Fréttablaðið - 09.07.2009, Side 56
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Dr. Gunna
Í dag er fimmtudagurinn 9. júlí
2009, 190. dagur ársins.
3.24 13.33 23.39
2.32 13.18 0.00
Ég skal vera jákvæði gæinn í dag. Ekki veitir af.
ALVEG er það nú magnað hvað
Ísland er stórkostlegt land. Það
er ekki glæta að ég skammist mín
fyrir að vera héðan þó að nokkrir
apar hafi fengið of lengi að henda
skít úr búrunum sínum. Ég er búinn
að þvælast dálítið um undanfarnar
vikur og velta fyrir mér í hverju
aðdráttaraflið felst.
Í FYRSTA lagi er það auðvitað
landið sjálft, landslagið. Að dorma
í lyngbrekku við fuglasöng og stór-
fenglegt útsýni, eins og til dæmis í
Þórsmörk, einum alfallegasta bletti
heimsins, er engu líkt. Sú upplifun
verður aldrei metin til jafn ómerki-
legs fyrirbæris og fjár. Andstæð-
urnar og fjölbreytnin hér finnast
eiginlega hvergi annars staðar á
hnettinum.
VIÐ BÚUM í konfektkassa og sitj-
um ofan á matarkistu. Hér er allt
vaðandi í frábæru hráefni sem
mætti nýta miklu betur. Af hverju
er til dæmis engin fiskbúð á Akur-
eyri? Í hvaða smábúð sem er á
Spáni er betra kjöt- og fiskborð en í
búðum hér. Hvar eru búðirnar sem
selja vörur beint frá bændum?
HVERGI fær maður betri ís en á
Íslandi. Heimagerðan ís beint af
beljunni má nú fá á þremur bæjum
á landinu, á Erpsstöðum við Búðar-
dal, Brunnhóli við Hornafjörð en
lengst er Holtasels-ísinn í Eyjafirði
kominn í vöruþróuninni. Það líður
varla sá dagur að ég hugsi ekki slef-
andi um bláberjaskyrísinn sem ég
fékk þar.
Á ÍSLANDI eru bestu sundlaugar
í heimi. Sú nýjasta er á Álftanesi
og er enn ein snilldarlaugin á land-
inu. Hvað þarf meira en að komast
í sund og borða ís? Og liggja í kon-
fektkassanáttúru þess á milli?
VEÐRIÐ já. Ég gleymdi því. Í vondu
veðri kemur fjórða aðdráttaraflið
sterkt inn: Skrítið fólk. Sem betur
fer er fullt af skrítnu fólki á Íslandi
til að brjóta upp gráa meðalmennsk-
una. „Venjulegt“ fólk fer langar
leiðir til að upplifa „öðruvísi“ fólk.
Við Arnarfjörð lokkar Selárdalur
með sína gengnu furðufugla, Gísla
og Samúel. Á Bíldudal er frábært
tónlistarsafn meistara Jóns Kr. Á
Patreksfirði eru eldhugar að drífa
upp hið frábæra Sjóræningjasafn.
Í Eyjafirði er smámunasafn Sverr-
is Hermannssonar og Safnasafnið
með sínum ótal afbrigðum af sér-
visku.
ÞETTA mun rífa okkur upp úr
þynnkunni. Það getur ekki klikk-
að.
Aðdráttarafl
Íslands
Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18-49 ára.
Könnun Capacent í febrúar 2009 – apríl 2009.
Hvar er þín auglýsing?
34%
74%
H E I L S U R Ú M
FJÖLSTILLANLEG HÁGÆÐA
AMERÍSK HEILSURÚM Á
30% AFSLÆTTI!
S-CAPE
Fjölstillanlegt amerískt
heilsurúm með hágæða
heilsudýnu (2x97x203)
Verð frá 821.114 kr.
Verð nú frá
574.480 kr.
WALLHUGGER
Fjölstillanlegt amerískt
heilsurúm með hágæða
heilsudýnu (2x97x203)
Verð frá 676.114 kr.
Verð nú frá
473.279 kr.
ÞRÝSTIJÖFNUNAR-SVAMPSRÚM
(Queen size 153x203)
Verð frá 165.500 kr.
Verð nú frá
115.850 kr.
Rekkjan ehf ≤≥ Suðurlandsbraut 48 (Bláu húsin í Faxafeni) ≥≥ 108 Reykjavík ≥≥ 588 1955 ≥≥ www.rekkjan.iS ≥≥ Opið virka d. 10–18 og lau 11–16
30%
AFSLÁTTUR!
ÞRÝSTIJÖFNUNAR
A
R
G
H
!
0
6
0
9
SVAMPSRÚM