Samvinnan


Samvinnan - 01.08.1950, Síða 24

Samvinnan - 01.08.1950, Síða 24
KONURNAR OG SAMVINNAN Rúmbúnaður barna (Siðari grein um rúm og rúmbúnað) í mctrz-apríl hefti Samvinnunnar var rætt um rúm og rúmbúnað al- mennt. I þessari grein verður rúmbúnaður barna gerður að um- talsefni. Heimildir eru flestar sænskar og amerískar. Myndir af húsgögnum eru frá sænska sam- vinnufélagasambandinu, K. F. Í FYRRI GREIN um þessi mál var því lialdið fram, að ílestir myndu liggja í rúmum sínum, sof- andi og vakandi, um þriðjung æv- innar, og vegna þess m. a. væri nauð- synlegt, að hvílustaðurinn væri góð- ur. Ungbarnið liggur í rúminu all- an sólarhringinn fyrsta skeið ævinn- ar. Smám saman verður legutíminn Efri myndin sýnir rangan umbúnað. Lin undirsœng og koddi hjálpast að til þess að skaða hrygg hvítvoðungsins. liarnið á að liggja lárétt i rúminu. Enginn ltoddi og létt sæng. styttri, en þó ekki meir en það, að 10 ára barn á að sofa 11—12 klst. á sólarhring. Af þessum ástæðum má vera ljóst, að það er engu síður nauðsynlegt, að vel fari um barnið, heldur en hinn fullorðna. Bæði ligg- ur það lengur í rúmi sínu, eins og fyrr segir, og svo má heldur ekki gleyma þeirri staðreynd, að bein hvítvoðungsins eru lin og óhörðnuð, og með röngum umbúnaði er hægt að skaða þau, eins og sj;i má á mynd- unum, sem fylgja þessum þætti. RÚM FRÁ FYRSTA DEGI Hvert barn, sem fæðist, á rétt á rúmi frá fyrsta degi. Rúmið má vera einfalt og notast má við ýmislegt, ef ekki er liægt að fá gott barnarúm, því að allt er betra, lieldur en að barnið liggi við hlið móður sinnar eða systkina. Með því móti er bæði barnið og móðirin eða systkinið svipt rólegum svefni. Annað má einnig minna á í þessu sambandi, en það er smithættan. Slæmt kvef þarf ekki að gera þriggja ára barni neitt mein, en það getur, aftur á móti, verið hættulegt fyrir nýfætt barn. Yfirleitt ættu menn að varast, að koma óþarflega nálægt andliti ungbarnsins, og foreldrar ættu ekki að leyfa, að hvitvoðungurinn verði fyrir kjassi og klappi, jafnvel þótt kunningjar eigi í hlut. Einföld strákarfa getur verið gott rum fyrstu 2—3 mán. Handföng og hjólagrind eru til þœginda fyrir móðurina. Strákörfur eða kassar geta verið ágæt rúm fyrst í stað. Gott er, að á þeim séu handföng, svo að auðvelt sé að taka rúmið upp og flytja úr stað.. Karfan verður að vera nægi- lega löng til þess, að barnið geti legið þægilega, teygt úr sér, og nógu breið til þess, að auðvelt sé að búa um það, án þess að um nokkur þrengsli geti verið að ræða. Und:r körfur eða kassa er gott að hafa grind á lyjólum, og er grindin höfð það liá, að þægilegt sé fyrir móður- ina, því að hún getur tekið rúmið aður er mjög hentugur fyrir móður- ina, að búa um barnið. Þessi útbún- með sér á milli herbergja, ef með þarf og jafnvel út, ef svo stendur á. Körfuna má leggja frá sér á tvo stóla, en aldrei ætti að setja liana á gólfið, vegna kulda og súgs, sem þar kann að vera. Hjólin eru ekki til þess að rugga barninu í svefn eða hjóla því fram og aftur, þegar það grætur. Hins vegar eru þau til þess höfð, að gera móðurinni léttara fyrir með alla hirðingu á barninu og veðrun á rúminu og rúmfatnaðinum. Barna- rúm þarf að vera hægt að taka út úr herberginu með lítilli fyrirhöfn. Þegar ekki er hægt að komast út með sængurfötin til þess að viðra þau, getur verið gott að aka rúm- inu út að opnum glugga eða tit á svalir, séu þær fyrir hendi. Það er einnig hentugt að geta hjólað rúm- inu upp að miðstöðvarofni til að velgja það, eftir slíka viðrun, áður en barnið er lagt í það aftur. Yfir- leitt er það móðurinni mjög til hag- ræðis, að á barnarúminu s.éu lijól. En hún má ekki misnota þessi þægindi, t. d. með því, að koma barninu upp á það, að rugga því í svefn. Hlýrra og vistlegra er að klæða körfuna eða kassann að inn- an með einhverju þunnu efni, sem liægt er að þvo. Stundum eru not- uð spjöld, sem klædd eru efninu, en sú aðferð er fremur notuð, ef um rimlarúm er að ræða. A meðan hvítvoðungurinn liggur í körfunni, er ekki nauðsynlegt að liafa sérstaka dýnu undir honum. í þess stað er hægt að nota margfalt ullarteppi. Það er of kostnaðarsamt að gera sérstaka dýnu í körfuna, vegna þess, að barnið notar hana aðeins skamman tíma, eða um 2—3 mánuði. En teppið, sem barnið er látið Hggja á, verður að vera slétt og misfellulaust. , Rúm ungbarnsuis á aldrei að standa við útvegg og aldrei upp við heitan miðstöðvarofn. 24

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.