Samvinnan


Samvinnan - 01.09.1956, Side 17

Samvinnan - 01.09.1956, Side 17
ið, — nei, nei, þetta var fjarstæða .... Honum létti stórlega, þegar hann heyrði, að hestarnir voru komnir í hlaðið. Hann kvaddi konu sína í skyndi og svo reið hann, ásamt vinnu- mönnunum, eins og leiðin lá að Blesu- koti. IV. M aurakistan. „Hér er ekkert meira að gera,“ sagði Haraldur sýslumaður, þegar hann var búinn að yfirheyra fólkið í Blesukoti. Það hafði ekkert getað sagt annað en að grímuklæddir ræningjar hefðu ruðst inn í bæinn, bundið fólkið og rænt peningakistli Þórðar gamla. Sýslumaður lét menn sína leita vand- lega í húsunum, ef vera mætti, að ræningjarnir hefðu skilið eitthvað eft- ir, sem gæti gefið vísbendingar um þá, en leitin varð árangurslaus. Nei, hér var ekkert hægt að gera frekar. Þórður gamli bar sig mjög aumlega og var alltaf að biðja blessaðan sýslu- manninn að hafa hendur í hári ræn- ingjanna, svo að hann fengi pening- ana sína aftur. Loks var sýslumaður orðinn svo þreyttur á þessu, að hann skipaði karlinum að halda sér sam- an. Og bætti við: „Það er embættisskylda mín að reyna að grafast fyrir rætur þessa máls, en það verður eftir öllum sól- armerkjum að dæma erfitt. En það máttu vita, Þórður, að betur hefðir þú varið einhverju af peningunum, ef þú hefðir rétt einhverjum fátækum vesalingi bita, sem bar að garði þín- um, í stað þess að láta þá veslazt upp og deyja í hlaðvarpanum hjá þér. Þetta er þér ekki annað en mátulegt fyrir alla nízkuna, en auðvitað verða ræningjamir að finnast.“ „Og hengjast í hæsta gálga!“ sagði Þórður gamli vesaldarlega og gaut augunum út undan sér á fylgdarmenn sýslumanns. Sýslumaðurinn leit við honum með fyrirlitningu, gekk síðan út og benti fylgdarmönnum sínum að fylgja sér eftir. Þeir riðu þögulir heim á leið. Frá Blesukoti var ekki mjög löng leið nið- ur á Þvereyri. Haraldur sýslumaður var að velta því fyrir sér, hvort hann ætti að nota tækifærið og ríða þang- að til að spyrjast fyrir um Atla. Nú var hann ákveðinn í að sættast við son sinn, et hann tyndi hann, og leyfa honum að fara utan. Einhver óljós grunur um, að synjun hans um farar- eyri handa syni sínum hefði orðið ör- lagarík, settist að í hugskoti hans. Þannig riðu þeir þegjandi þangað til þeir komu að Fjarðaránni. Þegar yf- ir ána kom, fóru þeir af baki og lofuðu hestunum að grípa niður. „Hvað er þetta?“ sagði Þorbjörn vinnumaður og benti á dökka þústu á hólbarði skammt frá götunni. „Sérðu ekki, að það er silunganet,“ sagði félagi hans. „Hann hefur verið að veiða í nótt, hann Broddi á Fjarð- arenda. Eitthvað hefur hann nú veitt, úr því að hann treystist ekki til að bera netið heim.“ „Já, ég sé netið. En hvað er þetta bláa þarna hjá því?“ sagði Þorbjörn. ,,Við skulum athuga það,“ sagði hinn vinnumaðurinn og hljóp þangað, sem netið lá. Allt í einu rak vinnumaðurinn upp undrunaróp. „Komdu strax hingað, húsbóndi góður!