Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.08.2009, Qupperneq 21

Fréttablaðið - 01.08.2009, Qupperneq 21
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447 Tónlistin tekur öll völd hjá Vali Frey Halldórssyni um helgina, en hann mun fara víða með hljóm- sveit sinni Hvanndalsbræðrum. „Við bræður skiljum fjölskyldurn- ar eftir heima eins og vanalega um verslunarmannahelgina en mark- miðið er að skemmta útihátíðar- gestum vítt og breitt og fylgja eftir nýju lagi sem kom út í vikunni,“ segir hann. Lagið heitir Vinkona og er hresst og sumarlegt eins og LaLa- lag þeirra bræðra sem hefur notið mikilla vinsælda í sumar og trón- ir ofarlega á vinsældarlistum. „Þetta er líka svona heilaklessa sem fellur vonandi í kramið. Við erum í fyrsta skipti að nota blást- urshljóðfæri sem kemur vel út og erum bara orðnir nokkuð þéttir,“ segir Valur Freyr, en hingað til hafa Hvanndalsbræður síst stært sig af hágæða tónlistarflutningi. Þeir byrjuðu helgina á Græna hattinum á Akureyri á fimmtu- dag en færðu sig svo yfir á Mæli- fell á Sauðárkróki á föstudag. „Í dag höfum við svo fallist á að bregða okkur í ABBA-búninga og skemmta gestum í miðbæ Akur- eyrar en það hélt ég að myndi aldrei gerast. Þetta kom nú þannig til að Margrét Blöndal, verkefna- stjóri Einnar með öllu á Akur- eyri, plataði okkur í þetta bak- sviðs eftir tónleika en við höfðum þá tekið ABBA-lag með íslensk- um texta sem henni þótti fyndið. Við erum því búnir að vera að æfa nokkur ABBA-lög þannig að þetta verður voða gaman, í það minnsta hjá Möggu,“ segir Valur og hlær. Á sunnudag er svo stefnan tekin á Álfaborgarséns á Borgarfirði eystri en það er sannkölluð fjöl- skylduhátíð. Valur segir svo nóg að gera fram undan og að þeir félagar reyni að púsla tónlistarferlinum saman við fjölskyldulíf og fulla vinnu. „Þetta er óttalegt bras en gengur, enda eigum við óþolandi skilningsríkar fjölskyldur.“ vera@frettabladid.is Skemmtir með heila- klessum um helgina Valur Freyr Halldórsson mun fara víða um helgina til að fylgja eftir nýju sumarlagi Hvanndalsbræðra. Þá mun hann bregða sér í ABBA-gervi sem hann bjóst ekki við að ætti fyrir honum að liggja. Valur Freyr gegnir að öllu jöfnu starfi aðstoðarvarðstjóra hjá Slökkviliði Akureyrar en bregður þess á milli á leik með Hvanndals- bræðrum. MYND/ÚR EINKASAFNI SUNDGLAÐIR REYKVÍKINGAR þurfa ekki að örvænta þótt verslunarmannahelgin sé runnin upp og þeir staddir í borginni, því opið verður í sundlaugum höfuðborgarsvæðisins alla helgina. ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236 BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR • Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli • Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236 BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR • Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli • Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir Mörkinni 6 • Sími 588 5518 Opnunartímar: mán.-föstud. 10-18 laugardaga 10-16

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.