Fréttablaðið - 09.07.2009, Side 8
8 9. júlí 2009 FIMMTUDAGUR
1 Hversu margar húsleitir
voru gerðar á vegum sérstaks
saksóknara á þriðjudag?
2 Hvaða athafnamaður hefur
stefnt breska ríkinu fyrir mistök
í meiðyrðamáli?
3 Við hvaða útgáfufyrirtæki
hefur Jóhanna Guðrún Jóns-
dóttir gert samning?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 42
- Lifið heil
www.lyfja.is
Lyfja lækkar verðið
20% afsláttur af öllum Scholl vörum í verslunum Lyfju í júlí.
4
10
4
0
0
0
|
l
an
ds
ba
nk
in
n.
is
AUKAKRÓNUR
2685 mínútur á ári
fyrir Aukakrónur
A-kortin
Kreditkort sem safna Aukakrónum fyrir þig
Þú getur talað í 2685 mínútur á ári hjá TALI fyrir Aukakrónurnar sem safnast
þegar þú notar A-kortið þitt – eða fengið þér eitthvað annað sem þig langar í hjá
samstarfsaðilum Aukakróna.
Sæktu um A-kort á www.aukakronur.is
* M.v. 150 þúsund kr. innlenda verslun á mánuði, þ.a. 1/3 hjá samstarfsaðilum.
Sjá nánar á www.aukakronur.is.
*
SVEITARSTJÓRNARMÁL Rekstrarniður-
staða sveitarfélaganna fyrir árið
2008 sýnir að viðsnúningurinn
frá árinu á undan er neikvæður
um 68 milljarða króna. Afkoman
er lökust hjá sveitarfélögunum á
höfuðborgarsvæðinu utan Reykja-
víkur og á svokölluðum vaxtar-
svæðum.
Bráðabirgðaniðurstöður úr árs-
reikningum sveitarfélaga sem
hafa rúm 88 prósent íbúanna hafa
borist Sambandi íslenskra sveitar-
félaga (SÍS). Ljóst liggur fyrir að
verðbólgan og efnahagshrunið
hafa haft mikil áhrif á rekstur og
efnahag sveitarfélaganna. Tekjur
sveitarfélaganna dragast saman
á sama tíma og útgjöld fara vax-
andi. Lán hækka vegna verðbólgu
og hruns krónunnar. Það þýðir að
fjármagnsliðir munu taka meira
til sín á komandi árum en hingað
til. Það mun að óbreyttu þýða að
sveitarfélögin verða að leita allra
leiða sem færar eru til að láta
enda ná saman í rekstri sínum og
að forgangsröðun verði önnur.
Halldór Halldórsson, formað-
ur SÍS og bæjarstjóri á Ísafirði,
hefur fyrir hönd sambands-
ins reynt að vinna svokallaðri
fimm prósenta leið brautar-
gengi. Hann segir að mörg sveit-
arfélög hafi gripið til víðtækra
sparnaðaraðgerða nú þegar. Eins
segir hann að staða nokkurra
sveitarfélaga sé svo alvarleg að
líklega þurfi að beita sérstökum
aðgerðum til að hjálpa þeim yfir
erfiðasta hjallann.
Rekstrarniðurstaða ársins 2008
er neikvæð um 19,6 milljarða en
árið 2007 var hún jákvæð um 48,6
milljarða. Viðsnúningurinn er 68
milljarðar. Afkoman er lökust hjá
sveitarfélögum á höfuðborgar-
svæðinu utan Reykjavíkur og á
vaxtarsvæðum.
Áhrif hruns krónunnar og mik-
illar verðbólgu koma glöggt fram í
efnahagsreikningi í hækkun áhvíl-
andi lána. Skammtímaskuldir
hækkuðu úr 40,1 milljarði á árinu
2007 upp í 46,4 milljarða á árinu
2008. Á sama tíma hækkuðu lang-
tímaskuldir úr 58 milljörðum á
árinu 2007 upp í 106 milljarða á
árinu 2008. Það er hækkun um 83
prósent.
