Fréttablaðið - 09.07.2009, Blaðsíða 48
36 9. júlí 2009 FIMMTUDAGUR
sport@frettabladid.is
Í gær var dregið í undanúrslit VISA-bikarkeppni kvenna en leikirnir
fara fram sunnudaginn 26. júlí næstkomandi. Íslandsmeistarar Vals
og Stjarnan mætast á Vodafone-vellinum en þessi lið eru nú efst og
jöfn í Pepsi-deild kvenna. Valur sló út Völsung á Húsavík í fjórðungs-
úrslitunum í fyrrakvöld en Stjarnan sló út bikarmeistara KR.
„Þetta verður frábær leikur og án efa mjög skemmtilegur. Það sem
helst var svekkjandi var að fá ekki heimaleik því helst hefðum við
viljað mæta Blikum á heimavelli. En við verðum að láta Val duga. Við
hentum bikarmeisturunum úr keppninni í síðustu umferð og næst
hendum við Íslandsmeisturunum út,“ segir Þorkell Máni Pétursson,
þjálfari Stjörnunnar.
Hann segist hvergi banginn fyrir leikinn. „Ekki nokkurn skapaðan
hlut. Valur er vitaskuld með frábært lið og landsliðsmenn nánast í
hverri stöðu. En ég er sannfærður um að við munum eiga í fullu tré
við Valsliðið og vonandi verðum við búin að endurheimta leikmenn
úr bæði meiðslum og leikbönnum fyrir þennan slag.“
Í hinni undanúrslitaviðureigninni mætast lið Breiðabliks
og Fylkis en síðarnefnda liðið er nú í fyrsta sinn að keppa í
undanúrslitum í bikarkeppni kvenna. „Það er gaman að fara
í Kópavoginn enda völlurinn flottur og
gaman að mæta Blikum,“ sagði Björn
Kristinn Björnsson, þjálfari Fylkis. „En
við eigum möguleika í öllum leikjum
og eigum harma að hefna frá síðasta
leik okkar gegn Breiðabliki í deildinni.
Þá spiluðum við ekki vel og vonandi
að við getum rifið okkur upp fyrir
þennan leik.“
Breiðablik og Fylkir eru ekki langt
undan toppliðum deildarinnar enda
deildin jafnari nú en oft áður. Björn
segir Fylki geta strítt hvaða liði sem
er. „Okkur vantar helst ákveðni og
reynslu af því að vera í toppbar-
áttunni. Við þurfum því að hafa
aðeins fyrir hlutunum en á góðum
degi getum við staðist hvaða liði
sem er snúning.“
VISA-BIKAR KVENNA: TVÖ EFSTU LIÐ DEILDARINNAR MÆTAST Í UNDANÚRSLITUM
Sláum út meistara í hverri umferð
FÓTBOLTI Þó svo að Fylkir hafi
ekki fengið heimaleik í fjórð-
ungsúrslitum bikarkeppninn-
ar var Valur Fannar Gíslason,
fyrir-liði liðsins, ánægður með
dráttinn. Fylkir mætir Fram.
„Fyrst við spilum ekki á heima-
velli finnst mér best að fá að
spila á Laugardalsvellinum. Ég
er því sáttur enda fyrst og fremst
gaman að fá að spila þessa leiki.
Við tökum ekki þátt í Evrópu-
keppninni í ár og því fögnum við
hverjum leik sem við fáum.“
Hann segir Fylkisliðið á góðu
róli. „Ég get ekki verið annað
en sáttur við það skrið sem við
höfum verið á. Við höfum sífellt
verið að bæta okkur í hverjum
leik og framhaldið lítur vel út.“
- esá
Valur Fannar Gíslason:
Við erum sífellt
að bæta okkur
FYRIRLIÐINN Valur Fannar Gíslason í leik
með Fylki gegn Stjörnunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Ólafur Kristjánsson,
þjálfari Breiðabliks, var hæst-
ánægður með að liðið mætir
grönnum sínum úr Kópavogi,
HK, í fjórðungsúrslitum VISA-
bikarkeppni karla.
„Við söknum þess að hafa HK
ekki í úrvalsdeildinni og því er
það frábært að fá þennan bikar-
leik. Fólkið í bænum hefur sýnt
að það vildi fjölmenna á leikinn
og skora ég því á alla að mæta á
þennan leik nú.“
Hann segir mikið undir í leikn-
um, ekki bara sæti í undanúrslit-
unum. „Ég var að kenna Rún-
ari [Sigmundssyni, þjálfara HK]
þegar hann var að taka A-þjálf-
araprófið sitt í vetur og fylgdist
því vel með HK. Það hefur sína
kosti og galla. Kostirnir eru þeir
að ég þekki liðið vel en gallinn
hlýtur að vera sá að það er þá
mikil pressa á mér að vinna.“ - esá
Ólafur Kristjánsson:
Söknum HK í
úrvalsdeildinni
ÓLAFUR KRISTJÁNSSON Þjálfari Breiða-
bliks er spenntur fyrir Kópavogsslagnum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Fjórir afar athyglisverð-
ir leikir eru á dagskrá fjórðungs-
úrslita VISA-bikarkeppni karla
sem fer fram í lok mánaðarins.
