími: 568 2870 - www.friendtex.is
ÚTSÖLULOKÁ morgun föstudag
3 fyrir 2
Kaupir 2 fl íkur. Og færð eina fría með (ódýrasta fl íkin fylgir frítt með)Mikið úrval af eldri fatnaði á 1.000, 2.000 og 3.000 kr.Opið 1100-1800 mánud. til föstud.
•
•
•
•
•
34%
74%
Fr
ét
ta
bl
að
ið
M
or
gu
nb
la
ði
ð
Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18-49 ára.
Könnun Capacent í febrúar 2009 – apríl 2009.
Fréttablaðið er með 117%
meiri lestur en Morgunblaðið
Allt sem þú þarft...
FIMMTUDAGUR
9. júlí 2009 — 161. tölublað — 9. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
ODDUR STURLUSON
Þrífur skó sína með
sápu og tannbursta
• tíska • heimili
Í MIÐJU BLAÐSINS
VIÐHALD OG VIÐGERÐIR
Ástandsskoðun og
viðhaldsbækur
Sérblað um viðhald og viðgerðir
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Götuhátíð ungs fólks
Jafningjafræðsla Hins
hússins hleypir auknum
krafti í götuhátíð sína
sem haldin verður í
miðbæ Reykjavíkur
á morgun.
TÍMAMÓT 24
Laddi laminn
Blóðugar tökur
á kvikmyndinni
Jóhannes.
FÓLK 42
www.bt.is
BT bæklingurinn
VIÐSKIPTI „Ég þekki ekkert til þessa
máls og hef engin afskipti af því
haft. Ég er í viðkvæmri stöðu til
að tjá mig um málið; farandi með
eignarhald bankans, en sem hver
annar borgari þessa lands get ég
sagt eftirfarandi: Mér finnst þetta
um það bil vera síðasta lánið undir
sólinni sem ætti að afskrifa fyrr
en fullreynt er með innheimtur
á því,“ segir Steingrímur J. Sig-
fússon fjármálaráðherra spurður
um hugsanlega niðurfellingu láns
Björgólfsfeðga hjá Nýja Kaup-
þingi.
„Ég tek það fram að ég er að tjá
mig um þetta eins og hver annar
landsmaður, en ekki sem fjármála-
ráðherra sem hefur ekki átt neina
aðild að málinu og á ekki að hafa“,
ítrekar Steingrímur.
Gylfi Magnússon viðskiptaráð-
herra segir að það megi vel vera að
það sé réttlætanlegt að fella niður
hluta skulda í einhverjum tilvik-
um. „En mér svelgdist á þegar ég
sá að þarna var verið að ræða um
niðurfellingu á skuldum Björgólfs-
feðga vegna kaupa á Landsbankan-
um,“ segir Gylfi. „Þetta lán hefur
nú talsverða sérstöðu í Íslands-
sögunni. Ég ætti, eins og eflaust
landsmenn flestir, mjög erfitt með
að kyngja því ef það gengi eftir.“
Gylfi hefur ekki upplýsingar um
óskir annarra stórra skuldunauta
bankanna um stórfellda niðurfell-
ingu lána.
Eins og Fréttablaðið greindi frá
á þriðjudag hafa Björgólfur Guð-
mundsson og Björg ólfur Thor
Björgólfsson gert Nýja Kaupþingi
tilboð um að greiða fjörutíu til
fimmtíu prósent af tæplega sex
milljarða skuld þeirra feðga við
bankann. Skuldin er upphaflega
tilkomin vegna kaupa á 45,8 pró-
senta hlut ríkisins í Landsbank-
anum.
Krafa Kaupþings á hendur
Samson er 4,9 milljarðar króna
án dráttarvaxta en kröfulýsing-
in í þrotabú Samsonar er um 5,9
milljarðar með dráttarvöxtum og
öðrum áföllnum kostnaði, sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðs-
ins. Feðgarnir eru í persónuleg-
um ábyrgðum vegna skuldarinnar
og standi annar þeirra ekki undir
ábyrgð fellur hún á hinn. Kaupverð
á hlut Samsonar í hlut ríkisins í
Landsbankanum var 11,2 milljarð-
ar króna á sínum tíma.
