Samvinnan


Samvinnan - 01.10.1957, Blaðsíða 28

Samvinnan - 01.10.1957, Blaðsíða 28
Ódýrasta líftrygging, sem hægt er að fá I'að er hverjum hugsandi manui nauðsynlegi og slcylt að eiga líftryggingu. Þetta er skylda gagnvart fjölskyldu og henni til öryggis, svo að kona og börn standi ekki uppi með tvirr hendur tómar, ef fyrirvinnan fellur frá. Líftryggingar hafa hingað til verið með þeim hætti hér á landi, að hver einstakur hefur orðið að tryggja fyrir sig, og hafa því alltof fáir menn gert það. En nú hefur Líftryggingafélagið Andvaka tekið upp nýja gerð trygginga, sem er þannig, að bæði munu miklu fleiri menn en áður kaupa sér liftryggingu, og þeir munu geta fengið hana ódýrari en nokkru sinni fyrr. Er þetta með svokölluðum hóp- líftryggingum, þar sem heilir hópar manna, til dæmis starfsfólk fvrir- tækja, geta tryggt sig í einu lagi. Hóplíftrygging er aðeins áhættutrygging þannig, að umsamin upphæð er greidd að- standendum, ef hinn tryggði fellur frá. Hún gildir frá ári til árs, en er ekki samningur til langs tíma og ekki sparnaðarráðstöfun á sama hátt og venjuleg líttrygging. Kynnið yður hóplíftryggingar Andvöku. Verð þeirra er ótrúlega lágt, og það öryggi, sem þér getið skapað fjölskyldu yðar, mjög mikið. Athugið, hvort starfsbræður yðar eða félagar í ein- hverju félagi geta ekki sameiginlega skapað sér öryggi líftryggingar á hagkvæman hátt. Ef þér eruð að byggja eða afla atvinnutækja að einhverju leyti með lánsfé, er það meira virði fyrir fjölskylduna en nokkru sinni, að þér séuð vel líftryggður. Leitið allra upplýsinga í skrifstofu Andvöku í Sambandshúsinu i Reykjavík eða hjá umboðsmönnum fé- lagsins (t. d. kaupfélögunum) um land allt. Dragið ekki að koma öryggi fjölskyldu yðar í gott lag. Eng- inn veit, hvenær það kann að vera um seinan. ANDVAKA Húsmæður Sérhver húsmóðir getur bakað Ijúffengar, Ijósar og fallegar kökur, aðeins ef hún notar beztu fáan- legu hráefnin í baksturinn. Við kökugerð er áríð- andi að nota nákvæmt magn af lyftidufti. koyal lyftiduft er framleitt af vísindalegri nákvæmni og veitir fullkominn árangur við hverskonar bakstur. Samband ísl. samvinnufélaga Innflutningsdeild-matvörur Síml 1-70-80 28 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.