Samvinnan


Samvinnan - 01.08.1950, Side 8

Samvinnan - 01.08.1950, Side 8
Sænski samvinnuskólinn útskrifað 25.000 nemendur á 25 árum „Kennarar geta margt lært i kaupfélagsbúðunum,“ segir HARALD ELLDIN, rektor Vár Gárd VÍ HEFUR stundum verið haldið fram, að líkja mætti samvinnu- hreyfingunni við mannfólkið. í þeirri líkingu er venjulegast talað um verzl- unarstarfsemina sem líkama samvinnu- hreyfingarinnar en fræðslustarfið sem sál hennar. Hvað sem segja má um þessa lík- ingu, þá blandast samvinnumönnum yfirleitt ekki hugur um gildi fræðslu- starfseminnar fyrir samvinnuhreyfing- una. Hér á Islandi hafa samvinnu- menn rekið skóla, tímarit, bókaútgáfu og margvíslega fræðslustarfsemi jafn- framt verzlunarrekstrinum. Frá öðr- um löndum er sömu sögu að segja. í Englandi og Bandríkjunum starfa sér- stök samvinnufræðslusambönd, sem vinna í nánu samstarfi við kaupfélög- in og samvinnuheildsölurnar í þessum löndum. Svíar starfrækja ekki sjálfstætt fræðslusamband. Þar leggja samvinnu- félögin eigi að síður mjög mikla áherzlu á fræðslustarf. K. F. rekur sér- staka félags- og fræðsludeild, sem hef- ur á margan liátt gefið betri raun en fræðslusamböndin, þar sem þau starfa. Félags- og fræðsludeild K. F. er hluti af sambandinu, og sér lnin um starfrækslu tímarita, bókaútgáfu, námsflokka og skóla sænskra sam- vinnumanna. Dr. Mauritz Bonow veit- ir deildinni forstöðu, en úrvalsmenn standa fyrir hverri einstakri starfs- grein. Nýlega var einn af þessum forvígis- mönnum fræðslumála sænskra sam- vinnumanna á ferðalagi hér á Islandi. Maðurinn er Harald Elldin, rektor eins frægasta samvinnuskóla heims, „VÁR GÁRD“. 25 ára afmæli i ár. Tíðindamaður Samvinnunnar hitti Harald Elldin að máli einn daginn og spurði hann um ýmislegt varðandi starfrækslu þessa merka skóla. „Vár Gárd var stofnaður 7. júní 1925,“ sagði rektor Elldin. „Skólinn er því 25 ára gamall í ár.“ „Hver var aðdragandinn að stofnun skólans?" spyr tíðindamaðurinn. „Hugmyndin um stofnun og starf- Harald Elldin, rektor við Vir 4 Gárd í Svíþjóð, er víðþekktur menn- i ingarírömuður. Hróður hans ber hæst í á Norðurlöndum, þar sem hin manrt- í bætandi störí hans eru bezt þekkt. ? Elldin rektor var forstöðumaður j námsdeildar K. F. frá stofnun hennar > 1918, lagði grundvöllirm að bréfaskóla > sænska sambandsins og hefur stjórnað í Vár Gárd öll þau 25 ár, sem skólinn < heíur starfað. 1; Harald Elldin hefur látið alþýðu- menntun Svía mikið til sín taka. Jafn- framt fræðslustörfum sínum fyrir sænsku samvinnuhreyfinguna hefur ■! hann verið forseti SAMVIRKENDE ! BILDNINGSFÖRBUNDEN, sem er l| fræðslusamband 13 sænskra félags- !; heilda, þeirra á meðal samvinnu- og !; verkalýðsfélaéanna. rækslu samvinnuskóla er gömul innan sænsku samvinnuhreyfingarinnar. — Framsýnir fulltrúar á aðalfundum K. F. hreyfðu þessu máli mjög snemma, og árið 1907 var fyrsta samvinnunám- skeiðið haldið í Brunsvíkurskólanum í Svíþjóð." „Var þetta sérstök stofnun eða ein- stakt námskeið?” „Þetta var ekki sérstök stofnun. Frekar mætti kalla það einstakt nám- skeið. En árið 1919 var sérstök náms- deild ('Studieavdeling) stofnuð innan K. F.“. „Hvert var hlutverk þessarar náms- deildar?“ „Að leggja grundvöllinn að stofnun og starfrækslu bréfa- og samvinnu- skóla. Bréfaskólanum var ætlað það hlutverk að undirbúa nemendur und- ir munnlega námið í samvinnuskólan- um. — Reyndar fór munnlega kennsl- an ekki fram á neinum ákveðnum stað fyrr en árið 1925, að Vár Gárd hóf starfsemi sína, en haustið 1924 hafði K. F. keypt landeignir úti í Saltsjö- baden í því augnamiði að reka þar samvinnuskóla." „Hefur aðsóknin verði mikil að skólanum?“ „Já, að jafnaði hafa 1000 nemendur sótt hann á ári, en 25.000 nemendur þau 25 ár, sem skólinn hefur starfað." „Þið byrjuðuð þó smátt?“ „Já, það voru aðeins 32 menn, sem sóttu fyrsta vikunámskeiðið í Vár Gárd árið 1925. Þeir höfðu allir verið afgreiðslumenn í kaupfélagsbúðum áður en þeir komu til okkar.“ „Hefur það verið inngönguskilyrði við Vár Gárd, að nemendur hafi áður unnið hjá kaupfélagi?“ „Inngönguskilyrðin hafa yfirleitt verið þrenns konar. Eitt hefur verið, að nemendurnir hafi haft einhverja hagnýta reynslu í starfi hjá kaupfélög- um; annað, að nemendurnir hafi ann- að hvort stundað nám í bréfaskóla eða námsflokkum samvinnumanna eða hlotið fullnægjandi undirbúnings- menntun í skóla eða með sjálfsnámi; og þriðja inngönguskilyrðið hefur ver- ið, að nemendur standist almennt gáfnapróf, sem skólinn heldur." Hagnýtur skóli. „Hvernig er kennslunni hagað í Vár Gárd?“ „Við reynum að, gera hana eins hagnýta og við getum,“ svaraði rektor Elldin. „Að okkar dómi þarf sam- vinnuskóli að vera lifandi starfssskóli, hagnýtur skóli; hann þarf að vera í beinu sambandi við samvinnuhreyf- inguna sjálfa og byggður upp með þarfir hennar fyrir augum.“ „Og hvernig hafið þið farið að því að starfa í samræmi við þessa skoðun?" 8

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.