Samvinnan


Samvinnan - 01.05.1953, Side 12

Samvinnan - 01.05.1953, Side 12
1 tennart ttnnari itnrjiri ttnnsri f«reJóX‘ itnnti ttKHArí Jftnnari kínnarj Jtfnncfi ktnnarí ktnnari *\,ólai\ióri SAMVINNU5K0LINN VETURINN J9JZ ~ J9f3 W?i^ \,fr^ ^Sot*3-' ^ttew&r 63 nemendur útskrifaðir úr Samvinnuskólanum, þar af 55 úr aðaldeild og 8 úr framhaldsdeild Samvinnuskólanum var slitið 1. maí síðastliðinn með hátíðlegri at- höfn í kennslustofum skólans, eins og venja er til á hverju vori. Að þessu sinni útskrifuðust 55 nemendur úr aðaldeild skólans og 8 úr framhalds- deild. I Samvinnuskólanum var í vetur, eins og venjulega, margt efnilegt námsfólk, enda munu í fáum skólum vera að jafnaði eins þroskaðir og námfúsir nemendur. Nýtur skólinn þess, að nemendur eru oft nokkru eldri en menntaskólanemendur og koma í skólann með mikinn náms- áhuga, en er ekki þröngvað til náms af aðstandendum, eins og oft vill verða um þá, sem „eiga“ að ganga menntaveginn. Hæstu einkunnir í aðaldeild hlutu Gísli Sigurðsson 9.17, Guðmundur Ó. Guðmundsson 8.98 og Þórarinn Val- ur Arnþórsson 8.86. í framhalds- deild hlutu hæstar einkunnir Magnús Kristinsson 8.69, Páll Guðbrandsson 8.60 og Kjartan Kjartansson 8.48. Við skólaslitin hélt Jónas Jónsson skólastjóri skólaslitaræðu og flutti hvatningarorð til nemendanna. Benti hann þeinr á, að næg verkefni biðu þeirra í þjóðfélaginu. Einnig benti hann nemendum sínum á það, að þó menn væru meira og minna óá- nægðir með gamla landið, væri það samt svo, að flestir þeir, sem fara til útlanda til lengri eða skemmri dvala, sneru aftur til gamla landsins til að setjast þar að. Við skólaslitin afhenti skólastjóri nemendum prófskírteini og árnaði þeim hamingju og heilla. Að loknum prófum fóru nemend- ur í ferðalag um Suðurlandsundir- lendi. 12

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.