Samvinnan - 01.12.1947, Side 13
KSítUF.
Kósin í Þrasakletti
Frá Seljalandi. Þrasaklettar á miðri myndinni.
Eg hef nú verið tvo daga á ferð um
Eyjafjallasveit. Gist að hinu stórmynd-
arlega heimili í Varmahlíð, og farið
'síðan á jeppanum mínum fram og
aftur urn sveitina. Hann hefur gert
mér fært að skoða jafn mikið á tveim-
ur dögum og eg hef oft áður þurft
viku til. Eg hef skoðað hina sérkenni-
legu sundlaug Eyfellinganna í daln-
um upp af Seljavöllum, þar sem klett-
ar rísa á aðra hönd, en allvatnsmikil
jökulsá fossar fram á hina. En skýlt er
þar í dalnum og sólríkt, og laugin
fagur vitnisburður um áhuga og elju-
semi unga fólksins, því að gerð var hún
áður en bílar fóru að ganga um sveit-
ina að ráði, svo að allerfitt hefur verið
að koma bvQroingarefninu á staðinn.
Slík ntannvirki vekja vonir um, að
viðnárn sje veitt gegn flóttanum úr
sveitunum. Þá hef eg reikað um blásn-
ar tóttir suður við sjó, þar sem mér var
sagt að væru rústir Stóru-Borgar hinn-
ar fornu, og í hugann hvörfluðu sög-
urnar um ástir þeirra Onnu, hinnar
ríkilátu húsfreyju og Hjalta smala-
pilts, sem rómantík rnargra alda hefur
ofið um glitblæju, og Jón Trausti tók
sér fyrir liendur að endurlífga í minn-
ingunni, og bræða samfellda sögu upp
úr brotasilfri þjóðsagnanna. En þar
sem hið forna liöfuðból stóð, eru nú
blásnar moldir, sem óðum hverfa fyrir
tönn tímans. En grjóthrúgur úr veggj-
um og veðruð bein vitna um manna-
byggð. Eg hef staðið í úðanum frá
Skógafossi og dáðzt að honum, eins og
allir, sem koma í námunda við hann,
þá hef eg einnig skoðað hið rnikla stór-
hýsi, sem í smíðum er í Eystri-Skógum,
þar sem fyrirhugað er að rísi upp skóli
og menningarmiðstöð sveitarinnar. Og
síðast en ekki sízt hef eg klifrað upp
um fjöll og hlíðar, farið um skrúðmikl-
ar blómgresisbrekkur og blásnar skrið-
[Hér birtist framhaldið af hinum í
fróðlega og skemmtilega greina- í
[lokki Steindórs Steindórssonar frá
Hlöðum, „Á Gammabrekku". — j
Næstu tveir þættir fjalla um Rang- ;
árvelli og sandgræðsluna.
A GAMMABREKKU
ÞÆTTIR ÚR FERÐ UM RANGÁRÞING
Eftir Steindór Steindórsson frá Hlöðum
13