Fréttablaðið - 01.08.2009, Qupperneq 11
LAUGARDAGUR 1. ágúst 2009 11
UMRÆÐAN
Magnús Jóhannsson skrifar
um LifeWave plástra
Þann 11. júní birtist í Fréttablað-inu grein eftir David Schmidt,
framkvæmdastjóra LifeWave. Þessi
grein eru viðbrögð framkvæmda-
stjórans við grein í Fréttablaðinu
21. maí sem er
að mestu byggð
á viðtali við
undirritaðan.
Ekki er óal-
gengt að þegar
fólk skortir rök
fyrir máli sínu
grípi það til þess
óyndisúrræðis
að bera óhróð-
ur og níð á and-
stæðinginn. Því miður fellur fram-
kvæmdastjórinn í þessa gryfju en
grein hans er verulega ærumeið-
andi fyrir mína persónu og störf. Í
raun er þessi grein alls ekki svara
verð, hún dæmir sig sjálf. Fyrir
utan persónuníð fjallar meirihluti
hennar um hluti sem koma málinu
ekkert við eins og veitingu heiðurs-
merkja fyrir bandaríska herinn,
samvinnu við íþróttamenn, sögu
fyrirtækisins og kynningarfundi á
vegum þess.
Eftir stendur óhaggað það sem
haft var eftir mér í áðurnefndu
viðtali. Það sem skiptir mestu er
að ekki hafa verið birtar niðurstöð-
ur rannsókna sem mark er takandi
á og sýna verkun LifeWave plástr-
anna. Framkvæmdastjórinn vísar á
vefsíðu fyrirtækisins en þar er ekk-
ert bitastætt að finna, ein ritgerð
hefur birst í ritrýndu tímariti en
hún fjallar í raun um annað. Fáein-
ar greinar hafa birst í tímaritum
sem ekki gera kröfur um vísinda-
leg vinnubrögð og mest af efninu
er eingöngu á vefsíðu fyrirtækis-
ins. Ritrýnd tímarit leggja innsend
handrit í dóm sérfróðra manna og
gera kröfur um vísindaleg vinnu-
brögð en greinar fást ekki birtar
nema þessum kröfum hafi verið
fullnægt. Sem sagt, ekki hafa verið
birtar niðurstöður rannsókna sem
með vísindalegum aðferðum sýna
fram á að plástrarnir geri það sem
stendur í auglýsingunum.
Ef einhver vill fræðast meira um
LifeWave þá er ýmislegt að finna á
vefnum frá óháðum aðilum og má
nefna sem dæmi www.worldwide-
scam.info/sumlwall.htm.
Ég mun ekki svara fleiri greinum
um LifeWave.
Höfundur er læknir og prófessor í
lyfja- og eiturefnafræði við HÍ.
Enn um
LifeWave
UMRÆÐAN
Gunnar Árnason og Hlédís
Sveinsdóttir skrifa um sveita-
stjórnarmál.
Í hvers umboði situr meirihluti bæjarstjórnar á Álftanesi –
hvers vegna viðgengst endalaus
óráðsía og spilling í meðhöndl-
un bæjarfulltrúa meirihlutans á
Álftanesi á almannafé – bæjarsjóði
sveitarfélagsins sem borinn er uppi
af opinberum gjöldum almennings
og fyrirtækja í sveitarfélaginu?
Hvers eiga íbúar og skattgreiðend-
ur á nesinu að gjalda? Þetta völdu
kjósendur ekki – þetta vill ekki
nokkur maður sjá.
Í desember síðastliðinn neydd-
ist forseti bæjarstjórnar til að
segja sig frá öllum trúnaðarstörf-
um fyrir sveitarfélagið í kjölfar
þess að hann varð uppvís að rætn-
um skrifum um lóðareigendur í
sveitarfélaginu sem hann lét síðan
birta á vef sveitarfélagsins. Afsögn
kom í kjölfar lögregluyfirheyrslu
sem m.a. byggðist á myndbands-
upptöku úr tölvurými hótels hér í
borg, þar sem gerandinn, þáver-
andi forseti bæjarstjórnar Álfta-
ness og forystumaður Á-listans,
náðist á myndband. Málinu hefur
verið vísað til dómstóla í meiðyrða-
máli lóðareigenda gegn viðkom-
andi einstaklingi og sveitarfélag-
inu sjálfu.
Nú, um það bil hálfu ári síðar,
hefur samgönguráðuneytið, að
beiðni fyrrverandi forseta bæjar-
stjórnar og gerandans í rógburð-
armálinu, úrskurðað á þá leið að
viðkomandi einstaklingur sé gjald-
gengur sem bæjarfulltrúi á nýjan
leik í meirihluta Á-lista í bæjar-
stjórninni á Álftanesi.
Bæjarstjóri sveitarfélagsins
hefur á yfirstandandi kjörtímabili,
í nafni hlutafélags síns, orðið upp-
vís að ólöglegum fjármálagjörn-
ingum, samanber dóm í Héraðs-
dómi Reykjaness þar að lútandi.
Formaður bæjarráðs og fulltrúi
Á-lista í bæjarstjórn, sá í fram-
haldinu ástæðu til að gefa út sér-
staka yfirlýsingu þar sem lýst er
yfir að útilokað sé að hefja sam-
starf á nýjan leik við fyrrverandi
forseta bæjarstjórnar og að starfs-
háttum og framkomu bæjarstjóra
sé verulega áfátt. Þar með var
meirihluti Á-lista ekki lengur fyrir
hendi og bæjarstjóri umboðslaus í
sínu starfi. En svo virðist ekki vera
raunin og ekkert bólar á afsögn og
bráðnauðsynlegri uppstokkun í
stjórn sveitarfélagsins. Íbúar bein-
línis hrópa á breytingar enda mæl-
irinn fyrir löngu orðinn fullur.
Lesandi góður, hvernig má það
vera að meirihluti Á-lista sé enn
þá við völd á Álftanesi og það með
dyggum stuðningi samgönguráðu-
neytisins sem er stjórnsýslulegt
yfirvald í málefnum sveitarfélaga
í landinu? Hvernig má það vera, á
sama tíma og fjárhagur sveitarfé-
lagsins er á gjörgæslustigi, eins og
komið hefur fram í fjölmiðlum, og
illa ígrundaðar ráðstafanir núver-
andi meirihluta eru að sliga bæj-
arsjóð, þá leyfist fulltrúum meiri-
hlutans sem hafa orðið uppvísir að
ítrekuðum lögbrotum, að valsa um
og ganga óhindrað í sjóði sveitar-
félagsins? Hversu lengi á að fótum
troða lög og reglur og réttindi íbúa
í sveitarfélaginu sem fá síðan að
lokum sendan fullan reikning fyrir
allri óráðsíunni? Þá verða núver-
andi fulltrúar Á-lista í meirihluta
bæjarstjórnar fyrir löngu horfn-
ir til annarra verkefna með sinn
launatékka og aðrar sporslur upp
á vasann – að fullu greitt úr bæjar-
sjóði, með ábyrgð skattgreiðenda.
Lóðareigendur að Miðskógum 8,
Álftanesi.
Farsakennd stjórnsýsla á Álftanesi
MAGNÚS
JÓHANNSSON
SAMAN FINNUM VIÐ
RÉTTA LEIÐ
SKULDAAÐLÖGUN
Nýi Kaupþing banki kynnir nýtt úrræði fyrir fólk í greiðsluvanda. Með Skuldaaðlögun eru lán
aðlöguð greiðslugetu viðskiptavina bankans. Skuldaaðlögun er einföld og sveigjanleg leið
til að leiðrétta stöðuna.
Skuldaaðlögun er enn ein lausnin sem Nýi Kaupþing banki býður viðskiptavinum til að takast á
við erfiðan fjárhag. Meðal þeirra leiða sem bankinn gefur kost á eru:
VIÐ GETUM LEYST MÁLIN Í SAMEININGU
Fáðu ítarlegri upplýsingar um Skuldaaðlögun og önnur úrræði
á www.kaupthing.is, hafðu samband í síma 444 7000 eða komdu
við í næsta útibúi Nýja Kaupþings banka.
Skuldaaðlögun
Lenging lánstíma
Breyting á lánaskilmálum
Tímabundin frestun afborgana
Ráðgjöf
Greiðslujöfnun
Ekkert uppgreiðslugjald
Innágreiðslur lána í Netbanka
Stöðumat
Heimilisbókhald
Lífeyris- og tryggingamál
Netdreifing/útgjaldadreifing