Fréttablaðið - 09.07.2009, Blaðsíða 16
16 9. júlí 2009 FIMMTUDAGUR
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Bíddu nú hægur
„Það ætti að vera sjálfsögð
krafa allra Íslendinga að
þingmenn fari af heilindum
að vinna sína vinnu.“
REYNIR TRAUSTASON, RITSTJÓRI DV
DV 7. júlí.
Rotturnar farnar?
„Augljóst er, að Steingrímur
J. Sigfússon, fjármálaráðherra
og formaður vinstri-grænna,
hefur ákveðið að binda sig
við siglutréð og sökkva með
stjórnarskútunni.“
BJÖRN BJARNASON, FYRRVERANDI
ALÞINGISMAÐUR
bjorn.is 6. júlí.
„Það er barasta allt ágætt að frétta af mér,“
segir Jón Svavar Jósefsson söngvari, járn-
ingamaður og starfsmaður á leikskólanum
Grænuborg við Eiríksgötu. „Ég er með mörg
járn í eldinum eins og venjulega, meðal
annars skeifur og börn.“
Jón vinnur hálfan daginn á
leikskólanum og fær þar að eigin
sögn nóg af hollum og góðum
mat að borða, þrátt fyrir niður-
skurð launa.
„Svo eru það auðvitað
forréttindi að vinna með
börnunum, sem eru
einlægir snillingar. Þess
á milli slæ ég skeifur
undir hross hér og þar
um höfuðborgarsvæðið,
frá Kjalarnesi til Skeiða. Svo
má ekki gleyma söngnum, sem hefur í
raun forgang hjá mér. Þar erum við að
tala um tilfallandi jarðar-farir, athafnir
og veislur, og næsta stórverkefni verð-
ur með Sinfóníuhljómsveit Íslands
næsta vetur. Þar mun ég syngja
ábótann í Carmina Burana eftir
Carl Orff.“
Jón hyggur á landvinn-
inga á næstunni. „Núna í
lok júlí er ég á leiðinni til
Berlínar í söngverkefna-
rannsóknir, og hef jafnvel
hug á að flytjast búferlum á vit
ævintýra. En tíminn marinerar
ákvarðanirnar og aurinn. Svo er
ég jafnvel að pæla í að skreppa í
bíó á næstu dögum,“ segir Jón Svavar
Jósefsson.
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? JÓN SVAVAR JÓSEFSSON SÖNGVARI
Syngur í Carmina Burana
■ Upphaflega
var vodka landi
Austur-Evrópubúa,
sá drykkur sem
bændur eimuðu úr
tiltæku hráefni, oft-
ast rúgi, en fátækari
bændur notuðu
kartöflur. Vodka
eins og við þekkjum það í dag,
er yfirleitt hreinn og bragðlítill
drykkur. Hægt er að eima vodka
úr korni, kartöflum eða hrásykur-
sýrópi. Vatn er yfirleitt um 60
prósent af rúmmáli vodka.
Samkvæmt stöðlum Evrópusam-
bandsins er lágmarksstyrkleiki
á vodka 37,5 prósent vínandi
miðað við rúmmál. HEIMILD: VINBUD.IS
VODKA
ÞARF 37,5 PRÓSENT
SAMKVÆMT ESB
„Ég næ ekki
upp í nefið
á mér yfir
síðasta útspili
Björgólfs-
feðga,“
segir Björn
Kristjánsson,
Borko, tón-
listarmaður
og kennari,
um þær fréttir
að feðgarnir
Björgólf-
ur Guð-
mundsson og Björgólfur Thor
Björgólfsson hafi gert Nýja-
Kaupþingi tilboð um niðurfell-
ingu á helmingi skuldar þeirra
við bankann vegna kaupa á
Landsbankanum á sínum tíma.
„Að ætlast til þess að lán sem þeir
tóku til að kaupa banka sem þeir
settu svo á hausinn sé afskrifað.
Siðleysið og ósmekklegheitin
virðast ekki eiga sér nein takmörk
þegar þessir menn eru annars
vegar. Ég vildi óska þess að ég
gæti tekið lán fyrir húsi, kveikt í því
og farið svo í bankann og beðið
um að lánið yrði fellt niður.“
SJÓNARHÓLL
NIÐURFELLING SKULDA
BJÖRGÓLFSFEÐGA
Engin
takmörk fyrir
siðleysinu
BJÖRN
KRISTJÁNSSON
„Upphafið að þessu verkefni var
það að mig vantaði eitthvað til að
halda mér við efnið í sumarfríinu.
Ég var alls ekki viss um hversu
mikla vinnu ég fengi, og ákvað því
að einbeita mér að þessu,“ segir
Ernir Eyjólfsson ljósmyndari,
sem stundar nám í ljósmyndum við
Tækniskólann. Síðan 1. júní hefur
Ernir tekið eina portrett-ljósmynd
á hverjum degi og hyggst halda
iðjunni áfram fram til 1. ágúst,
sem gera allt í allt 91 mynd. Ljós-
myndunum hleður Ernir svo inn á
flickr- og fésbókarsíðurnar sínar
á vefnum.
