Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1947, Qupperneq 6

Samvinnan - 01.12.1947, Qupperneq 6
kona hans var að taka til jólamatinn. En sumir telja, að kvæðið hafi ekki verið ort fyrr en á síðustu árum hans. Séra Matthías Joc.humsson hefur einnig gert stælingu á þessum jóla- sálmi, sem reyndar er engu síður skáldleg. En svo mikilli helgi hefur sálmur Sveinbjarnar náð í hugum manna, að honum mun tryggur sess í íslenzkri sálmabók enn um langan aldur. Sálmur Matthíasar er birtur í 150 sálmum 1912, og héfst þannig: Blessuð jól, bjartari sól leiftrar frá ljósanna stól; hlusta nú, jörð á hin himnesku hljóð, helgandi, blessandi synduga þjóð. Guði sé dásemd og dýrðl FEGURSTU jólasálmarnir komu inn í sálmabókina 1886. Má þar fyrst nefna jólasálm séra Valdimars Briem: „í dag er glatt í döprum hjört- um“. Sálmurinn er hið mesta lista- verk, glæsilegur að orðfæri, ortur með skáldlegum tilþrifum, og syngst dá- samlega með hinni hreinu og tæru hljómlist Mozarts, úr „Töfraflaut- unni“. Umgerð sálmsins er íslenzkt vetrarríki og skammdegismyrkur, en: er vetrar geisar stormur stríður þá stendur hjá oss friðarengill blíður, og þegar Ijósið dagsins dvín, oss drottins birta kringum skín. í tveimur næstu erindum fellir skáldið með léttum og eðlilegum hætti inn í sálminn boðskap engilsins til fjárhirðanna: ,,Verið óhræddir, því sjá, eg boða yður mikinn fögnuð. . . .“ Þá kyrrir alt í einu storminn, og stjörn- urnar taka að blika á himinhvelfing- unni, en „englaraustin blíða“ hljómar enn í sálinni. Með þessu gefur skáldið til kynna undrun hirðanna og vakn- Séra Valdimar Briem. andi trú á undur og stórmerki guðs. Sálminum lýkur með lofgerð. Tveir aðrir frumortir jólasálmar, eftir séra Valdimar Briem, voru tekn- ir inn í sálmabókina 1945, en höfðu áður staðið í 150 sálmum 1912. Eru það sálmarnir: „Gleðinnar hátíð“ og „Jesús, þú ert vort jólaljós“, hvoru tveggja sérlega ljúfir og indælir sálm- ar, þó að ekki jafnist þeir á við þann, sem áður er nefndur. Séra Valdimar var prestur á Stóra- Núpi ogsíðastvígslubiskup í Skálholts- biskupsdæmi liinu forna. Hann er eitt af stórvirkustu sálmaskáldum vorum, og var á 75 ára afmæli sínu, 12. jan. 1923, sæmdur doktorsnafnbót í heið- ursskyni af guðfræðideild Háskóla Is- lands, fyrir hinn mikla og „dýra fjár- sjóð sálma og andlegra ljóða“, sem liann hafði gefið þjóð sinni. EINN af nefndarmönnum þeim, sem unnu að sámabókinni 1886, var séra Björn Halldórsson í Laufási, faðir séra Þórhalls biskups. Hann lagði þó nokkurn skerf til sálmabókar- innar. og allt var jrað gott og sumt ágætt. Þar á meðal er jólasálmurinn: „Sjá, himins opnast hlið“. Hann er mjög einfaldur að gerð, en öðlast styrk sinn með því, að jólabirtan flæð- ir þegar yfir hugann í fyrstu ljóðlínu: himnarnir opnast og englar guðs stíga niður í fylkingum, til að lýsa blessun yfir mönnunuin. Þá er vikið að hjarð- mönnunum og boðskapnum til þeirra. Seinni hluti sálmsins er lofgerð til Frelsarans. Er hún sérstaklega áhrifa- mikil þar sem skáldið snýr máli sínu beint til friðarhöfðingjans: Ó, guð hinn sanni son, sigur, lí£ og von rís með þér og rætist, þú réttlætisins sól, allt mitt angur bætist, þú ert mitt ljós og skjól. Eg held glaður jól. Eg hygg, að þessi sálmur, ásamt sálmi Valdimars Briern: „í dag er glatt í döprum hjörtum", séu snilldarleg- ustu jólasálmarnir, sem við eigum, og muni verða sungnir eins lengi og jól verða haldin í íslenzkri kirkju. MATTHÍAS JOCHUMSSON hef- ur ort margt stórskáldlega og fall- ega um jólin, þó að ýmislegt af því sé undir þeim háttum, er gerir það mið- ur fallið til söngs. Hefur því fátt af því komið í sálmabók vora. Einn jóla- sálm höfum vér þó eftir hann frumort- an í sálmabók vorri og hefir hann Séra Björn Halldórsson. staðið þar síðan 1871 en birtist áður í Kristilegum smáritum. Það er sálm- urinn: Af heimi skattskrift heimtuð er, en hvað skal, drottinn, gjalda þér? Er annað til en eymd og sekt? Er annað til en synd og nekt? Sálmur þessi er ortur á fyrstu prest- skaparárum séra Matthíasar og fyrst fluttur við kvöldsöng í Brautarholti árið 1865. Er hann ágæta vel ortur svo sem vænta má, en naumast jafn- mikill jólasálmur og margir aðrir í eiginlegum skilningi þess orðs, þar sem varla er minnzt á jólaguðspjallið, en aðeins lagt út af skattskriftinni. Aft- ur á móti hefir Matthías með snilldar- legri þýðingu á hinum yndislega jóla- sálmi Ingemanns: „Dejlig er Jorden,“ gefið sálmabókinni dýrgrip. Fyrsta er- indið hljóðar þannig í þýðingu séra Matthíasar: Fögur er foldin, heiður er guðs himinn, indæl pílagríms ævigöng. Fram, fram um víða veröld og gistum í Paradís með sigursöng. í hugum hinna rómantísku skálda var fagnaðarboðskapur jólanna meg- inatriðið. Maðurinn á sitt himneska athvarf bak við stríð og baráttu jarð- arinnar. Kynslóðirnar gista að lok- um í Paradís. Tilefni þessa jólasálms Ingemanns (Framhald á bls. 24.) 6

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.