Samvinnan - 01.12.1947, Page 17
HIN HÁTÍÐLEGA raiðnæturmessa raerkir upphaf jólahaldsins I
Bretlandi. Gamlir jólasálmar bergmála í hvelfingum fornra, hátíða-
búinna dómkirkna víðs vegar um landið.
FRÖNSKU BÖRNIN búa til líkan af fjárhúsinu í Betlehem, og
þar má sjá Jósef, Maríu, barnið og lijarðir og hirðingja, en hfl-nin
halda á logandi kertum og horfa hugfangin á dýrðina.
A NORÐURI.ÖNDUM hugsa menn um litlu fuglana. í Noregi er
heyknippi komið fyrir á grenitré úti á víðavangi, svo að fuglarnir
eignist líka sitt jólatré.
í BANDARÍKJUNUM er stóru jólatré oft komið fyrir á torgura
bæjanna. Er það fagurlega skreytt og Ijósum prýtt. Víða er safnazt
teman við þetta tré og jólasálmar sungnir.