Samvinnan


Samvinnan - 01.08.1950, Side 27

Samvinnan - 01.08.1950, Side 27
Konum boðið á fræðslufund á Akranesi Frá samsœtinu: Frá vinstri: frú Þóra Hjartar, Hálfdan Sveinsson og frú, Sveinn Guðmunds- son, kaupfélagsstjóri og frú, Baldvin Þ. Kristjánsson, erindreki. SAMVINNA OG SAMTÖK. ETTA eru vissulega pýðingarmik- il orð, mikilsverð hugtök í mann- legu þjóðfélagi, þvi „hvað má hönd- in ein og ein“ ef ekki er unnið saman. Þess vegna hafa íslenzk kaupfélög vaxið mjög ört hin síðustu ár. Það er ekki nóg að eiginmaðurinn geri þá kröfu til konunnar að hún verzli við kaupfélagið, hvar sem þau búa, jafnvel þó að hún geri sér fulla grein fyrir vöruvöndun þess og rétt- látu vöruverði. Hjónin þurfa sam- eiginlega að kynna sér grundvöll og uppbyggingu kaupfélagsins sem hagsmunasamtaka. Eflaust er slík þekking víða til staðar, en jafn- framt má fullyrða að fjölda fólks, f það minnsta í kaupstöðum og þorp- um, er brýn þörf á auknum kynnum þessara mála. Það er því engin til- viljun að S. í. S. hefur ráðið sérstak- an mann, sem á að halda uppi fræðslu- starfsemi meðal kaupfélaganna. Fyr- ir valinu varð Baldvin Þ. Kristjáns- son, þekktur maður að greind og dugnaði. Hann hefur þegar unnið mikið og gott starf í útbreiðslustarf- seminni. í því sambandi skal hér sagt frá fræðslu- og skemmtifundi, sem Kaupfélag Suður-Borgfirðinga bauð konum á Akranesi til. Fundurinn var haldinn um miðjan apríl s. 1. í Félags- heimili templara. Auk kvennanna mættu á fundinum: Baldvin Þ. Kristjánsson kennari, Sveinn Guð- mundsson kaupfélagsstjóri og Hálf- dán Sveinsson, kennari, sem mætti fyrir hönd stjórnarinnar. Þarna voru mættar milli 70 og 80 konur og þrír karlmenn; virðast það í fljótu bragði vera nokkuð skökk hlutföll, þó allt færi vel. Baldvin Þ. Kristjánsson sagði m. a., í ágætri ræðu, sem hann flutti þarna, að einn helzti brautryðjandi Svía í samvinnumálum hefði haldið því fram, að áhrifaríkara væri að tala fyr- ir konum en körlum, og virtist mér Baldvin vera á sömu skoðun, að feng- inni reynslu. Ekki er ég í vafa um, að hjá kvenþjóðinni megi finna hinn rétta anda og hljómgrunn samvinnu- hreyfingarinnar. Auk erindrekans fluttu þarna snjallar og fróðlegar ræður kaupfé- lagsstjórinn, Hálfdán Sveinsson og frú Þóra Hjartar, sem meðal annars lýsti því, hvers vegna hún verzlaði meira við kaupfélagið en aðrar verzl- anir, og munum við vissulega lang- flestar vera henni sammála í þeim efnum. EETIR að hafa hlustað á fræðandi og skemmtilegar ræður, drukkið ágætt kaffi með tilh. meðlagi, sýndi Baldvin okkur þrjár stuttar en ágætar kvikmyndir. Að síðustu var stiginn dans af miklu fjöri. Einhverjum þyk- ir það ef til vill ótrúlegt, þar sem döm- urnar voru ca. 74 en dansherrarnir aðeins 2 — tveir —. En engum dettur í hug, að jafn dátt hefði verið dansað, ef hlutföllunum hefði verið snúið við. Eg vil svo að endingu, fyrir hönd okkar, sem þarna voru boðnar, þakka af alhug kaupfélagsstjóranum, stjórn K. S. B. og erindrekanum fyrir þessa ágætu kvöldstund, og vona að við megum allar bera gæfu til að efla vöxt og velgengni kaupfélags okkar og samvinnuhreyfingarinnar í land- inu. Jafnframt skora eg á önnur kaup- félög að taka sem flest upp þetta for- dæmi Kaupfélags Suður-Borgfirðinga. Fundarkona. Frá samsœtinu: Fundarkonur og forráðamenn kaupfélagsins. 27

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.