Stórveldin Valur og KR eigast við
en einnig liðin sem börðust um
Íslandsmeistaratitilinn í fyrra –
Keflavík og FH. Þá fengu Kópa-
vogsbúar sinn draumaleik en HK
mætir Breiðabliki á Kópavogsvelli.
Liðin leika ekki í sömu deild í ár
og því eini bæjarslagur liðanna í
sumar. Að síðustu mætast önnur
tvö Reykjavíkurfélög á Laugar-
dalsvellinum – lið Fram og Fylk-
is.
Atli Eðvaldsson er nýtekinn við
þjálfun Vals en hann ólst upp hjá
liðinu og lék með því áður en hann
hélt í atvinnumennsku. Þegar hann
sneri aftur heim gekk hann hins
vegar til liðs við KR og þjálfaði
svo liðið undir lok síðustu aldar.
Hann gerði KR að Íslandsmeist-
urum árið 1999 og síðan þá hefur
hann ekki tekið þátt í leik á KR-
vellinum.
„Þetta virðist allt snúast um Val
og KR þessa dagana,“ sagði Atli og
hló. „En það var flott að fá heima-
leik og ég efast ekki um að þetta
verði frábær leikur og vel sóttur.
Enda eru þetta skemmtilegustu
leikirnir þegar stóru liðin mætast
í bikarkeppninni.“
Atli er nú að þjálfa Val í fyrsta
sinn og hans fyrsti deildarleikur
verður gegn KR á laugardaginn.
„Síðast þegar ég var á KR-vell-
inum þá varð KR Íslandsmeist-
ari eftir 31 árs bið og Valur féll í
fyrsta sinn úr deildinni þann sama
dag. En nú er komin upp önnur tala
í lottóinu.“
Atli stýrði Val til sigurs gegn
KA í 16-liða úrslitum bikarkeppn-
innar á mánudagskvöldið en hann
var þá nýkominn til landsins þar
sem hann býr í Þýskalandi.
„Leikmenn fengu að jafna sig
í gær og í kvöld verður loksins
fyrsta almennilega æfingin,“ segir
Atli.
Grétar Sigfinnur Sigurðsson,
leikmaður KR og fyrrum leikmað-
ur Vals, átti von á breyttu Valsliði
um helgina. „Eins og alltaf þegar
nýr maður kemur í brúna verður
ákveðin hugarfarsbreyting hjá
leikmönnum og þeir munu sjálf-
sagt reyna að nýta sér það,“ segir
Grétar en KR eru núverandi bik-
armeistarar.
„Bikarinn gefur krydd í til-
veruna og við ætlum okkur alla
leið í ár rétt eins og í fyrra. Við
ætlum þó ekkert að gefa eftir í
deildinni og ég er þess fullviss að
FH eigi eftir að misstíga sig. Það
er fullt af stigum eftir í pottinum.
Ég hefði reyndar helst viljað fá FH
núna í bikarnum – það væri best að
klára þá strax.“
Keflavík og FH mættust í fyrstu
umferð deildarinnar í vor og er
það eini tapleikur FH til þessa í
sumar. Davíð Þór Viðarsson, fyr-
irliði FH, fékk einnig að líta rauða
spjaldið snemma í leiknum. Hann
er því sérstaklega spenntur fyrir
þessum leik.
„Við höfum tapað síðustu þrem-
ur leikjum okkar í Keflavík og því
kominn tími til að vinna leik þar.
Það er gott að fá tækifæri til að
bæta fyrir það í bikarnum þar sem
við ætlum okkur alla leið í þeirri
keppni rétt eins og í deildinni,“
segir Davíð.
FH varð bikarmeistari árið 2007
í eina skiptið í sögu félagsins en
það er eina árið frá 2004 sem liðið
varð ekki Íslandsmeistari. Liðið á
því enn eftir að vinna tvöfalt.
„Við höfum átt möguleika á að
vinna tvöfalt áður en alltaf náð að
klúðra því. Það er því kominn tími
til þess. En á móti kemur að það
er fullt af leikjum eftir á Íslands-
mótinu og við erum ekki komnir
nema í átta liða úrslit í bikarnum.
Við þurfum að halda okkur á jörð-
inni.“
eirikur@frettabladid.is
Enn fær Atli að kljást við KR-inga
Dregið var í fjórðungsúrslit VISA-bikarkeppni karla í gær. Reykjavíkur-stórveldin Valur og KR drógust sam-
an en liðin mætast í deildinni nú á laugardaginn. Atli Eðvaldsson fær því að kljást nóg við „gamla“ félagið.
BIKARDRÁTTURINN Atli Eðvaldsson, þjálfari Vals og Logi Ólagsson, þjálfari KR. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Eins og Fréttablaðið
sagði frá í fyrradag þá hefur Þór-
unn Helga Jónsdóttir gert nýjan
samning við brasilíska liðið Sant-
os, samning sem nær allt til árs-
ins 2011. Þórunn hefur spilað með
Santos frá því síðasta haust þegar
hún stökk til þegar óvænt tilboð
kom úr tíu þúsund kílómetra fjar-
lægð.