Ernir segir enga eina reglu gilda
um hvernig viðfangsefni hvers
dags séu valin. „Mikið til er þetta
fólk sem ég þekki, en stundum
labba ég bara upp að fólki og spyr
hvort ég megi taka mynd af því.
Svo spjalla ég við fólkið um daginn
og veginn og lýsi því aðeins í texta
sem birtist með myndunum.
Ernir hefur enn ekki ákveðið
hvað hann ætlar að gera við por-
trett-myndirnar þegar verkefn-
inu er lokið. „Mig langar að halda
sýningu á þeim. Það væri gaman,“
segir Ernir.
Verkefnið Portrett á dag getur
að líta á slóðinni www.flickr.com/
photos/ernireyj
- kg
Afkastamikill í fríinu:
Portrett
á dag
Knattspyrnufélagið Liverpool tekur
virkan þátt í uppsetningu og kynningu
á Nice-festival, árlegri lista- og menn-
ingarhátíð sem haldin er í Norðvestur-
Englandi. Ingi Þór Jónsson er fram-
kvæmdastjóri hátíðarinnar.
„Liverpool hefur lengi verið að leita leiða til
að þakka norrænum aðdáendum félagsins
fyrir mikinn stuðning undanfarin ár og ára-
tugi. Ég skrifaði klúbbnum bréf þar sem ég
útskýrði fyrir þeim það sem við höfum verið
að gera síðustu ár, og innan tíu mínútna kom
svar þar sem ég var boðaður á stjórnarfund
á Anfield Road. Það gekk alveg rosalega vel
og þeir eru mjög áhugasamir,“ segir Ingi Þór
Jónsson, framkvæmdastjóri Nice, norrænn-
ar lista- og menningarhátíðar sem árlega er
haldin í Norðvestur-Englandi.
Samningar hafa tekist milli Nice-hátíð-
arinnar og knattspyrnufélagsins Liverpool,
uppáhalds ótal margra íslenskra knattspyrnu-
unnenda, þess efnis að félagið styðji við
hátíðina og auglýsi dagskrá hennar á vefsíðu
félagsins og sjónvarpsstöð, Liverpool TV.
Samhliða verða einnig settar upp sýningar
á fótboltasafninu á Anfield Road, heimavelli
liðsins, með ýmsum norrænum áherslum.
„Fyrsta verkefnið er til dæmis að framleiða
heimildarmynd um norska knattspyrnumenn
sem leikið hafa með liðinu, og mörg fleiri
munu fylgja í kjölfarið,“ segir Ingi Þór.
Fyrsta Nice-hátíðin var haldin í Liverpool
fyrir síðustu áramót. Þar kenndi margra
norrænna grasa og voru íslenskir listamenn
einkar áberandi á dagskránni. Nú hefur verið
opnað fyrir umsóknir fyrir sýningar á stutt-
og heimildarmyndum frá Norðurlöndunum
sem sýndar verða á Nice09,
í Liverpool og Manchester,
í nóvember næstkomandi.
Ingi hvetur alla áhugasama
til að sækja um. „Þetta er
rosalega gott tækifæri fyrir
norræna listamenn. Það
sem margir vita ekki er
að öll áhersla BBC, breska
ríkisútvarpsins, er að fær-
ast frá London til Norður-
Englands, og því er þetta rétti staðurinn til
að vera á. Starf mitt er reyndar löngu hætt að
snúast eingöngu um listahátíðina heldur erum
við í alls kyns verkefnum sem öll miða að því
að kynna Norðurlöndin í Bretlandi. Við erum
í góðu samstarfi við ríkisstjórnir Norðurland-
anna, og nú nýlega bættust Færeyingar í hóp-
inn. Það er sérstaklega gaman að því þar sem
ég er hálfur Færeyingur,“ segir Ingi og hlær.
Spurður hvort hann fylgi Liverpool að
málum segir Ingi það að sjálfsögðu vera svo.
„Þetta er eina almennilega liðið, og frábært
að eiga í samstarfi við svona frábært félag,“
segir Ingi Þór Jónsson. kjartan@frettabladid.is
Liverpool auglýsir íslenska list
ANFIELD ROAD Liverpool er eitt allra vinsælasta knattspyrnuliðið á Norðurlöndunum, og nú hyggjast forráðamenn
félagsins endurgjalda stuðninginn. NORDICPHOTOS/AFP
INGI ÞÓR JÓNSSON
Iðinn við kolann Ernir Eyjólfsson ljósmyndari birtir eina portrettmynd á dag á netsíð-
um sínum. Hér að fyrir neðan eru tvö dæmi um myndir eftir hann. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
M
YN
D
/E
R
N
IR
E
YJ
Ó
LF
SS
O
N
M
YN
D
/E
R
N
IR
E
YJ
Ó
LF
SS
O
N