Samvinnan


Samvinnan - 01.09.1956, Qupperneq 26

Samvinnan - 01.09.1956, Qupperneq 26
Sorgarleikur i sentímetrum SMÁSAGA EFTIR ARTHUR OMRE Það var eitt af þessum vonglöðu vorkvöldum. Eg rakst á vin minn og við gengum eftir götunni, án nokkurs flýtis, og áfram gegn um garðinn. Ég naut vorsins, það var nýtt lauf á trjánum, fagrar konur á gangi. Vinur minn virtist áhyggjufullur. Ég fór að hugsa um, hversu fljótt hugur hans myrkvaðist stundum, þótt hann ann- ars væri í ágætu skapi. Hann gat orð- ið snögglega bölsýnn. Allt í einu sagði hann: — Hvað ertu eiginlega hár? — Nú, það veit ég nú bara ekki ná- kvæmlega. Ég er rétt meðalmaður. — Þremur sentímetrum hærri en ég, sagði hann og leit upp. — Tja, kannske það, sagði ég í létt- um tón. — Þú hefur víst æfingu í að dæma hæð á fólki. Hann muldraði eitthvað og fékk áhyggjusvipinn aftur. — Það munar mikið um þrjá sentí- metra, tautaði hann. Hann varð reglulega sorglegur. Þetta vakti furðu mína, því hann var annars vel til hafður og virðulegur maður, hraustur vel og þar að auki var hann í ágætri stöðu, sem hann kunni vel við og hafði áhuga á öllu, sem vert er að hafa áhuga á. Hann var á þrítugasta og fimmta aldursári og síðast en ekki sízt var hann nýgiftur og konan talin góð- ur kvenkostur. Hann bauð mér heim til kvöldverð- ar og hringdi heim til sín úr blaðsölu- skúr. Hann fræddi mig á því, að kon- an sín væri slæm í fæti, svo að hún yrði að sitja að mestu. Nú hugsaði ég: Ef til vill er það þess vegna, að hann verður stundum þunglyndur. Kannske það sé eitthvað alvarlegt með fótinn á frúnni. Þau bjuggu mjög skemmtilega. Snotur vinnukona tók á móti okkur í forstofunni og sagði, að maturinn væri tilbúinn. Frúin sat við borðið; hún rétti mér brosandi höndina og jós upp súpunni. Ég fann, að hún var geð- felld og fögur kona. Við urðum góðir vinir áður en kvöldið var úti. Það var ekki minnzt á slæmskuna í fætinum. Maður er ekki vanur að vera að minnast á það, sem áfátt kann að vera við þá, sem maður hittir í fyrsta sinn. Ég var þar tíður gestur seinna um sumarið. Stundum kom hann með mér út á eftir, en alltaf einn. Ég heyrði, að það væru fleiri en ég, sem undruðust, að hann skyldi aldrei fara með konuna út með sér. En konuna þekktu fáir, hún var aðflutt, var frá smábæ þar skammt frá. Þegar ég kom aftur til borgarinnar eftir árs fráveru, var vinur minn skil- inn við hina fögru frú sína. Ég skildi hvorki upp né niður, en hann sagði bara: — Það hafði sínar orsakir. Þetta var mér að kenna. — Önnur kona, hugsaði ég. Grunur minn varð að vissu, þegar ég sá hann með lítilli og heldur ósélegri dömu með ljóst hár og spékoppa. Þau giftu sig líka eftir viðeigandi tíma. Þau virt- ust eiga vel saman, og hún beið alltaf eftir honum, þegar hann kom af skrif- stofunni, og hékk í handleggnum á honum og starði beint upp til að sjá framan í hann. Hann var að vísu ekki hár, en hún var svo lítil og kringlótt, að maður hlaut að brosa. Ég gat aldrei hætt að hugsa um fyrri konuna hans. Við höfðum orðið góðir vinir í nokkrum kvöldverðar- boðum. Já, — það kom fyrir, að ég hugsaði meira en lítið um hana. Eitt vorkvöld rákumst við næstum því saman. Hún roðnaði eins og ung- mey, stóð vandræðaleg augnablik, hneigði sig síðan og rétti mér höndina. Fögur var hún enn, en — stór var hún. Það getur verið, að ég hafi séð hærri konur, en ekki mragar. Mér fannst ég allt í einu vera orðinn eins og dvergur. Við gengum saman upp götuna. Nokkrir kunningjar gengu framhjá — og brostu. Þeir brostu á alveg sérstakan hátt. Mér satt að segja líkaði það ekki. En mér féll vel við frúna, það var enginn vafi. Ég bauð upp á kvöldverð á þægi- legu veitingahúsi, en ekkert langaði mig til að ganga úti á götu, þar sem allir gátu séð okkur. Kvöldið var skemmtilegt og ég gleymdi því næst- um, að hún var svo hávaxin. Við skildum þar á veitingahúsinu það kvöld. Við borðuðum saman á veitinga- húsinu allt vorið og sumarið, en alltaf skildi ég við hana þar. En á kvöldin fór ég heim til hennar, og það fór vel á með okkur, — mjög vel. Það var einn regngráan september- dag, að ég bað hennar. — Heyrðu, sagði ég, — eigum við ekki bara að gifta okkur? Við eigum vel saman, og þér fellur kannske vel við mig með tímanum. — Kjáni, sagði hún, — mér fellur vel við þig og þú veizt það. En . . . — En? sagði ég. — Jú, þú veizt það líka, sagði hún, — ég kæri mig ekkert um að leika sorgarleikinn upp aftur. Þú vissir, að hann kvaldist, af því að hann var svo lítill, hann þorði ekki að láta sjá sig með mér úti, en kvaldi mig til að sitja inni og sitja á stól, þegar þú komst. Það kom enginn annar til okkar, eng- inn. Ég sé það allt fyrir mér eins og 26

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.