Samvinnan - 01.12.1969, Síða 25

Samvinnan - 01.12.1969, Síða 25
Gandhi og Kastúrba kona hans við komuna til Indlands 1915. landið til að kenna fólki grundvallaratriði óvirkrar andstöðu (satjagraha) og boðaði 24 stunda „sorgardag" sami'ara allsherjar- verkfalli. Sumstaðar, t.d. í Bombay, fór allt friðsamlega fram, en í Panjab-fylki í norðri var ástandið ógnvænlegt. í Amritsar voru nokkrir Evrópumenn drepnir og ensk kona barin til óbóta. Gandhí vildi fyrir hvern mun komast þangað en var handtekinn í námunda við Delhí. Ólgan magnaðist, og 13. apríl 1919 afréð brezki hershöfðinginn Dyer að leysa upp fund þjóðernissinna með skot- vopnum. Á 10 mínútum voru 379 drepnir og um 1200 særðir. Að vísu var Dyer kvadd- ur heim og vikið úr starfi, en íhaldsblaðið Morning Star safnaði handa honum 30.000 sterlingspundum og aðdáendur hans sæmdu hann heiðurssverði. Indverjar voru sem þrumu lostnir yfir „Amritsar-blóðbaðinu", en Gandhí fékk því til leiðar komið, þegar Kongressflokkurinn kom saman í Amritsar seinna á sama ári, að indverskt ofbeldi var fordæmt ekki síður en brezkt. Árið eftir, 1920, var Gandhí orðinn alger- lega fráhverfur Bretum. Umbæturnar sem þeir buðust til að gera voru ófullnægjandi, beiskjan útaf Amritsar-blóðbaðinu var megn, og meðferð Breta á Tyrkjaveldi vakti mikla gremju meðal múhameðstrúarmanna. Gandhí leit svo á, að nú væri hentugt tæki- færi til að sameina hina fornu fjendur, hindúa og múhameðstrúarmenn, um þjóð- frelsisbaráttu Indverja. Á fundum Kon- gressflokksins í Kalkútta og Nagpúr árið 1920 kvað langmest að Gandhí, og næstu þrjá áratugi var hann sjálfkjörinn leiðtogi þjóðarinnar. Áætlun hans um „borgaralega óhlýðni“ og „samstarfssynjun“ fól í sér sam- tök um að hunza brezka skóla, dómstóla, op- inberar stofnanir og enskan iðnvarning. Hún miðaði að því að lama allt stjórnkerfi lands- ins. Hin nýja eining þjóðarinnar vakti mönnum bjartar vonir, og margir létu sig dreyma um að heimastjórn væri á næsta leiti. Gandhí ferðaðist um landið þvert og endilangt — ævinlega á þriðja farrými — og var hvarvetna fagnað af miklum manngrúa. Var honum farið að þykja nóg um þessa „dýrkun hugsunarlausrar mannmergðar“, einsog hann komst að orði. Hann þreyttist aldrei á að brýna fyrir fólkinu, sem hyllti hann á hverri brautarstöð, að sjálfstæði væri hugarástand, og enginn hlyti það ó- verðugur. Þessvegna yrði þjóðin að taka sinnaskiptum, varpa frá sér úlfúð og hatri, en eignast heilbrigðan metnað, sem gerði hana í eigin augum jafngilda Bretum. Hann fór hörðum orðum um „djöfullegt kerfi“ og „valdagræðgi" nýlenduherranna, en jafnvel þegar hann talaði um „járnhæl" Breta á indversku þjóðinni, var hann þýðmáll, ró samur og ástríðulaus. Á þessu skeiði dreifði hann tveimur millj- ónum rokka, þó barátta hans fyrir spuna í heimahúsum vekti mikla gagnrýni, einnig meðal Indverja. Kongressflokkurinn var mjög háður fjárstyrk auðugra verksmiðju- eigenda, sem missa mundu spón úr sínum aski, ef barátta Gandhís bæri árangur. En hann hélt fast við það, að rokkurinn væri tekjulind og ýtti undir sjálfstæði og sjálfs- virðingu indverska bóndans, sem væri at- vinnulaus fjóra mánuði árlega. Árið 1921 hélt Gandhí stóra brennu á erlendum vefnaði í Bombay, og þegar vinur hans, C. F. And- rews, andmælti þessari sóun á verðmætum og spurði, hversvegna mætti ekki gefa vefn- aðinn fátæklingum, svaraði Gandhí því til, að hann væri eitraður og fátæklingar hefðu líka