Samvinnan


Samvinnan - 01.08.1950, Qupperneq 3

Samvinnan - 01.08.1950, Qupperneq 3
Stór skurðgrafa að starfi i nágrenni Reykholls i Borgarfirði. Landnám íslendinga: Fjárskorfur háir framkvæmdum QJAMKVÆMT opinberum skýrsl- um liefur jörðum í ábúð á íslandi fækkað um 143 á tímabilinu 1940— 1949. Samt er fjarri því, að gestir, sem koma til landsins, sjái hér merki land- auðnar. Þvert á móti. Þeir liafa orð á því, bæði við heimamenn og eins í frásögnum af íslandsferðum í erlend- um blöðum og tímaritum, að rækt- unar- og landnámsframkvæmdir í sveitum landsins séu stórfelldar og einn augljósasti votturinn um dugn- að og framsækni íslenzku þjóðarinn- ar.Þróunin hefur líka verið sú, í stór- um dráttum, að jarðirnar, sem í eyði hafa farið, eru flestar í afskekktustu héruðum landsins og í strjálbýlli og samgönguerfiðustu hlutum liinna þéttbýlli héraða. Hins vegar blasa við augum stórfelldar landnámsfram- framkvæmdir, þegar farið er um þjóð- brautir í öllum landsfjórðungum. Staðreyndin er líka sú, að á sama tíma og afdalajarðirnar hverfa úr ábúð, eða útnesjajarðir, sem áður fyrr byggðu eins mikið á útræði og. ræktun, lara í eyði, fer fram allstórstíg nýbýlastofn- un í hinum gróðursælli héruðum, sem eiga nægilegt landrými og allgóða aðstöðu um samgöngur og afurðasölu til bæjanan. A4yndin af því vandamáli hins íslenzka Jrjóðfélags, sem blasir við augum, [tegar skýrslur um eyðijarðir og fólksfækkun í sveitum eru lesnar, verður því afskræmd og ekki í sem fyllstu samræmi við raunverulegt ástand í ræktunarmálum landsmanna, nerna jafnframt sé haft í huga, að haf- in er fyrir nokkru allmikil sókn á hendur óræktarmóum og mýrum, og allvíða er unnið ósleitilega að því að undirbúa býlafjölgun í búsældarleg- ustu héruðum landsins. Þessar fram kvæmdir blasa við augum ferðamanns- ins, sem nú ekur um jDjóðvegina. Stór- virkar vélar eru hvarvetna að verki, skurðgröfur hafa skilið eftir djúp og augljós för í ljölmörgum sveitum og I Samvinnan ræddi nýlega við j I Pálma Einarsson landnámsstjóra j j um hinar miklu landnáms- og | j ræktunarframkvæmdir í sveitum j I landsins. I þessari grein eru upp- i j lýsingar frá landnámsstjóra og j j ýmsar hugleiðingar blaðamanns- j j ins í sambandi við þær. j 7ii 111111111 iiiiiiiiuiii1111iniiniiiiiiiiuT stórvirkar vinnsluvélar hamast daga og nætur hásumarmánuðina á vegum búnaðarsamtakanna, einstaklinga eða ríkisins. Hér er stórmerkileg þróun í uppsiglingu, sem verðskuldar athygli alþjóðar. Mönnum er nú að verða ljósara en áður, að það er valt að treysta um of á fljóttekin uppgrip úr hafinu, þótt auðugt sé. ísland býr yfir miklum landkostum, sem hafa verið sorglega vanræktir á liðnum velgengn- isárum. Nú, Jregar liarðnar í ári, og menn sjá að sjávarútvegurinn er ekki sú alkemía, sem suma dreymdi um þegar dollarar og pund voru 1 hvers manns vasa, líta menn aftur til gró- andi jarðar og möguleika hennar til þess að veita Joegnunum arðvænlegt og þroskavænlegt starf, sem hefur fólgið í sér afkomuöryggi og mögu- leika fyrir hvern einstakling að nota hæfileika sína og útsjónarsemi. Mikl- ar líkur eru til þess, að taflið sé að snúast við — að flóttinn úr sveitunum sé senn á enda, og er það vel, og ný landnámsöld að hefjast. En vitaskuld þarf meira til að gera slíka þróun mögulega en nokkra vakningu meðal nokkurs hluta þjóðarinnar. Lausa- maðurinn á mölinni, sem sér fram á þröngan kost á eyrinni á næstu árum, getur ekki, að svo komnu máli, tekið sig upp og hafið starf með fjölskyldu sinni ,í frjósamri sveit. Allir bænda- synirnir, sem nú vilja gjarnan festa ráð sitt í heimahögum, eiga ekki kost jarðnæðis og húsnæðis til Jress að hefja fram 1 eiðslustörf. Hin stórkost- lega fjárfesting við sjávarsíðuna og fjármagnshungur sveitanna verður enn augljósara, er menn hugleiða Jressi mál. Nú er komið útfall eftir stórflóð stríðsgróðans. Hann er nú bundinn í mörgum glæsilegum framleiðslutækj- um við sjávarsíðuna, en hann er líka að linna í of mörgum skrauthýsum þar, bifreiðum, dýrum húsgögnum og hvers kyns munaði, og loks er það, sem hefur gufað upp 1 himinhvolfið og aldrei rignir aftur ytir þetta land — fé, sem eytt hefur verið gálauslega erlendis eða liggur þar ónotað og bet- ur væri nú komið til þess að leysa Jrau verkefni við uppbyggingu landsins sjálfs, sem vanrækt hafa verið, en ljúka þarf, ef þjóðfélagið á að eiga möguleika til öruggrar og farsællar framtíðar. 3

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.