Samvinnan


Samvinnan - 01.02.1956, Page 11

Samvinnan - 01.02.1956, Page 11
Nýtt kaupfélagsfrystíhús í Ólafsvík Fyrir nokkru var vígt í Ólafsvík nýtt frystihús, sem Kaupfélagið Dagsbrún hefur komið upp. Er þetta í alla staði mjög myndarlegt og full- komið hús, þar sem ekkert hefur ver- ið til sparað að gera vinnsluna sem hagkvæmasta og bezta. Fögnuðu Ól- afsvíkingar hinu nýja húsi í fjölmennu samsæti, þar sem Alexander Stefáns- son, kaupfélagsstjóri, gerði grein fyrir tildrögum og byggingu hússins, en margir fleiri, heimamenn og gestir, tóku til máls. Ólafsvík er einn þeirra fáu staða á landinu, þar sem tvö kaupfélög eru starfandi, Kf. Ólafsvíkur og Kf. Dagsbrún. Er hið fyrrnefnda eldra, en meirihluti félagsmanna vildi ekki, að það gengi í SÍS eða hefði náið sam- starf við önnur kaupfélög landsins. Var Dagsbrún stofnuð 1943 og hefur verið hið farsælasta félag, hefur meiri- hluta verzlunarinnar, hefur getað eign- azt myndarlegan stofnsjóð og hefur nú hrint í framkvæmd mesta áhugamáli sínu, frystihúsinu. Á sama tíma bendir margt til þess, að hitt félagið fylgi grundvallarreglum samvinnufélaga ekki betur en svo, að hæpið getur ver- ið að kalla það kaupfélag. Hið nýja frystihús er langstærsta átak Ólafsvíkinga í atvinnumálum sínum. Þar er fynr eitt fryStlhÚS (að Ur móttökusal og vinnslusal frystihússins i Oiafsvík. meirihluta eign peningamanna í Reykjavík), og hefur frjálslyndum mönnum þótt völd þess í atvinnulífi staðarins alltof mikil. Nú er sú ein- okun brotin á bak aftur og afkomu- möguleikar Ólafsvíkinga stórbættir. Vöxtur og velmegun er nú í Ólafs- vík, byggingar og aðrar framkvæmdir undanfarin ár miklar og bátum fer ört fjölgandi. Ibúar eru um 600 en auk þeirra allt að 200 aðkomumenn á ver- tíðinni. Alexander Stefdns- son, kaupfélagsstjóri kaupfélagsins Dags- brún, i Ólafsvik. 11

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.