sómatilfinningu. En um svipað leyti tóku áhrifavald og vinsældir Gandhís að réna. Árið 1921 heim- sótti prinsinn af Wales (síðar Játvarður VIII) Indland, og í því tilefni var efnt til Gandhí heimsœkir og rœðir við pólitiska fanga í grennd við Kalkútta. „sorgardags“. En parsarnir í Bombay, sem ekki fylgdu hindúum og múhameðstrúar- mönnum að málum, tóku honum tveim höndum og urðu fyrir árásum heiftúðugs múgs. 53 menn lágu í valnum og 400 voru særðir, þegar Gandhí tókst að stöðva blóð- baðið með fimm daga föstu. En manndráp- unum var ekki lokið. í norðanverðu landinu voru 22 lögregluþjónar drepnir. Gandhí hóf aftur föstu í mótmæla- og iðrunarskyni við framferði fylgjenda sinna. Ofbeldið olli honum svo djúpum vonbrigðum, að hann afiýsti fjöldaaðgerðum gegn Bretum, en gaf hverjum einstaklingi heimild til að neita samstarfi við þá við tilteknar aðstæður. Þetta vakti mikla gremju meðal leiðtoga Kongressflokksins, og Gandhí játaði, að hér væri um auðmýkingu að ræða, en afglöp hefðu verið framin, og nú yrðu menn að gera hlé á öllum aðgerðum og játa yfir- sjónir sínar, því syndajátningin væri „sópur- inn til að sópa burt óhreinindunum". Fimm tíu þúsund áhangendur hans voru undir lás og slá, þeirra á meðal Nehru, sem tók frétt- inni af ákvörðun hans „með undrun og skelf- ingu“, en þegar stjarna hans virtist vera að hníga, fangelsuðu Bretar hann líka. í dóm- salnum játaði Gandhí sök sína og fór framá þyngstu refsingu. Hann var dæmdur í sex ára fangelsi. Hann hlaut óvægilega meðferð í byrjun, en síðan mildaðist hún. Hann las feiknin öll í fangelsinu — Kóraninn, Biblíuna, Sir Walter Scott, Emerson, Ruskin, Tolstoj, George Bernard Shaw, en þó umfram allt helgirit og sagnir hindúa. Hann skrifaði bréf í gríð og erg, las fyrir sjálfsævisögu sína, lærði tamíl (helzta mál Suður-Indlands); hann hafnaði öllum þægindum, neitaði að láta safna fé til að bæta aðbúð sína, því það hlyti að koma frá fátæklingunum. Hann neitaði að taka inn svefnlyf og sýndi lækn- inum framá að hann gæti sofnað hvenær sem honum sýndist. En hann varð að gangast undir uppskurð vegna botnlangabólgu, og meðan á honum stóð brást bæði rafmagnið og vasaljósið sem gripið var til í viðlögum! Árið 1924 var hann látinn laus af heilsufars- sökum og tók strax til starfa í Kongress- flokknum, sem logaði í sundurlyndi og við- sjám milli hindúa og múhameðstrúarmanna. í september 1924 hóf hann langa föstu í mótmælaskyni við blóðugar óeirðir sem brotizt höfðu út í norðanverðu landinu. Eftir að hann hafði stjórnað þingi Kongress- flokksins 1924, sagði hann sig úr stjórn hans og helgaði næstu þrjú ár þeirri við- leitni að hafa áhrif á hreyfinguna „neðan frá“. Hann ferðaðist milli þorpa (þau voru 700.000 talsins), talaði oft til tugþúsunda manna í senn, hvatti þá til að spinna heima, fordæmdi afstöðuna til stéttleysingja, á minnti menn um sparneytni og örlæti við fátæklinga. í einu þorpi sagði hann aðeins eina setningu: „Tæmið vasa ykkar handa fátækum." Meðan þessu fór fram sóttu pólitísku leið- togarnir í sig veðrið eftir hrakfarirnar 1922. í Gúdsjerat-fylki var háð árangursrík bar- átta gegn hækkun á jarðaskatti undir for- ustu Patels í anda Gandhís. Landssambandi verkalýðsfélaga var hrundið af stokkunum, og verkföll voru tíð. Þegar brezk þingnefnd heimsótti Indland 1927—28 til að kanna hæfni Indverja til sjálfstjórnar, neitaði Kon- 25
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.