„Ég er virkilega að njóta þess að
spila hérna. Kannski ekki skrýt-
ið þar sem að ég er búin að vera
hérna í 8 mánuði án þess að tapa
leik,“ segir Þórunn og bætir við.
„Brasilía losnar líklega ekki við
mig alveg strax þar sem ég er
búin að skrifa undir samning til
2011. Santos og stjórn Santos eru
búin að leggja talsvert á sig til
þess að ég geti spilað hérna áfram.
Meðal annars fór ég ásamt stjórn-
armanni félagsins í tveggja daga
ferð til Paragvæ til þess að lengja
landvistarleyfið mitt um tvö ár.
Það gekk upp og ég er komin með
atvinnuleyfi út næstu tvö árin svo
að ég er mjög ánægð með það og
spennt fyrir framhaldinu,“ segir
Þórunn.
„Dvölin gæti þess vegna orðið
endalaus, því ég nýt þess
virkilega að æfa og spila
með þessum stelpum og
fyrir þennan þjálfara. Ein-
hverra hluta vegna finnst
mér alltaf jafn-gaman að
heyra brasilíska þjóðsöng-
inn fyrir leiki,“ segir Þór-
unn í léttum tón.
Þórunn Helga hefur
verið fastamaður
í stöðu volente
sem er eins
konar aftur-
liggjandi
miðju-
maður
en
náði engu að síður því afreki að
skora í fjórum leikjum í röð á
dögunum.
„Ég er stundum enn þá hissa
á að þetta sé í rauninni að ger-
ast og að ég sé að spila fótbolta
fyrir peninga, reyndar ekki
mikla, í byrjunarliði með leik-
mönnum sem ég hafði varla látið
mig dreyma um að hitta nokk-
urn tíma, hvað þá spila
með,“ segir Þórunn.
Það er nóg að gera hjá
Santos-liðinu sem tekur
þátt í þremur mótum á
sama tíma. „Það er
ekki gerlegt að halda
hefðbundna deildar-
keppni í kvennafót-
bolta í Brasilíu, þar
sem leikið er heima
og heiman. Brasil-
ía er um það bil á
stærð við Evrópu,
og ferðalag, til
dæmis, frá Recife
til Porto Alegre,
sem er fjarri því
að vera lengsta
mögulega ferða-
lagið, er svipað
og frá Reykjavík til Rómaborgar,“
segir Þórunn og seinna í sumar
mun liðið síðan taka þátt í svæðis-
keppni og svo í bikarnum þar sem
liðið hefur titil að verja.
Santos hefur ekki tapað leik
í neinni af þessum keppnum til
þessa en gert þrjú jafntefli. „Nú
eru milliriðlar í LINAF-keppninni
byrjaðir og sterkustu liðin byrjuð
að mætast svo að ég á ekki von á
fleiri auðveldum leikjum,“ segir
Þórunn.
Hún gæti verið á heimleið í
næsta mánuði verði hún valin í
landsliðshópinn sem tekur þátt í
EM. „Ég veit að landsliðsþjálfar-
inn er að fylgjast með mér og það
er svo undir honum komið hvort
hann hefur þörf fyrir mig. Ég er
að minnsta kosti alltaf tilbúin ef
kallið kemur,“ segir Þórunn.
Santos hefur nú misst átta stelp-
ur í æfingabúðir með landsliði
Brasilíu ásamt landsliðsþjálfar-
anum svo að í leiknum í dag á móti
Nacional mun vanta byrjunarliðs-
leikmenn „Sem betur fer er hóp-
urinn breiður og ég hef fulla trú á
að við getum unnið leikinn,“ segir
Þórunn að lokum. - óój
Santos var tilbúið að gera allt til þess að halda Þórunni Helgu Jónsdóttur sem hefur ekki tapað leik með liðinu:
Var send í tveggja daga ferð til Paragvæ
STANS-
LAUS
SIGURGANGA
Þórunn Helga
Jónsdóttir er
mikils metin
hjá Santos.
> Keflvíkingar ætla að ráða heimamann
„Þjálfaraleitin gengur vel og við erum komnir með nokkra
kandídata sem við erum að fara að ræða við. Við byrjum
að ræða við þá aðila á morgun [í dag],“ svaraði Þorsteinn
Lár Ragnarsson, framkvæmdastjóri Körfuknattleiksdeildar
Keflavíkur, spurningu um leitina að eftirmanni Sigurðar
Ingimundarsonar. „Við erum að tala við innanbúðarmenn
úr Keflavík sem hafa gæði og þekkja þessi
mál,“ segir Þorsteinn og segir að fjórir til fimm
Keflvíkingar komi til greina. Nöfn manna eins
Fals Harðarsonar, Jóns Guðmundssonar,
Einars Einarssonar, Guðjóns Skúlasonar
og Sverris Þórs Sverrissonar hafa verið
á borðinu en Fréttablaðið fékk ekki
staðfest hvort einhverjir eða allir
þeirra kæmu enn til greina í starfið.