Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1947, Qupperneq 25

Samvinnan - 01.12.1947, Qupperneq 25
Sigurður Jónsson £rá Arnarvatni: Einar á Eyrarlandi Sendiboða bar að garði — boðaði þig á Drottins £und. Upp var runnin áður en varði efsta, hinzta kveðjustund. Margan við þá helfregn hljóðan hefir sett. Hve spakan, góðan heiðursmann og hamingjumikinn höfum átt, við sjáum bezt, þegar hann er héðan vikinn — horfinn sá er treystum mest. Unaðshlýja byggða-bandið batt þig fast við ættarsveit. Heimili, sveitin, hérað, landið hlaut þitt starf og kröftum sleit. Þjónustu við þjóðarhaginn þú fékkst helgað æfidaginn. Vannst þig upp með vinnu þinni, virðing hlauzt og tignarstig. Áttir nú hjá öllum inni — Alþjóð var í skuld við þig. Þú varst barn frá þjóðlífs vori, þegar birti um Norðurland. Fólksins kröppu kjör sem spori knúðu að bæta neyðarstand. Þín oss sýnir þroskasaga, þú hefir munað æskudaga. Fylgir starfi guðleg gipta göfugir og vitrir menn þegar eigin lífshag lypta lands og héraðs — allt í senn. Þinni kynslóð vannst sá vandi — verkmikinn hún átti dag — að skila framtíð fegra landi, frjálsri þjóð og bættum hag. Gildan hlut þar á í arfi oddvitinn í félagsstarfi. Gott er að fylgja gæfumönnum, göfugt starf sem velja sér. Líkt og geisli af gimstein sönnum góðra manna leiðsögn er. Félagsstarf er friðsæl þróun, frjálsra krapta samstilling. Stríð, er kaldráð krapta sóun, kvöl, sem fylgir misbeiting. Hlutverk þitt við friðstörf fannstu. Fyrirmyndar dagsverk vannstu. Lægja styr og stilla og hemja stríðlynd öfl var lagið þér. Fagurt, þeim sem friðinn semja fyrirheitið gefið er. Alþjóð fer um íslands-byggðir eldi nýjan landnámsdag. Samtök föst og félagsdyggðir fegra og bæta allra hag. Lífsstarf þitt, og þinna líka þróun efldi gipturíka. Vinakynning víst ei gleymist, vel þar'geymir hver um sitt. Minning hlý í hug mér geymist, hrein og ljúf, sem brosið þitt. Saga geymir hin sönnu virði, sígild glóa minja-þing. Á sinn ljóma í Eyjafirði Einars nafn, frá Þveræing. Einars nafn frá okkar samtíð endurljóma mun í framtíð, þegar ófædd öldin metur allt, sem þessi kynslóð vann. — Hún á bekk hjá Sögu setur sanna friðarhöfðingjann.

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.