Samvinnan


Samvinnan - 01.09.1956, Síða 45

Samvinnan - 01.09.1956, Síða 45
ÞESSA DAGANA er á siglingu langt suður við lönd stærsta skip íslendinga, hið nýja olíuskip samvinnumanna. Fjörutíu íslenzkir sjómenn hafa fengið ágæta atvinnu og á næsta ári mun helm- ingur þeirra milljóna, sem þjóðin hingað til hefur greitt til erlendra skipaeigenda fyrir oliuflutninga, renna til þess að greiða niður íslenzk skip og launa ís- lenzka sjómenn. Þetta er mikið skref, því að olíuflutningar eru eitthvert dýrasta og ævintýralegasta svið allra siglingamála. MILLJÓNIR HAFA TAPAZT. Það var ekki seinna vænna, að íslendingar létu hendur standa fram úr ermum á því sviði, enda hefur þjóðin þegar tapað milljónum króna á því, að SÍS og Olíufé- lagið ekki fengu að kaupa slíkt skip. Vil- hjálmur Þór hafði þá tilboð um sænskt skip og gat útvegað lán til kaupanna, en stjórnarvöld hér heima fengust ekki til að veita leyfi. Annað hvort hafa menn ekki skilið slikan stórhug að kaupa þrisv- ar sinnum stærra skip en Tröllafoss, — eða það hefur rekizt á einhverja hags- muni, að samvinnumenn fengju að ríða á vaðið í þessu máli. Hvað sem olli, þá er þjóðin nokkrum milljónum fátækari fyrir þann drátt, sem varð á kaupum slíks skips. Á SAMA HÁTT má segja, að það komi betur í ljós með hverjum degi hvílík gæfa það var aö kaupa hið nýja skip nú. Nokkrum vikum eftir að SÍS og Olíufélag- ið festu kaupin, hefði verið hægt að selja skipið aftur með miklum gróða. En til þess var leikurinn ekki gerður. Þetta skip getur flutt rúmlega helming alls benzíns og olíu, sem Islendingar nota, og það verður hlutverk þess á komandi árum. ÁSTÆÐAN TIL ÞESS, að hægt hefði verið að selja skipið svo fljótt með gróða, er hin sama sem veldur hinum gífurlegu hækkunum á farmgjöldum fyrir olíu. Undanfarin ár hefur olíunotkun víðs vegar um heim aukizt gífurlega mikið. Þetta stafar bæði af minnkandi kola- framleiðslu og auknum iðnaði og heim- ilisnotkun olíu. Nú hafa skipasmíðastöðv- ar um heim allan keppzt við að smíða olíuskip til að flytja alla þessa olíu, en þær hafa ekki haft við. Ástæðan til hækk- andi flutningsgjalda og hækkandi verðs olíuskipa, er hreinlega þessi: flutninga- þörfin hefur vaxið hraðar en olíuskipa- ílotinn. BIFRÖST BEÐIN AFSÖKUNAR. Einn af hæstráðendum til sjós og lands hjá SÍS, sá sem svarar fyrir sumarstarfsemi Bifrastar, lét brúnir síga, þegar hann hitti ritstjóra Samvinnunnar nýlega. — Nú er ástandið orðið slæmt, sagði hann, þegar Mánudagsblaðið er orðið betra við SÍS heldur en sjálf Samvinnan! Ha? datt út úr ritstjóratetrinu. — Já. Mánudagsblaðið viðurkennir, að Blfröst sé fyrsta flokks veitinga- og gisti- hús, þó hún sé „þvi miður“ eign Sam- bandsins. En Samvinnan stimplar Bifröst sem þriðja flokks gistihús! Haaa? datt út úr ritstjóratetrinu. — Ég fæ ekki betur séð i grein Þor- steins Jósefssonar, en að öll íslenzk gisti- hús séu undantekningarlaust stimpluð þriðja flokks á alþjóðlegan mælkvarða, og það þykir okkur harður dómur um Bifröst. — Þetta er einhver misskilningur, taut- aði ritstjóratetrið. — Nei, þetta stendur skýrum stöfum í Samvinmmni. Ritstjóratetrið, sem hefur margsinnis notið gómsætra rétta og sofið svefni hinna réttlátu í þægindum og vellysting- um Bifrastar, varö orðlaus. Það reyndist sem sé rétt, að Þorsteinn kollega Jóseps- son hafði tekið munninn helzt til fullan um sumarhótelin, þvi Bifröst er svo sann- arlega hið boðlegasta hverjum sem er og á hvaða mælikvarða sem er. Verður Sam- vinnan því opinberlega að ávíta Þorstein og sjálfa sig fyrir þessi mistök og lofa bót og betrun. í BYRJUN september kom til landsins með m.s. Helgafelli sænski samvinnu- maðurinn Thorsten Odhe, sem íslend- ingum er að góðu kunnur. Odhe kemur hingað í boði SÍS og mun ferðast nokk- uð um landið og að því búnu mun hann skrifa bók um ísland og framgang sam- vinnustefnunnar hér á landi. Thorsten Odhe kom hér árið 1935 og íerðaðist þá um landið. Eftir þá för skrif- aði hann bókina „Det Modema Island och dess Kooperation", sem Jón Sigurðs- son í Yztafelli hefur þýtt á íslenzku. Það var mjög góð íslandslýsing og greinar- góð heimild um upphaf og þróun sam- vinnustefnunnar til þess tíma. Odhe kom hér aftur í fyrra og fékk þá áhuga á því, að taka til þar sem áður var frá horfið og tók með áhuga boði Sambandsins. Thorsten Odhe. Odhe er þekktur samvinnumaður og eyðir gjama sumartímanum til ferða- laga og kynnir sér þá um leið þróun sam- vinnumálanna. Hann var nýlega í Israel og skrifaði bók um samvinnuhreyfinguna þar í landi. í þessu sambandi kvað Odhe það mundi mikinn lærdóm fyrir þjóðir, sem skemmra eru komnar, að kynna sér fram- gang samvinnustefnunnar hér, og mun hann rita bók sína á þeim grundvelli. Bókin mun koma út bæði á ensku og sænsku, en óráðið er um frekari útgáfur. Smásagnasamkeppnin (Frh. af 2. síOu) Jón Dan hefur gert þessu góð skil og birtist hér í blaðinu frásögn hans, „Dymbilvika í Palma“, þar sem Jón lýsir á skemmtilegan hátt hvernig fólkið pyntar hold sitt að fomum sið einu sinni á ári, guði og heilagri Maríu mey til dýrðar og þakklætis, til að endurgjalda eitthvert meðlæti, sem því hefur hlotnazt á árinu. 45

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.