Fréttablaðið - 09.07.2009, Blaðsíða 25
FIMMTUDAGUR 9. júlí 2009 3
Að vanda taka hátísku-sýningar haust og vetr-ar við af herra-tísku komandi sumars hér
í tískuborginni í júlíbyrjun, að
þessu sinni frá 6.-8. júlí, einum
degi færri en áður sem segir
meira en mörg orð um stemn-
inguna. Líklega ekki heldur það
auðveldasta að selja um þess-
ar mundir, þessa handgerðu
kjóla og kvölddress sem oft þarf
fleiri hundruð, ef ekki þúsund-
ir vinnustunda til að sauma og
eru aðeins seldir eftir pöntun-
um og þar sem verðið hleyp-
ur oft á milljónum króna. Teikn
um kreppu sjást reyndar víða
á tískuhimninum og til dæmis
sýndi John Galliano hjá tísku-
húsi Dior í höfuð-stöðvum Dior
sem er að finna á dýrustu götu
Parísar, Avenue Montaigne, í
stað þess að leggja undir sig
sögufræga staði eins og Ver-
sali eða Grand Palais eins og
oft áður. Á tímum meistara Dior
tíðkaðist að bjóða viðskiptavin-
um í salarkynni tískuhússins
sem gátu þá nánast snert flík-
urnar á sýningarstúlkunum.
Fyrirsæturnar komu á sýningar
á mánudag líkt og beint úr mát-
unarklefum klæddar í undirföt
með sokkabelti og silkisokka,
líkt og til að sýna það sem er
undir áður en þær klæddust bíl-
hlössum af silki, satíni og org-
anza í fushía-bleiku, gulrauðu og
sítrónugulu.
Annað tískuhús þar sem nán-
ast má tala um sem krafta-
verk að tekist hafi að koma upp
hátískusýningu er hjá Christi-
an Lacroix. Í júní var tískuhús
Lacroix sett í greiðslustöðvun en
það er fjöldaframleidda tískul-
ínan (Ready-to-wear) sem hefur
gengið illa síðustu misseri. Lac-
roix sem leitar að fjárfestum
til að koma af stað nýju tísku-
húsi sínu fékk sérstakt leyfi hjá
skiptastjóra til að setja fimmt-
án þúsund evrur í sýninguna.
Margir hafa sömuleiðis verið
viljugir til að rétta hjálparhönd
eins og forstýra tískusafnsins
í París sem lánar safnið undir
sýninguna og fjölmargir hand-
verksmenn, sem sumir hverjir
hafa ekki fengið greitt frá jan-
úarsýningunni, hafa gert hina
fínustu útsauma og fjaðraskraut
sem þeir taka ekkert fyrir að
gera. Roger Viver lánar skóna en
hið fyrrum toppmódel og uppá-
hald Chanel-tískuhússins, Inès
de la Frésange sem því stýrir,
segist hafa miklar áhyggjur af
því að þessi handverkslist hverfi
með hátískunni hér í landi þar
sem tíska nálgast það að vera
listgrein. En stóra spurningin er
hvort þetta verði síðasta tísku-
sýning Christians Lacroix eða
hvort hann nái fótfestu að nýju.
Nýjasta hátískustjarnan er
Alexis Mabille sem er lofaður af
tískupressunni aðeins þrítugur
að aldri. Hann sækir innblást-
ur í rúmföt og útsaumaða vasa-
klúta ömmu sinnar sem breytast
í dýrindis kvöldkjóla. Þessi ungi
hönnuður er kannski lifandi
sönnun þess að hátískan lifir.
bergb75@free.fr
Hátíska í háska, Lacroix lokar, Dior sparar
ÚR HÁBORG TÍSKUNNAR
Bergþór Bjarnason skrifar frá París
Valgerður býr í Sönderborg í Dan-
mörku og vinnur hjá fatafyrirtæk-
inu Komagniet. Hún var í skyndi-
heimsókn á gamla Fróni og þá gafst
tækifæri til að forvitnast um feril-
inn. „Ég lærði fatahönnun í Kaup-
mannahöfn á árunum 2004 til 2006
og fór strax að leita mér að vinnu
í faginu. Hefði alveg verið til í að
búa áfram í Köben en flest hönn-
unarfyrirtækin eru á Jótlandi og
Kopmpagiet er eitt þeirra. Það sér
um hönnun á sex merkjum og vin-
kona mín úr skólanum fékk vinnu
við táningalínuna þar. Þegar starf
losnaði í barnafatadeildinni hvatti
hún mig eindregið til að koma. Ég
er ein og gat flutt mig hvert sem
var þannig að ég sló til og sé ekki
eftir því,“ lýsir hún.
KIDS-UP fötin eru seld á öllum
Norðurlöndunum, í Þýskalandi og
á Írlandi. Þau eru fyrir tveggja til
tíu ára börn af báðum kynjum. „Við
erum tvær sem
hönnum KIDS-UP
og gefum út sex
línur á ári, þrjár
fyrir sumarið og
þrjár fyrir vet-
urinn“ lýsir
Valgerður.
„Mitt starf felst í að teikna fötin
og skreytingar á þau. Síðan er allt
saumað í Asíu eða Tyrklandi og
þaðan fáum við prufur sendar til
að skoða og meta.“ En þarf ekki
að ákveða með löngum fyrirvara
hvaða efni á að velja og hvaða liti?
„Jú, það er dálítill höfuðverkur
því við þurfum að horfa minnst ár
fram í tímann. En við ferðumst út
í heim fyrir hverja einustu línu,
til London, Parísar eða New York
og skoðum líka heimamarkaðinn.
Förum líka á litasýningar og styðj-
umst við ráðleggingar fyrirtækja
sem leggja línurnar. Það er mikið
spáð í að hafa efnin þægileg og
við reynum að heilla bæði foreldr-
ana og börnin,“ segir hún og bend-
ir á heimasíðu fyrirtækisins www.
kids-up.com. Spurð hvort það jafn-
ist ekki á við stóran happdrættis-
vinning að fá svona starf svarar
Valgerður. „Jú, auðvitað er þetta
gaman og ég hef frjálsar hendur.
Það er líka skemmtilegt að ferð-
ast um heiminn og skoða tískuna.“
Bætir við hlæjandi. „Verst hvað ég
versla mikið sjálf þegar ég er allt-
af að skoða í búðum. Það er dálít-
ið dýrt.“
Valgerður er Garðbæingur og
er að lokum spurð hvort hún sakni
ekki Íslands. „Jú, auðvitað en það
er ekki langt að skreppa. Akkúrat
núna er ágætt að losna við að hlusta
á fréttirnar hér og vera hinum
megin við sundið.“ gun@frettabladid.is
Reynum að heilla bæði
foreldrana og börnin
Fatnaður barna þarf að falla að smekk þeirra og foreldranna. Þetta veit Valgerður Ottesen Arnardóttir
sem hannar barnaföt með merkinu KIDS-UP fyrir Evrópumarkað sem hér á landi fást í Hagkaupum.
Sætur bómull-
arkjóll með
rykkingu við
hálsmál-
ið og
smápífu
neðst.
Valgerður með KIDS-UP föt úr sumarlínunni í ár. Þau voru fengin að láni í Hagkaup-
um. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR