Fréttablaðið - 01.08.2009, Page 23
Sölufulltrúar Viðar Ingi Pétursson vip@365.is 512 5426 Hrannar Helgason hrannar@365.is 512 5441
365 er öflugasta fjölmiðlafyrirtækið á íslenskum markaði.
Fréttastofa Stöðvar 2 leitar að fréttamönnum til afleysinga allt árið.
Einnig vantar fréttamenn til afleysinga í sumar.
Umsækjendur þurfa:
- að hafa góða þekkingu á íslensku samfélagi og brennandi áhuga
á málefnum líðandi stundar
- að hafa gott vald á íslenskri tungu
- að vera öruggir í framkomu
- að vera færir í mannlegum samskiptum
- að geta unnið undir álagi
Reynsla af fréttamennsku er æskileg en ekki skilyrði.
Vinsamlegast sendið inn umsókn gegnum vef
www.365midlar.is - Um 365 – Störf hjá 365 – Fréttamenn
ATOZ LÖGMENN
Vegna aukinna verkefna og umsvifa óska ATOZ LÖGMENN
eftir því að ráða lögfræðing / lögfræðinga til starfa.
Verkefnin eru hvort tveggja fjölbreytt og krefjandi.
Þeir sem hafa áhuga eru beðnir um að senda umsókn
ásamt ferilskrá á netfangið logmenn@atoz.is
Trúnaði heitið og öllum umsóknum verður svarað.
Sjóvá óskar eftir að ráða ráðgjafa í útibú félagsins á Reyðarfirði.
Við leitum að söludrifnum og þjónustulunduðum einstaklingi
sem á auðvelt með að starfa sjálfstætt.
Helstu verkefni eru ráðgjöf og sala til viðskiptavina, tjónaþjónusta auk annarra verkefna í
útibúinu. Einnig þarf viðkomandi að geta sinnt tilfallandi afleysingum í útibúi Sjóvá á
Egilsstöðum og hafa bíl til umráða. Starfshlutfall er 50%. Nánari upplýsingar veitir Ágústa
í síma 440 2323. Umsókn ásamt ferilskrá sendist á starfsumsokn@sjova.is, merkt
„Austurland“, fyrir 15. ágúst 2009.
Sjóvá er leiðandi félag sem leggur metnað sinn í að tryggja verðmætin í
lífi fólks. Boðið er upp á fyrirmyndar starfsumhverfi fyrir hæft starfsfólk,
ásamt tækifæri fyrir hvern og einn til að eflast og þróast í starfi.
Ráðgjafi
SJÓVÁ | KRINGLUNNI 5 | 103 REYKJAVÍK | SÍMI 440 2000 | FAX 440 2020 | SJOVA.IS | SJOVA@SJOVA.IS