Samvinnan


Samvinnan - 01.02.1956, Síða 5

Samvinnan - 01.02.1956, Síða 5
sterkari verður þjóðin á sínum grunni og er það vel skiljanlegt, því að „holl- ur er heimafenginn baggi“. „I sveita þíns andlitis skaltu þíns brauðs neyta“. Þetta er fyrsta boð- orðið frá skaparanum til mannanna, þegar hann gaf þeim jörðina til afnota. Þetta boðorð ber að uppfylla og allir heilbrigðir geta það, með því að stunda nauðsynleg störf. Þeir, sem ekki skeyta um þetta boðorð, verða þjóð sinni til erfiðleika, en sjálfir í lögbroti fyrir hásætinu. Starfandi landbúnaðarfólk uppfyll- ir þetta háleita boðorð mjög dyggilega að segja má, því að íslenzkt bænda- fólk er mjög ástundunarsamt og dug- legt og sníður kröfur sínar til daglegra þæginda samkvæmt þeim möguleik- um og aðstæðum, sem fyrir hendi eru á hverjum tíma. Gegn öllu harðæri beitir það þeirri aðferð að lengja sinn eigin vinnutíma daglega, en lækka út- gjöldin til þess ýtrasta. Þetta er dugn- aður og dyggð og þetta er að uppfylla boðorðið. í góðæri og í meðalári eru svo allar hendur á lofti í sveitunum til framtaks og nýrra framkvæmda. Svo sem áður er að vikið, þá er það landbúnaðurinn, sem veitir öllum í landinu hinar dýrmætustu lífsnauð- synjar til fæðis og klæða. Allar þær hundruðir milljóna króna í verðlagn- ingu, sem landbúnaðurinn framleiðir árlega, eru ekki séðar, svo sem vera bæri, sem kemur af því, að þjóðin not- ar landsnytjarnar til daglegra þarfa, en hefir ekki um þetta verzlunarfrétt- ir eða frásagnir, sem þó nauðsynlegt væri, því að atvinnuvegurinn er und- ir vanmati hjá öllum þorra fólksins í landinu. Landbúnaður, ræktun og gróður jarðar veitir fyrstu skilyrði til þess, að í landinu nái að viðhaldast og þró- ast íslenzkir lifnaðar- og menningar- hættir. Þetta þarf þjóðin öll að skilja og þessu þarf sveitafólkið að vaka vel yfir. Þar af leiðandi og í sambandi við gróður jarðar og fjölbreytni alla í sveitum landsins, eru hin æskilegustu skilyrði til uppeldis og þroska börn- um og æskulýð landsins, til þjóðlegs þroska og menningar. Nú er viðkom- an of lítil í sveitunum, en svo mikil í þéttbýlinu, að til stórvandræða horf- ir til vænlegs þroska æskunni. Nú er fjöldi bama frá þéttbýlinu sendur til sumardvalar í sveitirnar. Er það stærra mál en fólk virðist gera sér grein fyrir. I því felst mikill stuðning- ur frá sveitunum til þéttbýlisins. En vel þarf að halda á þessu máli og vel mætti það verða að nokkm leyti gagnkvæmt, þannig að fleira eða færra af þeim stóra barnahóp, sem sendur er árlega upp í sveitirnar frá kaup- stöðunum yrði viðloðandi í sveitun- um og þar góðir borgarar. Við gróður jarðar, dýralíf sveitanna og aðra fjölbreytni má segja að fólk- ið þar sé í sambandi við lífið sjálft. En það hefur sín sterku áhrif við mót- un og þroska fólksins, sem þar elzt upp og býr. Þegar boðuð er myndasýning á ein- Rœktun landsins er enn á byrjunarstigi. Landbúnaðurinn er undirstaÖa fyrir búsetu þjóðarinnar I landinu. Bcendur landsins eru nú um 6300. hverjum stað, hópast fólk saman til að horfa á myndirnar. Flestar verða þessar myndir aðeins til þess að drepa tímann. Þó geta þær haft víðtækari áhrif. En mundi vera nógu vel tekið eftir þeim myndum, sem blasa við í sveitunum, einkum þá, er jörðin hef- ur færzt í skrúða sumarsins og allt vottar sumarsins angan. Þessar mynd- ir sýna veruleikann, lífið sjálft, svo að ekki verður í efa dregið. Við þess- ar myndir, þessa útsýn og þá stað- háttu, sem sól, regn og gróður jarðar skapar, byggir sveitafólkið upp land- búnaðinn og sveitamenninguna. Hver sem les bók Þorvaldar Thor- oddsens: „Árferði á íslandi í þúsund ár“, getur þai á bak við línumar les- ið landbúnaðarsöguna á umliðnum öldum. Landbúnaðurinn var varnar- laus gegn offorsi harðæris og hallæra. Búfénaðurinn féll úr hor og fólkið dó af fæðuskorti. Þessi ósköp skeðu hér við og við fram á síðustu öld. Jafnvel er talið, að eitthvað hafi dáið af þess- um sökum um 1882 í harðærunum þá. Á þessari öld hefur landbúnaður- inn beðið stórtjón vegna fóðurskorts handa fénaði í harðæri, til dæmis árin 1906, 1910, 1914 og 1920. En nú er svo komið, að sigur er unninn á þess- um mikla örðugleika, sem segja má, að haldið hafi íslenzkum landbúnaði niðri um Iiðnar aldir. Er þar náð stór- um áfanga í sögu landbúnaðarins. Frá Höfuðdegi 1948 til 1. sept. 1952, eða í fimm ár, var harðæri hér, eink- 5

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.