Samvinnan - 01.12.1969, Síða 21
61,69 SAM
VINNAN
EFNI: HÖFUNDAR:
3 Lesendabréf og smælki
20 Ritstjórarabb
22 MENN SEM SETTU SVIP Á ÖLDINA: Mahatma Gandhí
29 ÞÉTTBÝLISÞRÓUNIN: 29 Þróunarsvseði á íslandi 33 Byggðarkjarnar — vaxtarmiðstöðvar — samkynja sveitarfélög 36 Mannfjöldaþróun og almenn byggðastefna á Norðurlandi 37 Atgervisflóttinn úr sveitarfélögum strjálbýlisins 38 Um verkefni sveitarfélaga og ríkis 40 Tekjuöflun sveitarfélaga 43 Á að sameina sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu? 44 Egilsstaðakauptún — nýr byggðarkjarni í örum vexti Valdimar Kristinsson viðskiptafræðingur Björn Stefánsson búnaðarhagfræðingur Lárus Jónsson viðskiptafræðingur Björn Friðfinnsson bæjarstjóri, Húsavík Sigfinnur Sigurðsson borgarhagfræðingur Bjarni Þórðarson bæjarstjóri, Neskaupstað Hjálmar Ólafsson bæjarstjóri, Kópavogi Magnús Einarsson fulltrúi, Egilsstöðum
46 SMÁSAGAN: Krossdauði (Teikning: Peter Behrens) Árni Larsson
48 Hinir hálfmyrtu: Um skáldskap Þorsteins frá Hamri Eysteinn Sigurðsson
50 ERLEND VÍÐSJÁ: Byltingarafmæli í útsogi menningarbyltingar Magnús Torfi Ólafsson
53 Fasismi — hugtak og pólitískt ástand Vésteinn Lúðvíksson
56 Merkasta skólaskáldið. Æskuljóð Jóhanns Sigurjónssonar og nokkur kunningjabréf Hrafn Gunnlaugsson
60 Fjögur Ijóð Pétur Gunnarsson
61 SAMVINNA: Þankar um fræðslukerfi og atvinnulíf Guðjón B. Ólafsson
62 Þrír dagar í Úzbekistan Erlendur Einarsson
66 Þegar skýjaborgirnar hrundu. Um stríðsmarkmiðin í heimsófriðnum 1914—18 Sverrir Kristjánsson
70 Heimilisþáttur Bryndís Steinþórsdóttir
TIL ÁSKRIFENDA
Dregið var í áskrifendahappdrætti Samvinnunnar 31. október síðast-
liðinn, og hreppti vinninginn, hálfsmánaðarferð til Mallorka fyrir tvo,
Jón A. Bjarnason Ijósmyndari á ísafirði. Óskar Samvinnan honum til
hamingju með lánið og biður hann vel að njóta dvalarinnar syðra á
næsta vori.
Þau leiðu mistök urðu i rammaklausum á bls. 31 og 32 í síðasta
hefti Samvinnunnar, að ívitnaðar ræður voru sagðar hafa verið fluttar
á Alþingi 28. febrúar 1961, en átti vitanlega að vera 1962, einsog fram
kom í grein ritstjórans.
Grein Sigurðar Líndals hæstaréttarritara um gerð og starfshætti ís-
lenzka flokkakerfisins, sem átti að birtast í þessu hefti, varð enn síð-
búin, en óhætt mun að lofa því, að hún birtist í fyrsta hefti næsta árgangs.
Höfundar greinaflokksins um þéttbýlisþróunina eru flestir þjóðkunnir.
Valdimar Kristinsson starfar hjá Seðlabankanum og er ritstjóri Fjármála-
tíðinda. Björn Stefánsson starfar hjá Hagstofu íslands. Lárus Jónsson
er nýkjörinn framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Norðurlandi.
Sigfinnur Sigurðsson, borgarhagfræðingur í Reykjavík, var formaður
nefndar á vegum Sambands íslenzkra sveitarfélaga, sem átti að endur-
skoða og gera tillögur um verkefnaskiptingu ríkis og sveitarfélaga.
Nefndin hefur skilað áliti, og í samræmi við það hefur stjórn og fulltrúa-
ráð sambandsins fyrir sitt leyti markað stefnu í þessum málum. Magnús
Einarsson er fulltrúi hjá Kaupfélagi Héraðsbúa á Egilsstöðum.
Árni Larsson er ungur höfundur sem er að hefja rithöfundarferil sinn.
Vésteinn Lúðvíksson stundar nám og ritstörf í Lundi í Svíþjóð og gaf út
í fyrra smásagnasafnið „Átta raddir úr pípulögn", sem hlaut verðlaun
úr Minningarsjóði Ara Jósefssonar. Hrafn Gunnlaugsson er nýstúdent
og nýbyrjaður á bókmenntanámi í Stokkhólmi. Pétur Gunnarsson hefur
í haust og fyrravetur stundað nám í heimspeki og bókmenntum í
Frakklandi. Guðjón B. Ólafsson er framkvæmdastjóri Sjávarafurða-
deildar S.Í.S.
Nóvember—desember 1969 — 63. árg. 6.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Sigurður A. Magnússon.
Blaðamaður: Eysteinn Sigurðsson.
Afgreiðsla og auglýsingar: Reynir Ingibjartsson.
Uppsetning: Teiknistofa Torfi Jónsson.
Útgefandi: Samband íslenzkra samvinnufélaga.
Ritstjórn og afgreiðsla í Sambandshúsinu, sími 17080.
Verð: 350 krónur árgangurinn; 75 krónur í lausasölu.
Gerð myndamóta: Prentmyndagerðin Hverfisgötu 4.
Prentverk: Prentsmiðjan Edda hf.