Samvinnan - 01.08.1958, Side 28
Tvær eins — ....
(Framh. af bls. 9)
læddist vit með þessa hér, ha, ha, vel af
sér vikið, finnst þér ekki? Þetta er fínt
franskt koníak maður. Björn kollega
minn gaf mér það, bezti kall Björn, dá-
lítið einfaldur, — og nú dansar hann í
afmælisveizlunni minni við konuna
mína, ha, ha, hann er sko bálskotinn í
henni en heldur að ég viti það ekki, —
síðustu orðunum hvíslar hann afar lágt.
Nóttin færist yfir, og smátt og smátt
minnkar í flöskunum, en að sama skapi
vex vinátta mannanna tveggja. Þeir
komast að raun um, að skoðanir þeirra
eru hinar sömu í flestum ef ekki öllum
efnum, og þeir harma mjög þann tíma,
sem liðinn er, en tárfella af gleði vfir því,
að atvikin skuli loks hafa leitt þá saman.
— Kæri vinur, þú segist vera verka-
maður. Gott og vel. Þú varst verkamað-
ur. en þú ert það ekki lengur, heyrirðu
það? Hér eftir vinnur þú hjá mér, já á
skrifstofunni hjá mér, mundu það.
Komdu, við förum heim og gerum út um
þetta við Björn, hann hlýtur að vera
ennþá í veizlunni. — Eg er bara svo
skratti fullur, ég get varla staðið á löpp-
unum.
— Eg finn líka anzi mikið á mér. —
eigum við ekki að hvíla okkur dálitla
stund upp við skúrinn þarna?
— Jú, það held ég bara, komdu.
Og þarna finnur lögreglan þá nokkru
seinna, og þar sem ekki tekst að vekja
þá, er þeim báðum ekið á lögreglustöð-
ina og þeir látnir sofa úr sér vímuna.
En í fjörunni liggja tvær tómar flösk-
ur.
— Jæja, hvað segirðu nú? Spvr önnur
dálítið hæðnislega.
— Mér er kalt, segir hin aumingja-
lega.
— Jæja, vesalingurinn.
— Já, og hér er hræðilegt að vera.
— Satt er það, en vínflöskur verða
að læra að sætta sig við sitthvað.
— Mér finnst svo hræðilegt, að ann-
að eins og þetta skuli hafa komið fyrir
mig.
— Já, ég skil, þú sem ert svo fín og
nýkomin frá Frakklandi, en þú skalt
ekki örvænta, á morgun eða kannske
strax í dag kemur áreiðanlega einhver
og finnur okkur, og þá komumst við aft-
ur í vínbúðina.
— Heldurðu það? Þá hljóta allir að
sjá, að ég er fín flaska frá Erakklandi,
ekki satt?
— Já, áreiðanlega, segir gamla flaskan
hughreystandi, hún hefur ekki brjóst í
sér til að segja sannleikann.
Sólheitur sumarmorgunn rennur upp
og líf dagsins vaknar á ný.
— Nei, sjáðu flöskurnar þarna, segir
lítil telpa við leikfélaga sinn.
— Já, maður, reynum hvort okkar er
duglegra að hitta þær, hrópar hann og
tekur upp stein.
— Nei, seljum þær heldur og kaupum
gott. Ég má eiga þessa með fallega mið-
anum.
— Já, blessuð vertu, eins og mér sé
ekki sama um miðann. En komdu nú,
við skulum hlaupa.
— Viltu kaupa þessar flöskur? segir
hann, þegar þau koma til flöskusalans.
— Má ég sjá?
— Fæ ég ekki meira fyrir mína
flösku? spyr telpan. Sjáðu livað miðinn
er fallegur.
— jMiðinn er aukaatriði góða mín.
Lítið á. Hann stingur báðum flöskunum
ofan í vatnsfötu og losar miðana.
— Geturðu nú þekkt þína flösku,
telpa mín?
— Nei, segir hún, dálítið vonsvikin.
— Þarna sérðu, og því fáið þið jafnt
fyrir báðar, gjörið svo vel, börnin mín.
Þau taka við aurunum og hlaupa glöð
og áhyggjulaus aftur út í sólskinið.
En gamli flöskusalinn ýtir gleraugun-
um upp á ennið og tautar um leið og
hann lætur flöskurnar í kassann:
— Ójá, skrautlegur miði, — hvers
virði er liann, ef innihaldið vantar?
Botvinnik
(Framh. af bls. 13)
Bxe6, fxe6. 25. Hd7, Hxflt 26. Kxfl,
Hf8f 27. Ke2, Hf7. 28. Hd6 og hvítur vinn-
ur.)
24. Hd6, Ba6
25. Hf2, Bb5
26. e5!
(Botvinnik neytir snilldarlega stöðuyfir-
burða sinna. Hann hótar nú 27. e6, fxe6.
28. B x e6t, Kh8. 29. Hd7 o.s.frv.)
26. ------Re7
(Euwe hyggst koma riddaranum til d5.)
27. e4
(Botvinnik hindrar það þegar. Jafnvel
tvípeðið eykur sóknarkraft stöðu hans.)
27. ------c5
(Með veikri von um að tefja lokaatlög-
una eftir 28. Hxb6, Bc6. 29. e6, Bxe4.
30. exf7t. Kh8 o.s.frv. En nú er skammt
til leiksloka:)
28. e6!
(Mun sterkara en að drepa b-peðið
strax.)
28. ------f6
29. Hxb6, Bc6
30. Hxc6!
(Skemmtileg lok á fallega tefldri skák.)
30. ------Rxc6
31. e7t, Hf7
32. Bd5. Og Euwe gafst upp.
(32.------Hc8 yrði svarað með 33. e8Dt,
Hxe8. 34. Bxc6 og síðan Bd5, og ætti
hvítur þá heilum manni meira eftir upp-
skiptin.
Skák þessi er gott dæmi um hinn rök-
rétta og þvingandi stíl heimsmeistarans.
28 SAMVINNAN