Samvinnan - 01.05.1953, Blaðsíða 21
Mjólkurframleiðslan er eitt erjiðasta vandamál Bensons. — Myndin s\nir eitt af hinum fullkomnu
mjólkurbúum i Wisconsin.
(Frh. af bls. 7).
hagkvæmari matarmeðferð á heimil-
unum. Slík eldhús hafa gefizt vel í
nágrannalöndum okkar. Einnig eru
mikil verkefni í sambandi við sauma-
skap á heimilum, og gætu samvinnu-
samtökin gert enn meira en þau hafa
gert til að útvega snið af ýmsum flík-
um og gera húsmæðrum auðveldara
að sauma sjálfar.
Hér á landi hafa ekki verið stofn-
uð sérstök húsmæðrafélög í sambandi
við kaupfélögin, en erlendis eru þau
víða til, og halda uppi margvíslegri
starfsemi. I Svíþjóð gefa kvennasam-
tökin til dæmis út sérstakt tímarit,
og þau hafa þar orðið fræg fyrir hús-
mæðraleikfimi, er þau hafa gengizt
fyrir. Má segja frá því hér til gam-
ans, að í sumar munu 200 sænskar
kaupfélagskonur sýna leikfimi á al-
þjóðlegu fimleikamóti í Hollandi.
Samvinnuhreyfingin á Islandi þarf
að fá konurnar meira í Iði með sér en
verið hefur, og það er ánœgjulegt að
sjá merki þess, að áhugi á því sé
vaxandi. A komandi sumri hafa til
dœmis tvö stór kaupfélög pantað tíma
í Bifröst til þess að geta boðið þang-
að kvennahópum, og fleira af slíku
tagi mœtti til nefna.
Bóndi, samvinnu-
maður...
(Frh. af bls. 16).
stjórna kirkjunni. Þeir vinna öll
prestverk og auk þess er það trú mor-
móna, að þeir fái vitranir. Var Benson
kallaður til starfs sem einn hinna tólf
postula, og lét hann þá af virðingar-
embætti sínu í Washington og hvarf
til Salt Lake City og tók við postula-
starfinu, sem ekki er launað nema rétt
fyrir nauðþurftum. Þurfti hann að
ferðast víða í erindum kirkjunnar og
gegndi fyrir hana margvíslegum störf-
um.
Þegar Eisenhower kallaði Benson
til fundar í New York til þess að fela
honum ráðherra embættið, bar Ben-
son sig saman við æðsta prest kirkj-
unnar og hina postulana, og var það
ráð þeirra, að hann skyldi takast
embættið á hendur. Lét hann þá til
skarar skríða.
Benson byrjaði á því að fara í ferða-
lag um Bandaríkin þver og endilöng
til þess að kynna sér ástandið í land-
búnaðarmálum og kanna álit bænda
á hinu umfangsmikla ráðunej^ti, sem
hann átti að taka að sér, en fjárveit-
ing til þess nemur um 11.700.000.000
króna íslenzkra! Hann hefur síðan
átt við mikla erfiðleika að etja, en
samt komið fram ýmisum nýjungum
og skipulagsbreytingum, er miða að
aukinni hagsjmi. En það er enn
skammt liðið, síðan hann kom öðru
sinni til Washington, og bíða menn
þess nú að sjá, hverju hann kann að
koma til leiðar í hinu ábyrgðarmikla
embætti.
Samvinna á
kaffiekrum
(Frh. af bls. 9).
sem orsakast af fjarvist nemandans
af heimili hans, meðan á námi stend-
ur. Eru þeir skólar áreiðanlega ekki
margir, sem telja sig færa um slíkt.
Þegar höfðinginn hefur slitið dómi
og lokið embættisstörfum sínum þenn-
an daginn, er okkur boðið upp á bolla
af Kilimanjarokaffi. Það þiggjum við
með þökkum, og víst er um það, að
kaffið var hið prýðilegasta.
Þegar bókasöfn Fiskes voru flutt
vestur um haf, fylgdi Halldór Her-
mannsson íslenzka safninu og var ráð-
inn bókavörður þess. Gegndi hann því
starfi til 1948, nema hvað hann var
um skeið bókavörður Háskólasafns-
ins í Kaupmannahöfn. Cornellháskóli
réði hann þó aftur til sín og gerði hann
að prófessor. Gaf Halldór út merkar
bókaskrár og hóf útgáfu á ritinu Is-
landica, þar sem hann hefur birt mik-
inn fjölda ritgerða um íslenzk fræði,
og eru þær hinar merkustu, og bera
Ijósan vott fræðimennsku Halldórs.
Nú hafa ungir menn tekið við starfi
Halldórs í Iþöku hinni vestri, og von-
andi verður unnt að halda við hinu
merka sögulega íslenzka bókasafni þar
í framtíðinni og auka það.
Konurnar og
kaupfélögin
21