Samvinnan


Samvinnan - 01.10.1957, Blaðsíða 36

Samvinnan - 01.10.1957, Blaðsíða 36
— og eftirbreytnisverð — um hvernig eitt lítið þorp fór að því, að koma sér í vegarsamband við önnur héruð — á móti guðs og manna lögum, eins og manni gat virst. á stundum. — Sú saga verður vonandi einhverntíma skráð. I árslok 1933 voru félagsmenn í Kaup- félagi Hellissánds 36. — en í árslok 1956 voru þeir 51. I árslok 1939 — siðasta árið áður en hinar stríðandi þjóðir fóru að stríða og allt verðlag fór daghækkandi, var verzl- unarvelta félagsins 194 þús. kr., en í árs- lok 1956 var hún 2.3 millj. kr. Þeir, sem eitthvað þekkja til kaupfé- laga út um land, sjá á þessum tölum að Kaupfélag Hellissands ér eitt at' minnstu kaupfélögum á öllu landinu. Engu að síður hefur það þýðingarmiklu hlutverki að gegna — og vaxandi hlutverki — hvað viðkemur þessum stað — í lífi þess fólks, sem hér byggir. Félagið hefur oft fengið stór og þung högg, sem það hefur bognað undan en cigi brotnað. — Félagsmennirnir liafa oft verið — og ern máske enn — sundur- leitir og eigi nógu skilningsríkir á sinn eigin hag — og ekki nógu áhugasamir um sitt eigið félag. Þó þykist ég vita — og leyfi mér að fullyrða, að enginn fé- lagsmaður rnætti til þess hugsa, að hér væri ekkert kaupfélag, — þeirra eigin verzlun, sem þeir geta haft Iiönd í bagga með að reka — og reka vel — til hags- bóta fyrir sig og sína. Verkefnin framundan eru vissulega mörg og stór og ótæmandi. Hinir gömlu og lúnu, sem borið hafa hita og þunga dagsins, — ættu vissulega að hafa leyfi til að fara nú heldur að draga sig í hlé. — En hvar eru hinir ungu? —- Furðulega fátt af yngri kynslóðinni er félagsbundið í kaupfélaginu. — Það þarf að breytast. Þið hin eldri og reyndari eigið að vísa hinum yngri leiðina — og sýna þeim um leið, hvernig þeim ber að forðast þá bresti, sem þið börðuð um of í, — forð- ast ykkar eigin axarsköft -— og þá sér- staklega þann draug, sem er öllum öðr- um draugum lakari og lífseigari, sundr- ungardranginn. — I fámenni, einangrun, kyrrstöðu og deyfð. — mikla menn stundum um of fyrir sér ýmsa hluti, sem við mistök eru kenndir — og stökkva of oft upp á nef sér. — Koma ekki alltaf auga á hið góða í fari náungans, — slíta oft veika taug, sem tengir saman, — máske augnabliks geðshræring eða gáleysi út af smáatvik- um verða oft valdandi stórra og leiðin- legra hluta. Allt slíkt — er vatn á myllu þeirra, sem gera sér að féþúfu sundrung og samtakaleysi alþýðu manna. Ég gat þess hér fyrr í tölu minni, að ýmsir af framámönnum fyrstu ára fé- lagsins, væru nú horfnir okkur. — Það er rétt. — Hitt er einnig rétt. að ýmsii' þeirra standa enn í ístaðinu. — Margir valinkunnir menn úr hópi stofnenda og félaga fyrstu ára, eru hér í hófi þessu. Ég vil leyfa mér að nafngreina einn þeirra, sem hefur verið félagsmaður síð- an 1934, — það er Björgvin Alexanders- son. — Hann hefur nú síðastliðin 23 ár ávallt verði í trúnaðarmannahópi félags- ins. Ef hann hefur eigi verið í stjórn, þá hefur hann verið í varastjórn —- og ef hann hefur eigi verið í varastjórn þá hef- ur hann verið endurskoðandi