Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1948, Page 17

Samvinnan - 01.12.1948, Page 17
L :stjökum á altari hinnar :ertastjakar — hvor um eru smíðaðir í líkingu efur dvalið landflótta í [irkjunni. Ljós er aðeins r eru oft nefndir „bronz- | skýrt í biblíunni: Hinn hins forna Ísraelsríkis. ts, allt frá spádóminum :m taldir ein hin mestu góði fjárhirðir. ’ha og Elieser. lann er upprisinn.“ iiiiiiiiiiiniiiiiiiiiii ■ ll■■l■llllllllllllll■■■lllll■lllll■lllllllllllllll■•l■■■ll■l>•l■ll•■ - Ú tvarpsþáttur eítir FROSTA Nýjungar í útvarpinu SÍÐUSTU VIKURNAR hefur þó nokkur fjörkippur komið í dagskrárstjórn útvarpsins okkar og hefur hún boðið hlustendum upp á nokkrar nýjungar. Hefur út- varpið þar með — í fyrsta sinn að því er séð verður — beygt sig að nokkru fyrir utanaðkomandi gagnrýni, enda var hún orðin hávær og fyrirferðarmikil í flest- um blöðum landsins. Þetta tillit til ábendinga kemur því vissulega ekki vonum fyrr og hefði verið hollara fyrir bæði útvarpið og hlustendurna, að það hefði ver- ið gert fyrr. En fagna ber hó bví, að svo virðist, sem nokkur viðleitni til aukinnar fjölbreytni útvarpsefnis sé hafin. Viðleitnin er lofsverð, en þó er ekki þar með sagt, að hinir nýju bættir allir hafi reynzt sérleg upp- lyfting það sem af er — síður en svo — en vonandi stendur það allt til bóta. AF HINUM NÝJU báttum vil eg fyrst nefna fjár- hagsþáttinn, sem formaður Fjárhagsráðs hefur flutt hingað til. Það er mjög æskilegt, og raunar sjálfsagt, að þeir embættismenn, sem stjóma eiga þýðingarmikl- um málum þjóðarinnar, geri henni annað veifið grein fyrir athöfnum sínum í svona rabb-þáttum og verður vonandi framhald á þeirri tilraun, sem hafin er. Mætti auk heldur kalla fleiri embættismenn í pontuna en Fjárhagsráðsformanninn, t. d. meðlimi Viðskipta- nefndar, póst- og símamálastjóra, fræðslumálastjóra, formann stjómar Síldarverksmiðja ríkisins o. fl. Þessi þáttur væri þó meira virði en nú er, ef hann væri að öðrum þætti spumingaþáttur, þ. e. að þessir virðulegu embættismenn svöruðu spurningum borgaranna, eins og eg lagði til í síðasta þætti mínum hér. ÖNNUR NÝJUNG er Gunnu-Stínu-þáttur Lofts Guðmundssonar. Þetta á augsýnilega að verða ís- lenzkur Robinson Family- eða Familien Hansen- þáttur, kunnir úr brezka og danska útvarpinu. Þessi þáttur fór ekki ólaglega af stað og getur sjálfsagt orðið góður, því að höfundur hans er um margt snjall og fundvís. En hann má vara sig á því, að gera hið dag- lega líf Reykjavíkurstúlkunnar sinnar ekki of öfga- kennt og afskræmislegt. Örlítið örlaði á því, þegar í upphafi. Robinson-þátturinn brezki er eftirminnileg- astur fyrir það, að hann bregður upp myndum af dag- legu lífi þjóðarinnar, sorgum hennar og áhyggjum, starfi og afþreyingum, með því að lýsa hversdagslífi venjulegrar fjölskyldu, láta meðlimi hennar fást við vandamál, sem jafnframt eru vandamál flestra annarra heimila. Þarna getur Gunnu-Stínu-þáttur Lofts fyllt eyðu í útvarpsdagskrá okkar — ef vel er á haldið. Von- andi tekst honum það í framtíðinni. Þátturinn um UNGA FÓLKIÐ var hressilegur og gott eitt um það að segja, að ungt fólk fái að láta liós sitt skína. En út- varpið — og unga fólkið í útvarpinu — má sízt gleyma því, að spjall um skemmtanalíf og böll Reyk- víkinga hæfir bezt þeim sjálfum, en ekki þjóðinni allri og of mikið má gera að því — og hefur raunar verið gert — að tala um „bæinn“ sem landið og bjóðina. Það eru fleiri himdar svartir en hundurinn prestsins, enda þótt þeim fækki sífallt. Minnir þetta ennánauðsynþess að koma upp útvarpi frá öðrum landsfjórðungum. UM SKEMMTIÞÁTTINN svonefnda get eg verið fá- orður. Hann tók lítið fram pylsuvagnsútvarpinu í fyrra, meðan „lög og létt hjal“ var og hét. Ef „skemmtiþátt- ur“ útvarpsins orkar ekki meiru en þegar hann reið úr hlaði, þá væri hentast, að halda ekki lengra. Það er leiðinlegt að verða þess var, hversu dagskrárstjómin getur stundum verið ógagnrýnin. Tveir til þrír „slag- arar“, leiknir á píanó, og „leikrit11 með drukknum, frönskum gleðikonum, sem uppistöðu, getur naumast kallast „þáttur“ eða verið kennt við skemmtun. Og svo var allt flutt af grammófónplötum. Fyrir mistök í flutningi komst upp um strákinn Tuma, því að ekki var tilkynnt að þátturinn væri fluttur af plötum. Slíkt gera erlendar útvarpsstöðvar ævinlega og þykir sjálf- sögð kurteisi við hlustendur. Víst þurfum við skemmtiþátt í útvarpinu. En útvarpshlustendur al- mennt munu gera meiri kröfur til sjálfs sín — og út- varpsins — en svo, að þessi frumsmíð falli í góðan jarðveg hjá þeim. Eigi að síður vil eg mælast til að þessi tilraun verði ekki látin niður falla, þótt ekki blési byrlega í upphafi, heldur verði reynt að skapa raunverulegan skemmtiþátt í útvarpinu. Slíkt kostar að vísu nokkurt fé, en útvarpið er enginn kotungur. Landsmenn komust að raun um það, er fjármálaráð- herrann las ríkisreikninginn fyrir 1947 á Alþingi. Ut- varpið er eitt af hinum meiriháttar gróðafyrirtækjum landsins, þótt hlustendur verði þess vissulega ekki oft varir í dagskránni. Dagskráin er nefnilega Helga Karlsdóttir í öskustónni, en útvarpshöllin stóra og ameríska teikningin skrautkonumar Ása og Signý. Þeim eru ætlaðir gildu sjóðirnir að því er virðist. En hóf mxm bezt á hverjum hlut og útvarpshíustendum yfirleitt mun þykja tími til kominn að gera nokkra breytingu á heimilishaldinu og gera hlut dagskrárinn- ar í öskustónni eitthvað veglegri. Má og vel vera, að „þættir“ þeir, sem hér hafa verið nefndir, séu hin fyrstu merki afturhvarfsins og er vel ef svo er. OG VEL Á MINNZT hlustunarskilyrðin. Bylgju- lengdinni var breytt til þess að bæta þau var sagt. En því miður virðist hafa farið svo, að þau hafi versnað víða um land. Þyrfti það mál athugunar við. FROSTI. 17

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.