“ Sýslumaðurinn reis upp, en hann hafði setzt niður meðan þeir áðu og studdi hönd undir kinn. Vinnumenn- irnir höfðu ekki þorað að yrða á hann á leiðinni, því að þeim virtist hann vera í þungum hugsunum. Netið lá á jörðinni, en undir því var blámálaður kistill, járnbenntur. Hafði hann verið brotinn upp með því að spenna hjarirnar lausar. Tré- flísar og rusl, ásamt nokkrum kopar- peningum, lá á víð og dreif í kring. Auðséð var, að kistillinn hafði verið brotinn upp á þessum stað. Sýslumaðurinn leit á verksum- merkin. Svo sagði hann: „Mikið skjátlast mér, ef þetta er ekki maurakistan hans Þórðar gamla. Ríðum í skyndi aftur að Blesukoti og fáum úr því skorið með öruggri vissu.“ Sýslumaður leit á netið. Hann var alvarlegur á svipinn. Vinnumennirnir höfðu talið víst, að eigandi þess væri Broddi á Fjarðarenda. Og kistillinn í netinu! Hvernig vék þessu við? Gat það verið, að Broddi. . ..? Hefði kast- að þessu frá sér í skyndingu, til þess að fela féð, og ætlaði sér svo að af- má öll verksummerki .... Jæja, þetta varð að rannsaka .... Þeir riðu á harðaspretti til baka. Fólkinu í Blesukoti varð hverft við, þegar yfirvaldið kom aftur. Sýslu- maður hafði engin umsvif, kallaði fólkið saman í baðstofukytrunni og sýndi því kistilinn. Bar það strax kennsl á hann; þetta voru leifamar af maurakistu Þórðar gamla. Hann grét, þegar hann sá kistilinn tóman og svona útleikinn. „Það ætti að hengja helvítis þrjót- ana tvisvar fyrir þetta,“ sagði hann með sinni vesældarlegu rödd og titraði af reiði. ,,Fyrst er að finna þá,“ sagði sýslu- maður og leit til vinnumanna sinna að- varandi augnaráði. Hann kærði sig ekkert um ,að karlinn fengi vitneskju um, hvar kistillinn fannst. Enda þótt það væri ósæmileg hugsun hjá yfir- ’manni Iaga og réttar, fannst honum þetta í rauninni mátulegt á þennan gamla maurapoka. Þegar komið var í hvarf frá Blesu- koti, fór sýslumaðurinn af baki. Vinnumennirnir gerðu slíkt hið sama. Þeir tóku eftir því, að húsbóndi þeirra var óvenjulega þungbúinn á svipinn. Hann gekk fram og aftur á grundinni og strauk hökuskegg sitt í ákafa. Loks sneri hann sér að þeim og sagði: „Bámð þið kennsl á netið?“ „Nei, húsbóndi góður, en við vitum eins og flestir hérna á bæjunum, að þeir Fjarðarendafeðgar stunda mjög veiði í ánni og þóttumst því vissir um, að þeir ættu netið,“ svaraði Þorbjörn. „Nú skal ég segja ykkur nokkuð! IIIIIIIII!II1IIIUIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII!IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII|II1IIIIIIIIIIIIIIIIII||||||!I|||||||||||||||||||||||||||!|||||||| Ágrip af því, sem áður er komið . . . Tveir ræningjar brjótast inn um nótt hjá Þórði gamla í Blesukoti, sem er forríkur nirfill, og ræna peningakistli hans, en binda fólkið f rúmunum. Broddi, sonur Torfa bónda Jónssonar í Fjarðarhorni, var að veiðum seint um kvöldið. Hann lét netið liggja eftir við ána. Hann er ógiftur, en ástfanginn í Höllu, dóttur Haralds sýslumanns á Felli. Hún á aftur á móti að giftast syni prófastsins í Tungu. Gömul vinátta var með sýslu- manni og Torfa á Fjarðarenda...................................... !l!llllllll!H!llllllll!lllll!ll!IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIUIIIIIIIIIII!ll!llll!llllllllllllll!llllllllllllll!ll!lllll!IHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIinilllllllllllllllllllll!llllllllllllll 17

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.