félagisns. — Þannig hefur hann í 23 ár samfleytt — ef trúa má fundagerðabókum félags- ins — unnið sínu félagi á sinn hljóðláta hátt. Ég get hér ekki um þennan ágæta fé- lagsmann, af því að mér finnist óþarfi að geta annara, — heldur minnist ég hans sem glöggs dæmis um þá þrotlausu elju og félagslegu seiglu, sem nauðsynleg er til að geta starfað sem trúnaðarmaður eins og sama félags í 23 ár af 25, sem fé- lagið hefur lifað. Björgvin mun því hafa lengstan starfsfei'il að baki í Kaupfélagi Hellissands. Ég vil, sem einn yngsti félaginn í fé- lagsmannatali Kaupfélags Hellissands, óska þvi til hamingju með aldarfjórð- ungsafmælið og biðja því allrar blessun- ar á komandi árum. Ég vil flytja stofn- endum þess — og öllum félagsmönnum og framkvæmdastjórn — á þessum liðna starfstíma, — þakkir allra þeirra, sem notið hafa góðs af framtaki þeirra og ó- sérhlífni við stofnun og rekstur þessa fyrirtækis. — Við sendum þeim félögum, sem fluttir eru burtu í aðra landshluta og eigi hafa haft tækifæri til að vera hér með okkur í kvöld, hlýjar kveðjur í hug- anum — og minnumst allra hinna látnu félaga með því að rækta og glæða skiln- Hérna er splunkunýtt biauð, mamma. ing manna á þeirri htigsjón þeirra, að gera beri samvinnuverzlanir að hagnýtu tæki, til að bæta kjör hins vinnandi manns til sjávar og sveita. I lítt numdu héraði sem hér — með einar mestu auðlindir sjávarins við bæj- ardyrnar, blasa við hin víðfeðmustu verk- efni — við að bvggja upp á öllum svið- um til lands og sjávar. — Fjársterk sam- vinnuverzlun getur þar lvft grettistök- um. — Við skulum vona, að þessi litla verzlun okkar verði brátt fjársterk stofn- un, — kvak hennar um hinn þétta leir verði heyrt, — því ég veit, að vinnufús- ar hendur heimamanna bíða eftir að fá að glíma við verkefnin. Því það er ekki að ófyrirsynju, að Guðmundur í Klettabúð segir: „Bið ég guð að byggist upp blessað Snæfellsnesið“ — og hygg ég, að sú verði bæn okkar allra. Getur dáleiðsla ... (Framh. af hls. 19) inn tekur sér stöðu bak við manninn og spyr hann, hvort hann sjái sig í speglinum. Jú, það ber ekki á öðru, maðurinn sér hann greinilega. Dá- valdurinn tekur greiðu upp úr vasa sínum og spyr, hvort hann sjái, það sem hann haldi á. „Jú, það er hár- greiða“, segir maðurinn tafarlaust og allan tímann hefur hann snúið baki í dávaldinn og speglun á möttu pappa- stykkinu algjörlega útilokuð. Þessi tilraun heppnast oft en ekki alltaf. Líka er hægt að framkvæma hið gagnstæða — að sá dáleiddi geti ekki séð vissa hluti, sem hann hefur fyrir augum. Dávaldurinn getur gert mann ósýnilegan fyrir augum hins dáleidda og hann verður þá vanalega alls ekki var við tilveru „hins ósýnilega“, jafn- vel þótt hann klípi hann eða öskri upp í eyrað á hinum dáleidda. Gangi „sá ósýnilegi“ út, sér sá dáleiddi að- eins dyrnar opnast og taki maðurinn hatt og komi með hann inn, sér sá dáleiddi ekkert nema hattinn, sem svífur í lausu lofti. Það hefur aldrei komið fyrir, að dávaldur hafi fengið mann til að gera eitthvað, sem algjörlega stríðir á móti 36 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.