Fréttablaðið - 09.07.2009, Blaðsíða 35
FIMMTUDAGUR 9. júlí 2009 23
UMRÆÐAN
Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson svarar grein
Sigrúnar Elsu Smára-
dóttur.
Sigrún Elsa Smáradótt-ir birti grein í Frétta-
blaðinu sl. laugardag undir
fyrirsögninni „Friður í
borginni?“ Greinilegt er að borgar-
fulltrúanum líður illa í minnihlut-
anum í borgarstjórn. Í framhaldi
bankahrunsins og þeirra gífur-
legu efnahagsörðugleika sem hrun-
inu fylgdu sýndi minnihlutinn þá
ábyrgð að vinna með meirihlutan-
um að lausn mála. En minnihlutinn
er greinilega farinn að ókyrrast og
reynir nú með margvíslegum hætti
að tortryggja og gagnrýna flest
það sem meirihlutinn er að vinna
að hverju sinni og beitir í þeim til-
gangi ýmsum aðferðum.
Grein Sigrúnar einkennist að
mörgu leyti af ólund og rang-
færslum. Ennfremur má skilja af
umfjöllun hennar um mál að hún
og aðrir borgarfulltrúar Samfylk-
ingarinnar hafi þar hvergi komið
nærri. Meðal annars fullyrðir hún
nú að Orkuveita Reykjavíkur (OR)
hafi keypt hlut í Hitaveitu Suður-
nesja (HS) á yfirverði. Á sínum
tíma voru borgarfulltrúar sam-
mála um verðið, þar á meðal Sig-
rún Elsa Smáradóttir, sem sat
stjórnarfund OR 2. júlí 2007 þegar
samningurinn var samþykktur.
Hún fullyrðir einnig að átt hafi
að selja Geysi Green Energy eign-
ir Orkuveitunnar. Til álita kom á
þessum tíma hvort rétt væri að
selja REI og önnur verkefni OR á
erlendum vettvangi fyrir veruleg
verðmæti ásamt hlut OR í HS og
þjónustusamning til 20 ára, sem
var eingöngu tengdur erlendum
verkefnum. Öll verkefni erlendis
eru áhættusöm og hafa ekki enn
skilað nokkrum arði. Fyrir þjón-
ustu OR og starfsmanna fyrirtæk-
isins sem tengdust þeim verkefn-
um átti að greiða fullt verð fyrir.
Það er stefna OR, og um hana
full samstaða í borgarstjórn, að
aðskilja grunnstarfsemi OR algjör-
lega frá erlendum verkefnum, sem
ávallt fylgir töluverð áhætta.
Aldrei stóð til að selja nokkrar
eignir sem tengjast grunnstarf-
semi OR, hvað þá að einkavæða
OR. Undirritaður hefur
margsinnis lýst yfir þeirri
skoðun sinni að OR verði
alls ekki einkavædd.
Þar sem Sigrún Erla
Smáradóttir, borgarfull-
trúi og stjórnarmaður í
REI, kýs að ræða meðal
annars um málefni REI í
þessari „friðargrein“ sinni
væri ekki úr vegi að spyrja
hana hvers vegna fulltrú-
ar Samfylkingar og VG tóku þátt í
því í byrjun 100 daga meirihlutans
í nóvember 2007 að samþykkja að
REI fengi að kaupa hlutafé í ríkis-
reknu orkufyrirtæki á Filippseyj-
um sem stóð í einkavæðingarferli.
Kaupa átti hlutafé fyrir hvorki
meira né minna en 12,5 milljarða
króna (sem er álíka upphæð og
t.d. kostar að byggja 40 leikskóla
í Reykjavík). Þetta mál var aldrei
kynnt í borgarráði og Borgarstjórn
Reykjavíkur eða fyrir borgarfull-
trúum almennt, þrátt fyrir fagrar
yfirlýsingar ýmissa borgarfull-
trúa, sem nú skipa minnihlutann
í borgarstjórn, um mikilvægi
þess að öll verkefni og viðfangs-
efni skuli þola opna og gagnrýna
umræðu. Ef það hefði gengið eftir
að kaupa hlutabréfin væri REI/OR
búið að tapa á annan tug milljarða
króna.
Athyglisvert er að fulltrúi VG í
stjórn OR, en Svandís Svavarsdótt-
ur var á þeim tíma oddviti VG, hafi
samþykkt að ráðstafa 12,5 millj-
örðum króna í kaup á hlutabréfum
í orkufyrirtæki á Filippseyjum,
sem stóð í einkavæðingarferli.
Á næstunni mun undirritað-
ur fjalla frekar um síðastnefnda
málið og umræðuna um REI.
Höfundur er forseti
borgarstjórnar.
SEND IÐ OKK UR LÍNU
Fréttablaðið og Vísir hvetja lesendur til
að senda línu og leggja orð í belg um
málefni líðandi stundar. Greinar og
bréf skulu vera stutt og gagnorð. Tekið
er á móti efni á netfanginu greinar@
frettabladid.is eða á vefsíðu Vísis, þar
sem finna má nánari leiðbeiningar.
Ritstjórn ákveður hvort efni birtist í
Fréttablaðinu eða Vísi eða í báðum
miðlunum að hluta eða í heild.
Áskilinn er réttur til leiðréttinga og til
að stytta efni.
Golfveisla
WWW.ICELANDAIR.IS
A
ug
lý
si
ng
as
ím
i
– Mest lesið
VILHJÁLMUR Þ.
VILHJÁLMSSON
Er friðurinn úti hjá
minnihlutanum?