Fréttablaðið - 09.07.2009, Qupperneq 42
30 9. júlí 2009 FIMMTUDAGUR
bio@frettabladid.is
Svo virðist sem nýjasta tískan í Hollywood séu kvikmyndir og sjón-
varpsþættir frá níunda áratugnum. Nýlega var tilkynnt að gera ætti
kvikmynd eftir sjónvarpsþáttunum The A-Team og í vikunni varð
ljóst að lögregluhetjan T.J. Hooker myndi rata á hvíta
tjaldið.
Aðdáendur Strandvarðanna eða Bay-watch ættu
síðan að halda niðri í sér andanum því Paramount-
kvikmyndaverið hefur fengið handritshöfundinn Jer-
emy Garelick til að skrifa handrit eftir sjónvarpsþátt-
unum þar sem fáklæddir og stæltir strandverðir
trylltu karl- og kvenþjóð heims með hægum
hlaupaatriðum eftir strandlengjunni í rauð-
um sundfötum, svo ekki sé minnst á björg-
unarhringina góðu.
Garelick þessi hefur náð nokkrum frama
í kvikmyndaborginni enda er hann maður-
inn á bak við handritið að kvikmyndinni
The Hangover sem nú hefur skilað nokkr-
um milljörðum dala í gróða. Forstjóri
Paramount, Adam Goodman, er síðan mik-
ill aðdáandi Baywatch og tók verkefnið með
sér frá Dream Works. Hann vildi ólmur nýta
sér krafta Garelicks til að koma hugmyndinni
á koppinn og því gætu nýjar Pamelur, Yasmine
Bleeth og Tracy Bingham litið dagsins ljós
áður en langt um líður, svo ekki sé talað um
nýjan David Hasselhoff, enda ólíklegt að sá
gamli fái að endurtaka hlutverk sitt.
Garelick hefur hins vegar viðurkennt í sam-
tölum við fjölmiðla að hann hafi ekki séð einn
einasta Baywatch-þátt, og mönnum þykir það
nokkuð djörf yfirlýsing. „Þarna er hins vegar
komið tækifæri til að heiðra mitt eftirlætisgrín;
Police Academy og Stripes,“ sagði Garelick. við
Variety.
Grín og gaman fékk algjör-
lega nýja ásjónu með kvik-
myndinni Borat þar sem
Sacha Baron Cohen brá sér
í líki sjónvarpsmannsins
frá Kasakstan. Sacha Baron
er mættur aftur en nú sem
austurríska tískugúrúið
Brüno. Myndin verður
frumsýnd í kvikmyndahús-
um um helgina.
Söguþráðurinn í Brüno er ósköp
einfaldur. Tískugúrúið heldur því
fram, fullum fetum, að hann sé
vinsælasti sjónvarpsmaðurinn í
hinum þýskumælandi heimi, það
er að segja fyrir utan Þýskaland.
Hann á sér stóra drauma, meðal
annars að verða frægasti Austur-
ríkismaðurinn síðan Adolf Hitler
var og hét og í þeim erindagjörð-
um heldur hann í mikinn leiðangur
til að sigra heiminn.
Sacha Baron byrjaði að þróa
þennan húmor í kringum The Ali
G Show þar sem bæði Borat og
Brüno birtust í fyrsta skipti. Þætt-
irnir voru sýndir á RÚV og virðast
hafa haft töluverð áhrif sem birt-
ist hvað skýrast á Skjá einum þar
sem persónur á borð við Frímann
Gunnarsson, Johnny National og
Silvíu Nótt fóru á kostum.
Þegar sjónvarpsformið hafði
gengið sér til húðar hjá Sacha snéri
hann sér að hvíta tjaldinu. Fyrst-
ur á dagskránni var höfuðpaurinn
Ali G. Myndin náði ekki tilætluð-
um hæðum þrátt fyrir miklar vin-
sældir sjónvarpsþáttarins en hún
reyndist ágætis æfing fyrir kvik-
myndina Borat. Sacha sýndi þar
að hann hafði náð nokkuð góðum
tökum á formi sem kallast mocku-
mentary. Honum fórst verkefnið
svo vel úr hendi að viðmælendur
hans grunaði aldrei að Borat væri
grínari frá Bretlandi heldur trúðu
þeir því, heitt og innilega, að hann
væri fáfróður útlendingur frá van-
þróuðu landi.
Viðtökurnar við Brüno hafa
verið nokkuð góðar þótt hugmynd-
in sé sú sama og bak við Ali G og
Borat; að koma fólki inn í aðstæð-
ur sem það hefði aldrei komið sér
út í af fúsum og frjálsum vilja
og kalla fram viðbrögð sem það
myndi aldrei sýna á venjulegum
degi. Sacha virðist hins vegar hafa
náð fullkomnu valdi á þessari list
þótt sú fullkomnun krefjist þess að
hann sé í hlutverkinu allan sólar-
hringinn, nánast samfleytt í þrjá
mánuði, og hafi á stundum stofnað
lífi sínu í mikla hættu.
Það er þó ekki eintómur hallel-
úja-kór í kringum Sacha Baron.
Sumir halda því fram að hann
hafi gengið einum of langt í
Brüno. Samtök samkynhneigðra í
Bandaríkjunum hafa þannig lýst
því yfir að kvikmyndin geti sett
strik í áralanga baráttu homma.
Hún stuðli að því að hommar verði
aftur að einhverjum steríó-týpum
í augum almennings. Sacha Baron
hefur ekki getað svarað fyrir þær
ásakanir enda er hann enn fast-
ur í hlutverki Brüno og verður
það eitthvað fram eftir ári. Hann
hefur reyndar haft það til siðs að
tjá sig ekki um kvikmyndir sínar
þegar þær hafa verið frumsýnd-
ar enda hafi hann lítið með mynd-
irnar að gera; þær séu verk Ali G,
Borats eða Brüno.
Brjálæðið í kringum Brüno
Framhaldsmyndin Transformers: Revenge of the
Fallen stóðst áhlaup frá bæði risaeðlum og Dilling-
er. Myndin hefur nú verið á toppi vinsældalistans í
Bandaríkjunum í þrjá vikur, þrátt fyrir að aðsókn-
in hefði hrapað um 62 prósent á milli vikna. Hvort
gáfulegar deilur Michaels Bay og Megan Fox hafi
haft eitthvað um málið að segja er allsendis óvíst en
Fox sendi leikstjóranum tóninn fyrir að láta leiklist-
ina víkja fyrir tæknibrellum. Bay svaraði fyrir sig
og bað Fox um að þroskast, hún skyldi þar að auki
átta sig á því að hann ætti heiðurinn af ferli hennar.
Í öðru sæti listans í Bandaríkjunum er síðan Ice
Age: Dawn of the Dinosaurs en fyrri myndirnar
tvær nutu gríðarlegra vinsælda. Myndin var frum-
sýnd í síðustu viku en fíllinn Manny hafði ekki roð í
Optimus Prime.
Það hafði heldur ekki John Dillinger eða Johnny
Depp í Public Enemies sem leikstýrt er af Michael
Mann. Kannski var hugsunin heldur aldrei að ná
toppsætinu þótt varla sé þverfótað fyrir stjörnum
í myndinni og slíkt hefur alltaf þótt líklegt til vin-
sælda. Depp hefur fengið prýðilega dóma fyrir
frammistöðu sína í myndinni og gagnrýnendur hafa
tekið þessu verki Manns opnum örmum. Enda hefur
leikstjórinn alltaf verið í hávegum hafður á þeim
bænum.
The Proposal með Söndru Bullock hirti fjórða
sætið en í því fimmta er The Hangover, einhver
óvæntasti grínsmellur síðari ára.
Transformers stóðst áhlaupið
EKKERT SKÁKAR FOX Transformers sitja enn á toppnum í
Bandaríkjunum þrátt fyrir að aðsóknin hafi hrunið um 62
prósent á milli vikna.
Samkvæmt vef kvikmyndatímaritsins
Empire er George Clooney sagður
vera áhugasamur um að taka að sér
hlutverk leyniþjónustumannsins Jack
Ryan. Ryan þessi er þekktasta per-
sóna bandaríska rithöfundarins Tom
Clancy og hefur svo sem áður birst
á hvíta tjaldinu í líki Alecs Baldwin,
Harrisons Ford og nú síðast Bens
Affleck í Sum of All Fears.
Clooney hefur komið áhuga
sínum á framfæri við Paramount-
kvikmyndaverið en kvikmynda-
áhugamenn hafa verið nokkuð undr-
andi á því af hverju ekki hafi verið
gerðar fleiri kvikmyndir um Ryan í
ljósi vinsælda fyrirrennaranna. Þá
skrifar blaðamaður Empire að Para-
mount-menn ættu að hysja upp um sig
buxurnar, fá mann til að skrifa handrit-
ið og hefjast handa sem fyrst með Cloon-
ey innanborðs enda sé hann tilvalinn í
hlutverkið.
Paramount ku þó hafa verið á höttun-
um eftir yngri leikara til að reyna sig
við Ryan en sú leit hefur engan árangur
borið. Aðkoma Clooney gæti reynst gulls
ígildi enda hefur leikarinn sýnt og sann-
að að hann er nokkuð örugg fjárfesting
þegar kemur að því að telja krónurn-
ar í kassanum.
Clooney orðaður við Jack Ryan
Í FÓTSPOR FORD George Cloon-
ey hefur lýst yfir áhuga sínum á
að leika Jack Ryan, eina þekkt-
ustu persónu Tom Clancy.
> DRAUMABYRJUN
Rupert Saunders, fremur óþekktur
leikstjóri, gæti fengið draumabyrj-
un á ferli sínum því Leonardo
DiCaprio og Ridley Scott hafa
áhuga á að fá hann til að leik-
stýra kvikmyndinni The Low
Dweller sem þeir eru að vinna
að saman. Saunders hefur
getið sér gott orð fyrir auglýs-
ingar sínar en ætlar að reyna
fyrir sér á stóra sviðinu með
engum smá köppum.
Skriður kominn á
Baywatch-myndina
OF LANGT GENGIÐ?
Mörgum þótti Borat vera
á mörkum þess að vera
fyndið eða hreinlega
móðgandi og fordóma-
fullt. Sennilega var það
þess vegna sem svo
margir sprungu úr hlátri.
Brüno þykir ganga enn
lengra og einhverjir óttast
að myndin setji jafnvel
strik í áralanga ímyndar-
baráttu homma í
Bandaríkjunum.
Á HVÍTA TJALDIÐ David Hasselhoff og vinir í Bayw-
atch verða loks að kvikmynd. Handritshöfundurinn
Jeremy Garelick mun leikstýra kvikmyndinni.