Samvinnan - 01.05.1953, Blaðsíða 2
Útgefandi: Samband íslenzkra
samvinnufélaga.
Ritstjóri: Benedikt Gröndal.
Ritstjórn og afgreiðsla í
Sambandshúsinu, Reykjavík.
Ritstjómarsími 7080.
Kemur út mánaðarlega.
Verð árgangsins kr. 40.00.
Verð í lausassölu S kr.
Prentsmiðjan Edda.
Efni:
Árásirnar á samvinnusam-
tökin 3
íslenzka bókasafnið í Cornell 4
Konurnar og kaupfélögin 6
Samvinna á kaffiekrum
Kilimanjaro 8
Dagsbrún í Ólafsvík 10 ára 10
Samvinnuskólinn 12
Sjónvarpið 13
Bóndi, samvinnumaður 15
Umferðin í Reykjavík 16
MAÍ 1953
XLVII. árg. 5.
2
ÞAÐ ER RÓSTUSAMT í stjórnmál-
unum á þessu vori, og svo hefur farið,
sem vænta mátti, að samvinnufélögin
hafa verið mj ög dregin inn í deilur og
dægurþras. Hefur verið hart að þeim
höggvið, eins og rætt er um í rit-
stjórnargrein á næstu síðu, og einskis
látið ófrestað til þess að sverta þau
og starfsemi þeirra.
í ÞESSU SAMBANDI er það um-
hugsunarvert, að kaupfélögin eru
flest hlédræg, þegar kemur til opin-
berra frásagna af starfi þeirra. Kaup-
félagsstjórarnir eru flestir fyrst og
fremst verzlunarmenn, sem hafa ær-
in verkefni í daglegu starfi fyrir fé-
lagsfólkið, og þeim er margt betur
lagið en að halda uppi auglýsinga-
starfsemi um sig og sitt starf. Er þetta
mjög eðlilegt.
HINS VEGAR verður að svara slík-
um árásum, sem nú hafa verið gerðar
á kaupfélögin, og bezta svarið við
þeim er allur sannleikurinn um starf-
semi samvinnufélaganna. Tökum til
dæmis eitt kaupfélag, Kf. Vestur-
Húnvetninga. Það lætur ekki mikið á
sér bera á opinberum vettvangi, en þó
kom að því, að gefin var skýrsla um
starf félagsins á síðasta ári á aðal-
fundi, og af því bárust fréttir. Þá
kom í ljós, að þetta eina félag hafði
endurgreitt til félagsmanna rúmlega
176.000 krónur og greitt í Stofnsjóðs-
reikninga þeirra að auki yfir 27.000
krónur. Samtals hafði félagið því
skilað aftur til félagsmanna um
204.000 krónum, sem nemur 4—500
krónum á hvern félagsmanna.
•
SLÍKUR VITNISBURÐUR er í
raun réttri betra svar en langar
ádeilugreinar. Hann talar svo skýru
máli um starf þessa kaupfélags, og
sannleikurinn er sá, að þau starfa öll
í þessum sama anda, þótt árangur sé
að vonum misjafn og aðstæður ólíkar.
Sömu sögu er að segja um verðlag.
Almenningur er þeirrar skoðunar, að
ekki sé ódýrara að verzla við kaupfé-
lögin en kaupmenn. Að vísu er það
ekki stefna kaupfélaganna að selja
lægra verði en tíðkast á hverjum
tíma, heldur endurgreiða eftirá, eins
og Vestur-Húnvetningar hafa gert.
Samt kemur það í ljós við athuganir,
að verðlag kaupfélaganan er lægra en
kaupmanna. Eitt dæmi var nefnt
þessu til stuðnings í síðasta hefti, og
annað dæmi var þar raunar einnig,
er skýrt var frá því, að Kaupfélag Ár-
nesinga seldi allmargar matvöruteg-
undir undir Reykjavíkurverði, þrátt
fyrir flutningskostnað. Slík dæmi
mætti finna um allt land, og er brýn
þörf á því að safna saman slíkum
upplýsingum og koma þeim fyrir al-
mennings sjónir.
SIGLINGAMÁL samvinnumanna
hafa tekið stökkbreytingum á undan-
förnum árum, allt frá því fyrsta skip-
ið, Hvassafell, kom til landsins 1946,
til þessa dags. Þetta fyrsta skip sam-
vinnuflotans varð nýlega f-yrst ís-
lenzkra skipa til þess að sigla alla
leið til Brazilíu með saltfiskfarm.
Var þetta löng ferð og að mörgu leyti
ævintýraleg fyrir hina íslenzku sjó-
menn, en sjálfum þótti Brazilíumönn-
um ekki síður tíðindi að komu skips-
ins þangað-en okkur þótti af förinni
hér uppi á íslandi. Birtu blöðin frá-
sagnir af skipinu, viðtal við Berg
Pálsson skipstjóra, og upplýsingar um
land og þjóð, — allt undir stórum
fyrirsögnum.
BACALHAU DA ISLÁNDIA
DESEMBARCADO EM SANTOS
stóð í einu blaðinu, og mun þýða:
„Saltfisk frá íslandi afskipað í San-
tos.“ í greininni eru allítarlegar upp-
lýsingar um SÍS (Federagðo Coopera-
tiva da Islándia) og kaupfélögin og
marrgvíslegur fróðleikur annar. Hef-
ur því för þessa ágæta „navio-motar
islandés" undir stjórn „o capítöo Pals-
son“ orðið til ágætrar landkynningar
auk þess að vera nýtt spor í siglingum
íslendinga.
ÖNNUR FREGN af siglingamálum
samvinnumanna er sú, að sennilega
veruðr hið nýja skip „Dísarfell“,
komið til landsins, áður en næsta
hefti kemst til lesenda og flotinn þá
orðinn fjögur myndarleg skip. Hið
fimmta er í smíðum í Svíþjóð!