Samvinnan - 01.08.1958, Síða 21
ganga í skrautlegri íbúð við Túngötuna.
Þar kom rommflaska á borðið, og gerðu
þeir henni báðir góð skil. Talaði banka-
stjórinn allt kvöldið á enda og var þá
langt korninn að breyta öllu hagkerfi
heimsins og gera jörðina að paradís.
Hann var bæði hugmyndaríkur og orð-
snjall, og dáðist Napóleon Jónsson að
því hátt og í hljóði, hve vel hann kunni
að haga máli sínu. Af þeim sökum varð
bankastjóranum svo hlýtt til þessa ný-
fundna vinar, að hann tók að forvitnast
um hagi hans. Sagði Napóleon Jónsson
honum allt af létta og það með, að lækn-
irinn teldi handlegg hans svo illa farinn,
að naumast myndi hann geta lagt stund
á störf verkamanna hér eftir.
Bankastjórinn bað hann blessaðan að
vera ekki að æðrast yfir slíkum tittlinga-
skít; sem verkamaður gæti hann, hvort
eð er, aldrei orðið ríkur. — „Hvers vegna
bvrjið þér ekki á einhverju, maður
minn? — Smáverzlun eða þess háttar,
til dæmis litlu kaffihúsi?“
,.Eg er hræddur um, að ég sé ekki
nógu gáfaður til þess,“ sagði Napóleon
Jónsson vesældarlega.
Bankastjórinn glotti í skeggið og sagði
lágróma: — „Maður þarf nú svo sem
ekki að vera neitt sjení til þess að þéna
peninga. Það er bara að vera nógu slótt-
ugur og hafa vaðið fyrir neðan sig, en
umfram allt að vera spekingslegur á
svipinn. — Ef þú gætir nú fengið smá-
lán —.“
Bankastjórinn þagnaði snögglega, eins
og hann hefði fengið vont bragð í munn-
Páll H. Jónsson:
Þóra
Þóra. Hvar heyrð’ eg þetta kœra najn
sem þokar ekki úr huga mínum burt?
Hej ég þig, bláa brekkusóley, syurt
og bumirót, við lágan dyrastajn?
Þröstur á grein, varst þú að segja jrá?
Þytur í stráum, hvíslaðirðu að mér?
Laujvindur góði, heyrði ég það hjá þér?
Var það í niðinum við Galtará?
Hamingjusama najn, sem nótt og dag
nœrðir með safa þínum skáldsins önd,
varst beiki á arin hjartans heitu glóða,
hans leyndarmál, hans týnda brot
úr brag
og byrgða ástarstjama aj drangsins hönd
í líji og dauða listaskáldsins góða.
Páll H. Jónsson.
inn, og varð lymskulegur til augnanna.
En Napóleon Jónsson greip í fyrsta sinn
á ævinni hið gullna tækifæri: „Já, það er
nú einmitt það,“ sagði hann og leit með
einlægum lotningarsvip á húsráðanda.
„Ef eitthvert stórmenni vildi lána mér
eins og tvö hundruð krónur, þá gæti ég
einmitt byrjað á kaffihúsi. Eg veit urn
kompu á Laugaveginum, og hann Jón
gamli, Sem seldi kaffið á Hverfisgötunni,
er dauður, svo að ég gæti fengið innrétt-
ingarnar lians fyrir lítið. — Þér vitið nú
víst ekki um neinn, sem væri svo ríkur
og eðallyndur, að hann myndi vilja
hjálpa mér um þessa fjárhæð?“
„Hm,“ sagði bankastjórinn. „Hm. —
Tvö hundruð krónur? Það eru miklir
peningar!"
„Já, ég veit það, og sjálfsagt er enginn
svo hjartagóður, að hann vilji hjálpa ör-
eiga manni til að koma undir sig fótun-
um?“
Það var gráthljóð í rödd Napóleons
Jónssonar, og bankastjórinn viknaði. —
„Aldrei hef ég haft orð fyrir það,“ sagði
hann, „að vilja ekki rétta meðbræðrum
mínum hjálparhönd, jafnvel þótt þeir
séu lægra settir í þjóðfélaginu en ég. Og
athugaðu þetta, maður minn. Gerðu
kostnaðaráætlun, og komdu svo til mín
í bankann. Hver veit, nema ég geti lán-
að þér þetta, ef eitthvert vit er í hug-
mynd þinni?“
„Ja, hugmyndin er nú yðar náttúr-
Iega,“ sagði Napóleon bljúgur.
„Já, auðvitað, ha, ha. Hugmyndir hef-
ur mig aldrei skort. En hvernig er það
með rommið? Hana, fáðu þér einn, mað-
ur. Hvað sagðistu nú aftur heita? — Ha,
— Napóleon! — Napóleon Jónsson! —
Ja, hvert þó í emjandi, ha, ha, ha! —
Nepoleon med sin hær over Alpene gik,
ha. ha, over Alpene gik!“
Bankastjóranum virtist margt betur
gefið en hljómnæmi, en nú var hann í
skapi til að syngja. Hann söng, þar til
dyrnar á stofunni opnuðust, og inn kom
sú fasmesta kona, er Napóleon Jónsson
hafði nokkurn tíma augum litið. Hún
var hin fegursta og svo fönguleg, að erf-
itt myndi að spanna handleggina, og bjó
yfir svo voldugum kvenleika, að Napó-
leon Jónsson starði á hana frá sér num-
inn. enda þótt hún virtist síður en svo
hrifin af honum. Hann hafði lengi alið
þá ósk í brjósti, að eignast lífsfélaga, en
aldrei hafði orðið úr framkvæmdum. Nú
hét hann sjálfum sér því, að ef honum
tækist að komast í efni, skvldi hann fá
sér konu þegar í stað. Og því áþekkari
sem hún yrði konu bankastjórans að
líkamlegu atgervi, því betra.
Gífuryrði frúarinnar lét hann sem vind
um eyrun þjóta, en kvaddi bæði hana
og bankastjórann innilega með handa-
bandi og óskaði þeim alls góðs. Það lá
við sjálft, að ljúflyndi hans gerði banka-
stjórafrúna orðlausa. Hún hóstaði og leit
spyrjandi á mann sinn, en hann féll í
þeim svifum sofandi fram á borðið.
II.
Þessa nótt sofnaði Napóleon Jónsson
með sælubrosi á vör, en vaknaði morg-
uninn eftir næsta framlágur. Það hitt-
ist nefnilega svo á, að daginn áður hafði
hann keypt sér ódýra máltíð fyrir síðustu
spariskildingana sína og var nú auralaus
með öllu. Hugrekkið var einnig fremur
lítið. og þótt honum væri samtalið við
bankastjórann enn í fersku minni, þorði
hann alls ekki að hugsa til þess að ónáða
slíkt stórmcnni með vandræðum sínum.
En sjö daga sultur stappaði í hann stál-
inu. Viku síðar birtist hann í bankan-
um og náði tali af hinum volduga vini
sínum.
Hann kom inn í gífurlega stóra og fína
skrifstofu, og lá við. að hann missti móð-
inn, er hann sá hörkulegt og fráhrind-
andi upplit bankastjórans bak við
þriggja fermetra skrifborð. Var maður
sá nú ekki jafn elskulegur sem fyrr, held-
ur skrambi afundinn og virtist fátt
muna. Hlustaði hann þó á Napóleon
Jónsson og athugaði nákvæmlega þá
kostnaðaráætlun, er hann hafði gert,
spurði nokkurra snöggra spurninga,
hristi höfuðið og sagði: „Ekkert vit í
þessu! — En — jseja, nú jæja, hefurðu
nokkra ábyrgðarmenn?“
Napóleon vissi ekki einu sinni, hvers
konar fyrirbæri það var.
Bankastjórinn hristi enn höfuðið og
gaut augunum út undan sér á lánbeið-
andann. Svo hló hann stutt og snöggt,
tók upp veski sitt, opnaði það og rétti
Napóleoni Jónssyni tvo hundrað krónu
seðla. „Þú borgar mér þetta, þegar þú
getur. Eg ætla að treysta þér án ábyrgð-
armanna. Þeir eru, hvort eð er, ekki mik-
ils virði venjulega!“ Því næst benti hann
á hurðina, og Napóleon Jónsson flýtti
sér út.
Næstu daga lét hann hendur standa
fram úr ermum. Honum tókst að fá
„kompuna“ á Laugaveginum, sem reynd-
ar var stærðarstofa, löng og mjó, með
eldhúsi og tveim smákytrum inn af. Þá
keypti hann innréttingarnar í kaffistofu
Jóns gamla á Hverfisgötunni, gerði
samning við bakara og nýlenduvöru-
verzlun og opnaði restaurasjónina. Yfir
dyrnar festi hann stórt pappaspjald, sem
hann hafði sjálfur ritað á með rauðkrít:
ÞRÆLÓDÝRT KAFFI OG VÍNER-
SAMVINNAN 21