Hrun krónunnar og mikil verð-
bólga hafa mikil áhrif á fjár-
magnsliði. Á árinu 2007 var
útkoma úr fjármagnsliðum
jákvæð um fjóra milljarða en á
árinu 2008 var hún neikvæð um
tæpa sautján milljarða. Verulegur
hluti þessa er áhrif af breytingum
á lánum sem eru í erlendri mynt.
Meðan gengisvísitala íslensku
krónunnar er svo há sem raun ber
vitni gengur þessi breyting ekki
til baka, eins og segir í fréttabréfi
SÍS.
svavar@frettabladid.is
Hrikalegar tölur úr
rekstri sveitarfélaga
Viðsnúningur í rekstri sveitarfélaganna á milli áranna 2007 og 2008 var 68
milljarðar króna. Langtímaskuldir hækkuðu um 86 prósent á milli ára. Sveitar-
félög þurfa að grípa til yfirgripsmikilla aðgerða til að rétta úr kútnum.
FRÁ VATNSENDA Sveitarfélög höfðu miklar tekjur af sölu byggingaréttar árið 2007.
Árið 2008 kom bakslag og sveitarfélög þurftu að endurgreiða háar fjárhæðir vegna
lóðaskila. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
STJÓRNSÝSLA „Við veltum vöngum
yfir hvernig þetta mál þróaðist,“
segir Ragnar Lárus Kristjánsson,
forstöðumaður hjá verðbréfafyrir-
tækinu Virðingu, sem Reykjavíkur-
borg hafi falið að útvega fimm
milljarða króna lánsfé gegn veði í
fasteignum borgarinnar.
„Við vorum tilbúnir með þetta
fjármagn samkvæmt þeim skil-
yrðum sem lagt var upp með en
síðan breyttust forsendur á síðustu
stundu hjá borginni og þeir ákváðu
að fara aðra leið,“ segir Ragnar.
Eins og fram hefur komið í
Fréttablaðinu heldur minnihlutinn
í borgarráði því fram að Virðing
hafi getað selt borginni fyrir 17,5
milljónir króna sömu þjónustu og
MB banki tók síðan 42,5 milljóna
umsýsluþóknun fyrir. Fjármála-
stjóri borgarinnar, Birgir Björn
Sigurjónsson, segir hins vegar að
Virðing hafi ekki getað selt samtals
fimm milljarða króna skuldabréf á
4,4 prósenta vöxtum án þess að veð
yrðu tekin í eignum borgarinnar.
Ragnar segir að haft hafi verið
samband við Virðingu rétt fyrir
borgarráðsfund og spurt hvort
þeir lífeyrissjóðir sem fyrirtæk-
ið hafði útvegað sem lánveitendur
myndu samþykkja að fá ekki veð í
eignum borgarinnar. Því hafi sjóð-
irnir hafnað. „Síðan var ekkert haft
samband við okkur aftur. Við töld-
um okkur vera að vinna að þessu
verkefni og finnst óeðlilegt hvern-
ig það þróaðist á síðustu stundu,“
segir Ragnar Lárus Kristjánsson.
- gar
Virðing segir Reykjavíkurborg hafa hætt við tilbúinn lánapakka á síðustu stundu:
Óeðlilegt hvernig lántakan þróaðist
RÁÐHÚSIÐ Í REYKJAVÍK Forstöðumaður
hjá Virðingu segir fyrirtækið hafa verið
tilbúið með umbeðið lánsfé en borgar-
yfirvöld hafi þá tekið nýja stefnu.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
UMHVERFISMÁL Fyrirtækið Egils-
son hf. á Köllunarklettsvegi hlaut
umhverfisverðlaun Faxaflóa-
hafna sem bera nafnið Fjöru-
steinninn.
Fjörusteinninn er veittur þeim
fyrirtækjum sem þykja skara
fram úr við frágang umhverf-
isins og hafa haft metnað til að
byggja falleg hús á hafnarsvæð-
inu.
Fyrsta fyrirtækið sem hlaut
Fjörusteininn var Danól hf.,
síðan fékk Eimskipafélagið viður-
kenninguna og í fyrra þótti Nath-
an og Olsen best að verðlaunun-
um komið.
- shá
Umhverfisverðlaun:
Egilsson hlaut
Fjörusteininn
VEISTU SVARIÐ?