Fréttablaðið - 09.07.2009, Blaðsíða 29
FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 2009 3farið á fjöll ● fréttablaðið ●
„Það þarf að viðhalda gluggum
mjög vel og besta vörnin felst í að
mála þá reglulega,“ segir Þórð-
ur Árnason húsasmíðameistari í
Bjarnarási, sem hefur sérhæft sig í
gluggaviðgerðum og var beðinn um
góð ráð. „Númer eitt er að nota olíu-
málningu því vatn og timbur fer
ekki vel saman. Þó að akrýlmáln-
ing hafi ákveðna teygju og þoli vel
hreyfinguna á timbrinu þolir hún
vatn ekki vel og getur orðið til að
loka raka inni í timbri. Þegar gler-
listar eru rifnir af kemst maður
stundum að því að málningin hefur
verið eins og filma utan á og þar
undir er fúi. Það er mun betra að
málningin springi og hleypi rakan-
um út. Þá sjá eigendurnir að það
þarf að fara að mála aftur.“
Þórður mælir með því að mála
botnlista glugganna á tveggja ára
fresti því þeir verði fyrir mestu
áníðslunni. Hina listana nægi að
mála á fjögurra ára fresti. En hvað
á að gera ef móða er komin milli
glerja? „Það er alls staðar raki
kringum glerið og þegar líming-
in á því fer að gefa sig leitar hann
inn og myndar móðu. Stundum er
reynt að hreinsa móðuna en það
tekst misvel, sérstaklega ef hún
er orðin svolítið gömul því þá fara
að myndast sveppir og það er ekki
hægt að ná þeim í burtu. Margir
sem hafa látið móðuhreinsa gler-
ið hafa á tilfinningunni að það sé
kaldara inni hjá þeim á eftir, þó
vill Rannsóknarstofnun byggingar-
iðnaðarins ekki viðurkenna að það
verði nein breyting varðandi ein-
angrun. Ég veit ekki hvort vegur
þyngra, reynsla fólksins eða rann-
sóknir vísindamanna. En þegar
móða er komin milli glerja er gler-
ið ónýtt í mínum huga og þá á að
skipta.“ - gun
Málning besta vörnin
„Vatn og timbur fer ekki vel saman,“ segir Þórður Árnason húsasmíðameistari.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Botnlistana þarf að mála á tveggja ára
fresti.
Nú er hægt að fá virðisaukaskatt af vinnu við nýbyggingar og endurbætur á
húsnæði endurgreiddan að fullu. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
Hægt er að sækja um endur-
greiðslu virðisaukaskatts af
vinnu við nýbyggingar og endur-
bætur á húsnæði. Finna má
eyðublöð á www.rsk.is en þau
þarf að fylla út og skila á skatt-
stofu í viðkomandi umdæmi
ásamt frumriti
af reikning-
um og stað-
festingu á
að þeir hafi
verið greidd-
ir. Koma þarf
sk ý r t f r a m
hversu mikið var greitt fyrir
vinnuna og hver virðisauka-
skatturinn er af þeirri vinnu.
Endurgreiðslan var sex-
tíu prósent virðisaukaskatts
af vinnu en henni var nýlega
breytt í 100 prósent til að mæta
því ástandi sem nú er og örva at-
vinnulífið. Þannig er fólki auð-
veldað að ráða iðnaðar-
menn til verka.
Nánari upplýs-
ingar má finna
á www.rsk.is.
- hs
Endurgreiðsla virðisauka
Viðhaldsfríar
ÞAKRENNUR
Smiðjuvegi 4C
Box 281 202 Kópavogur
Sími 587 2202 Fax 587 2203
hagblikk@hagblikk.is www.hagblikk.is
Varmaskiptasamstæður
loftræstistokkar og tengistykki
Hágæða
HAGBLIKK ehf.
Þegar hús eru klædd með „viðhaldsfrírri“ klæðningu er nauðsynlegt að nota „viðhaldsfríar“ þakrennur.
Rennurnar frá Grövík Verk í Noregi eru gerðar úr 0,9 mm áli og tærast ekki, ryðga, né brotna.
Fyrsta rennan var framleidd árið 1956 og er enn í notkun.
Litir til á lager: Svartar, hvítar, rauðbrúnar og ólitaðar.
A
u
g
l.
Þ
ó
rh
ild
ar
1
4
6
0
.2
4
Plastás ehf framleiðir
einangrunarplast í veggi,
gólfplötu, sökkla,
gluggabretti, þök ofl.
Sími: 4627799 og fax 4627709 netfang er plastas@simnet.is.
Gerum verðtilboð um allt land.
Opið kl. 8.00-17.00 virka daga.
Smíðum lok á fl estar gerðir
heita potta, saumum nýtt og
gerum við skemmt áklæði!
GERUM VERÐTILBOÐ UM ALLT LAND.
OPIÐ KL. 8.00 - 17.00 VIRKA DAGA
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki