Fréttablaðið - 09.07.2009, Blaðsíða 45
FIMMTUDAGUR 9. júlí 2009
Viltu vita Sannleikann?
60 uppseldar sýningar
Snilldareinleikur Péturs Jóhanns, Sannleikurinn, hefur slegið
rækilega í gegn í sumar en nú er komið að síðustu sýningunni á
stóra sviði Borgarleikhússins.
Vodafone býður GSM viðskiptavinum sínum 1.000 kr. afslátt af
miðaverði og fá þeir því miðann á 2.450 kr.
Til þess að nýta afsláttinn þurfa viðskiptavinir Vodafone að
framvísa GSM símanum sínum í miðasölu Borgarleikhússins.
Misstu ekki af síðustu sýningunni:
Laugardaginn 11. júlí
Nánari upplýsingar á vodafone.is og borgarleikhus.is.
Góða skemmtun í allt sumar.
Lifðu núna
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Fimmtudagur 09. júlí 2009
➜ Sumartónleikar
Sumartónleikar í
Skálholtskirkju, 4. júlí
- 6. ágúst. Aðgangur
ókeypis. Nánari
upplýsingar á www.
sumartonleikar.is.
20.00 Skálholts-
kvartettinn flytur
Dauðinn og stúlkan eftir F. Schubert og
op. 9 nr. 5 eftir F.J. Haydn.
➜ Tónleikar
12.15 Jörg Sondermann organisti
og Halla Dröfn Jónsdóttir Sópran-
söngkona flytja verk eftir m.a. Bach og
Rheinberger á hádegistónleikum í Dóm-
kirkjunni við Austurvöll.
20.00 Kammerkórinn Schola cant-
orum heldur tónleika í Hallgrímskirkju
við Skólavörðuholt. Á efnisskránni verða
verk eftir Felix Mendelssohn-Bartholdy
auk þess sem kórinn flytur ýmsar
íslenskar og erlendar perlur a capella
kórtónlistar.
20.00 Aarhus Universitetskór held-
ur tónleika í Fella- og Hólakirkju við
Hólaberg. Tónleikarnir bera yfirskriftina
„Perlur norðursins“ en á efnisskránni
verða verk eftir norræn tónskáld.
21.00 Deep Purple tribute spila á
Græna Hattinum við Hafnarstræti á
Akureyri. Húsið verður opnað kl. 20.
21.30 Ingvi Rafn-quartet flytur eigið
efni ásamt öðru í bland á tónleikum
í Deiglunni við Kaupvangsstræti 23 á
Akureyri.
22.00 Seinni útgáfutónleikar hljóm-
sveitarinnar Leaves verða á Nasa við
Austurvöll.
22.00 Coxbutterkvöld verður haldið á
Jacobsen við Austurstræti. Fram koma
Max & The Crackers, rapparinn 7Berg
og Audio Improvemnet. Gangreen og
Hypno munu sjá um stuðið á neðri
hæðinni. Aðgangur er ókeypis.
➜ Opnanir
18.00 Soffía Gísladóttir og Elsa Björg
Magnúsdóttir opna ljósmyndasýning-
una „Ljósmyndir í lit“ á Thorvaldsen
Bar við Austurstræti. Sýningin er opin
alla daga kl. 10-01.
20.00 Í Gerðarsafni við Hamraborg 4 í
Kópavogi verður opnuð sýning á verkum
Gerðar Helgadóttur og Valtýs Péturs-
sonar. Safnið er opið alla daga nema
mánudaga kl. 11-17. Aðgangur er ókeypis.
➜ Göngur
19.00 Gönguvika stendur yfir á
Akureyri og í kvöld mun Frímann
Guðmundsson leiða göngu um Hlíðar-
fjall. Gangan tekur um 2-3 klst. og er
við hæfi flestra. Aðgangur er ókeypis.
Brottför verður frá skrifstofu Ferðafélags
Akureyrar við Strandgötu 23. Nánari
upplýsingar á www.visitakureyri.is.
20.00 Ljósmyndasafn
Reykjavíkur stendur
fyrir sögugöngu um
gamla Vesturbæinn
með Helga Þorlákssyni
sagnfræðingi. Þátttaka er
öllum heimil. Lagt verð-
ur upp frá anddyri
Borgarbókasafnsins
í Tryggvagötu.
➜ Menningardagskrá
101 TOKYO, japönsk menningardagskrá
13 júní-13. júlí í Norræna húsinu við
Sturlugötu. Aðgangur er ókeypis. Nánari
upplýsingar www.101tokyo.is
20.00 Leif Högfeldt Hansen arkitekt
og prófessor við Arkitektaskólann í
Árósum heldur fyrirlestur um áhrif hefð-
bundinnar japanskrar byggingarlistar á
verk Alvars Aalto.
