Fréttablaðið - 09.07.2009, Page 38
26 9. júlí 2009 FIMMTUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Við maðurinn minn erum búin að vera bíllaus í nokkra daga. Ég kann reyndar ekki að keyra, er svo heppin að hafa
hálfgerðan einkabílstjóra sem ég níðist á.
Þegar við hugsuðum okkur tíu daga án bíls
sáum við ekki fram á að það yrði nokkurt
mál. Við getum labbað í Bónus, vinnuna og á
æfingar. Förum létt með það. Hér var komið
gullið tækifæri til að hreyfa okkur meira,
kynnast hugsanlega strætókerfinu aðeins og
njóta útiverunnar.
Það er skemmst frá því að segja að ég, bíl-
prófslausa konan, sakna bílsins pínulítið. Ég
gleymi því að við séum ekki á bíl þegar
ég skipulegg daginn, man ekki að
ég er fjörutíu mínútur að labba
úr Hlíðunum niður á Granda
og þó að maður svitni fyrir
framan tölvuna geti manni
allt eins orðið kalt þegar út
er komið. Ég, sem hef labbað
eða tekið strætó allt mitt líf, hvert sem ég
hef þurft að fara, kann það ekki lengur.
Það er ekki þægilegt að uppgötva að
maður tekur einhverju sem sjálfsögðum
hlut. Hvað þá ef það er hlutur sem maður
hefur stoltur sagst hafa lítil not fyrir hingað
til. Það er hægt að ánetjast hverju sem er.
Svo er hægt að venja fólk af öllu aftur.
Það er reyndar ekki um auðugan garð
að gresja þegar kemur að því að laga bíla-
fíkn. Ekki hjálpar strætókerfið manni; ég er
reyndar farin að efast um að það sé í raun
til. Allir strætóar sem ég sé eru ekki á leið,
eða birtast úr engu eins og strætóar galdra-
mannanna í Harry Potter.
Þá er bara að labba. Það venst. Svo verður
það pínulítið gaman, maður hugsar meira
á leiðinni en ella og slakar aðeins á. Tekur
með sér góða tónlist í staðinn fyrir að skipta
á milli stöðva, kemst í gott skap. Einn dag í
einu, bíllaus.
Ég heiti Kolbrún og ég er bílafíkill
NOKKUR ORÐ
Kolbrún Björt
Sigfúsdóttir
Í alvörunni, ég
hrífst mjög af þér.
GAMALT OG GOTT BARNALÁN
Hmmm?
Drullupollur
á miðjum
veginum!
Einhvern daginn mun ég
ekki geta staðist það að
hoppa út í hann!
Næst geri ég
það á leiðinni
heim úr vinnu!
Öh...
Það er bara einn
eyrnalokkur
hérna, Palli.
Nei bíddu -
Það er
eitthvað
meira.
Inneignarn ta En
sætt!
Það átti
að standa
inneignar-
nóta.
Penninn
lak.
Hneta!
Þúsund þakkir.
Allir í bað! Við þurfum
ekki að fara í
bað!
Jú, þið
þurfið þess...
koma svo!
Ekki bað!
Ekki bað!
Ekki bað!
Við hefðum unnið
þetta rifrildi ef
einhver hefði ekki
verið með hálfan
sandkassann í
bleyjunni. Fyrirgefðu.
Uppruni
hafmeyja
ÞAKKLÆTI
Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18-49 ára. Könnun Capacent í febrúar 2009 – apríl 2009.
Fréttablaðið
stendur upp úr
Fréttablaðið er sem fyrr mest lesna dagblað
landsins með glæsilegt forskot á samkeppnis-
aðila sinn eins og síðasta könnun Capacent
Gallup ótvírætt sýnir. Við erum auðvitað rífandi
stolt af þessum góða árangri og bendum
auglýsendum á að notfæra sér forskot okkar
þegar þeir velja auglýsingamiðil.
Allt sem þú þarft...
34%
74%