Kaupþing sendi frá sér tilkynn-
ingu í gær þar sem hnykkt var á
því að engar ákvarðanir hafi verið
teknar um niðurfellingu lána. Hót-
anir gegn starfsfólki bankans, þar
á meðal Finni Sveinbjörnssyni
bankastjóra, var ástæða þess að
tilkynningin var send fjölmiðlum.
- shá / bj
Lánið er það síðasta undir
sólinni sem ætti að afskrifa
Steingrímur J. vill ekki tjá sig um niðurfellingu láns Björgólfsfeðga sem ráðherra. Sem „borgari þessa
lands“ fordæmir hann ósk feðganna. Viðskiptaráðherra svelgdist á þegar hann las fréttina um málið.
Bjart með köflum Í dag verður
frekar hæg suðlæg eða breytileg
átt, víða nokkuð bjart, síst þó
norðaustanlands. Þoka liggur víða
við strendur norðan og austan-
lands. Hlýjast austantil.
VEÐUR 4
14
16 16
20
14
31 árs gömul
met Valsmanna í
hættu
FH-ingar nálgast
óðum tvö langlíf
met í íslenska
boltanum.
Breyttar forsendur
„Væri allt með felldu, myndu
Danir, Finnar, Norðmenn og
Svíar ef til vill reyna að forða
Íslandi frá þeirri auðmýkingu og
þungbærum skaða, sem banka-
hrunið hefur valdið landinu,“
skrifar Þorvaldur Gylfason.
Í DAG 22
UTANRÍKISMÁL Utanríkismála-
nefnd Alþingis reyndi að komast
að málamiðlun um þingsálykt-
unartillögu um aðildarumsókn
að Evrópusambandinu á fundi
sem stóð fram eftir kvöldi í gær.
Niðurstöðu er að vænta í dag en
utanríkismálanefnd hittist aftur
klukkan hálf níu. Bjartsýni virð-
ist ríkja um að mögulegt verði
að ná lendingu þar sem önnur
umræða um málið hafði verið
sett á dagskrá þingsins í dag,
samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins.
Tvær tillögur um ESB-málið
hafa legið fyrir, önnur borin fram
af stjórnarflokkunum og hin af
stjórnarandstöðunni. Rætt hefur
verið um að sameina tillögurnar
í eina.
Eins og fram hefur komið er
ekki síst tekist á um hvort rétt
sé að gengið verði til tvöfaldrar
þjóðaratkvæðagreiðslu; um hvort
eigi að ganga til viðræðna og að
niðurstaða þeirra verði sett í
dóm þjóðarinnar þegar samn-
ingur liggur fyrir. Náist árangur
á morgunfundi getur afgreiðsla
málsins tekið stuttan tíma svo
jafnvel verði gengið til atkvæða
á morgun. - shá
Tekist á um aðildarumsókn að ESB á fundi utanríkismálanefndar í gærkvöldi:
Niðurstöðu er að vænta í dag
FRAMKVÆMDIR Vinna við Héðins-
fjarðargöng gengur vel, að sögn
Valgeirs Bergmanns, verkefnis-
stjóra Háfells við gangagerðina.
„Það er unnið af krafti núna í
vegagerð á Siglufirði, frá kaup-
staðnum og upp að gangnamunna.
Þar er útivinna í fullum gangi
í blíðskaparveðri og hún geng-
ur mjög vel. Síðan er unnið að
vegskálabyggingu í Héðinsfirði,“
segir Valgeir.
Vegskálinn er steypuvirki sem
gengur út úr fjallinu og er meðal
annars hugsað til að verja ganga-
munnann fyrir snjóflóðum. Búið
er að reisa 70 metra af 114 löng-
um skálanum.
Verkið sóttist hægt í vetur
vegna þess hve harður veturinn
var, en er nú á góðum rekspöl.
Verklok samkvæmt áætlun eru í
júlí 2010, en samkvæmt heimild-
um Fréttablaðsins er ekki líklegt
að sú áætlun standist. - sh
Vinna við Héðinsfjarðargöng:
Langt komnir
með vegskálann
GÓÐVIÐRISVINNA Á myndinni má sjá járnamenn sem vinna að því að járnabinda vegskálann Héðinsfjarðarmegin við göngin. Alls
starfa um sextíu manns við göngin, um fjörutíu frá Háfelli og um tuttugu frá tékkneska fyrirtækinu Metrostav. FRÉTTABLAÐIÐ / PJETUR