➜ Leiðsögn
20.00 Alda Sigurðardóttir verður með
leiðsögn um sýninguna „Ferjustaðir“ í
Hellisskógi við Selfoss en þar sýna 11
myndlistarmenn verk á víð og dreif í
skóginum. Aðgangur er ókeypis og allir
velkomnir. Nánari upplýsingar á www.
ferjustadur.is.
➜ Myndlist
Jón Baldvinsson
hefur opnað sýn-
ingu í Perlunni við
Öskjuhlíð þar sem
hann sýnir fljúg-
andi fyrirbæri og
landslagsstemmn-
ingar. Opið alla
daga kl. 10-21.
Á listasafni ASÍ
við Freyjugötu
41 hefur verið opnuð sýning á verkum
eftir listamennina Jón Stefánsson,
Jóhannes S. Kjarval og Svavar Guðna-
son. Opið alla daga nema mánudaga kl.
13-17 og aðgangur er ókeypis.
Stefanía Jörgensdóttir hefur opnað
málverkasýningu í Turninum við Smára-
torg í Kópavogi. Opið alla virka daga
kl. 9-16.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
HJARTNÆM RÆÐA Paris Katherine Jackson flutti hjartnæma ræðu í Staples Center
sem olli deilum innan Jackson-fjölskyldunnar. NORDIC PHOTOS/AFP
Grunnt er á því góða hjá fjölskyldu
Michaels Jackson. Hún hefur enn
ekki komið sér saman um hvar
grafa eigi poppgoðið og ekki voru
allir sáttir við ræðu Paris Kather-
ine Jackson.
Paris er dóttir Michaels og Debb-
ie Row og hún flutti hjartnæma
ræðu á minningarathöfninni í Sta-
ples Center á þriðjudaginn. Fjöl-
miðlar vestan hafs eru flestir sam-
mála um að ræðan hafi haft mikil
áhrif á sjónvarpsáhorfendur og
nærstadda enda hafi menn gert
sér grein fyrir því að börn Jack-
sons væru umfram allt í mikilli
sorg eftir fráfall föður síns. „Ég vil
bara segja eitt, að frá því að ég kom
í heiminn hefur pabbi minn verið
besti faðir í heimi,“ sagði Paris, rétt
áður en hún brast í grát. Nærstadd-
ir áttu einnig erfitt með að hemja
táraflóðið en þetta var í fyrsta
skipti sem börnin sjást síðan að
faðir þeirra féll frá þann 25. júní.
Fjölskylda Michaels var ekki á eitt
sátt hvað varðar ræðuna. Janet,
LaToya og Marlon studdu frænku
sína af heilum hug en Randy og
Jermaine voru ekki alveg jafn
hrifnir. „Þeim fannst séra Lucious
Smith ljúka athöfninni með mik-
illi reisn og fannst algjör óþarfi að
bæta þessari litlu tölu við,“ sagði
náinn vinur fjölskyldunnar við Chi-
cago Sun Times. Þetta litla atriði
er þó ekki það eina sem hefur vald-
ið sundrung innan fjölskyldunnar
því að hún getur ómögulega komið
sér saman um hvar eigi að grafa
Michael. Jermaine hefur reynt að
fá leyfi hjá yfirvöldum fyrir því
að hann verði grafinn á Never-
land-svæðinu en yfirvöld hafa
ekki viljað fallast á óskir hans. Þá
eru uppi hugmyndir um að Jack-
son verði jafnvel brenndur og ösku
hans dreift yfir Neverland-svæð-
ið. Móðir Jacksons og hans helsti
bandamaður í lifanda lífi, Kath-
erine, hefur hins vegar lagst gegn
öllum hugmyndum um að blanda
Neverland í málið. „Hann var flutt-
ur þaðan fyrir fullt og allt og ætlaði
aldrei að snúa þangað aftur,“ hefur
RadarOnline eftir heimildarmanni
sínum.
Loks er svo vert að geta þess
að andlát Michaels Jackson virð-
ist endanlega hafa tryggt hann í
sessi sem vinsælustu poppstjörnu
sögunnar; vefsíða E-entertain-
ment greindi frá því í gær að plöt-
ur hans hefðu selst í bílförmum í
síðust viku; alls 800 þúsund eintök
í Bandaríkjunum. Mest hefði selst
af safnplötunni Number Ones og
Thriller.
Sundurleit fjölskylda