Samvinnan - 01.12.1969, Page 28

Samvinnan - 01.12.1969, Page 28
maður í einu líki: í veikburða líkama hans störfuðu margar hreyfingar samtímis. Hann var lifandi sönnun fyrir sigri andans á efn- inu, sigri persónuleikans á mýraköldu, van- eldi, háum blóðþrýstingi og bandormi. Þó Gandhí hefði snúið hugum manna frá sjálfstæðismálinu að kjörum stéttleysingja, sat brezka stjórnin ekki aðgerðalaus. Árið 1935 samþykkti brezka þingið lög sem mið- uðu að því að veita Indverjum sjálfstjórn í áföngum. Fyrsta skrefið var að fá Kon- gressflokknum stjórnartaumana í einstök- um fylkjum, en Bretar fóru með alríkisvöld. 30 milljónir Indverja fengu kosningarétt, og innlendar fylkisstjórnir tóku til starfa víða um landið. Brezkir embættismenn urðu að temja sér hlýðni ekki síður en stjórnsemi. Samstarf Breta og Kongressflokksins var ekki snurðulaust, en gekk allvel um skeið, þó stór hluti múhameðstrúarmanna undir forustu Jinnah hefði klofið sig útúr flokkn- um og heimtaði sérstakt ríki fyrir sig. Þegar seinni heimsstyrjöldin brast á, voru Indverjar í vanda staddir, því þeim var ljóst að stjórn Breta, þó illþolanleg væri, var hátíð hjá villimennsku harðstjóranna í Evr- ópu. Gandhí var andvígur stríði, en gat ekki hugsað sér að efna til samblásturs gegn Bretum meðan þeir voru í rauninni að verja siðmenninguna. Gandhí hét landstjóranum siðferðilegum stuðningi við málstað Breta, en kvaðst mundu halda áfram að prédika kærleika og bræðralag. Honum var ljóst að einstrengingsleg friðarstefna hans átti lítið fylgi meðal leiðtoga Kongressflokksins. Sjálfstæðisbarátta Kongressflokksins var máttlítil á árunum 1939—41. Eftir árás Jap- ana á Pearl Harbour var stríðið skyndilega við þröskuld Indverja. Brezka stjórnin afréð að láta lausa pólitíska fanga, en Gandhí lét sér fátt um finnast. Hinsvegar sáu ýmsir leiðtogar Indlands sér leik á borði að ganga til liðs við Breta gegn loforði um fullt sjálf- stæði. Stjórn Churchills gein við agninu og sendi Sir Stafford Cripps, kunnan stuðnings- mann sjálfstæðishreyfingarinnar, til að semja við Gandhí, Nehru og aðra indverska leiðtoga. Hann hafði meðferðis tilboð um, að þeir hlutar Indlands, sem óskuðu þess, yrðu brezk sjálfstjórnarnýlenda eftir stríðið. Gandhí, Nehru og fleiri sáu, að í tilboðinu fólst hvöt til múhameðstrúarmanna um að slíta sig úr tengslum við Indland og til prinsanna um að halda völdum í dvergríkj- um sínum utanvið indverska ríkjasambandið. Þeir vildu fá afdráttarlaus loforð um fullt sjálfstæði, en slíkur „vitfirringarverknaður" var Churchill fjarri skapi. Niðurstaðan varð sú, að Kongressflokkurinn boðaði til nýrra mótmælaaðgerða, þráttfyrir yfirvofandi inn- rás Japana, og í ágúst 1942 voru Gandhí, Nehru og aðrir leiðtogar flokksins fangels- aðir. Friðurinn var úti og magnaðar óeirðir fóru einsog flóðalda yfir landið. Bretar sýndu mikla hörku, fangelsuðu menn unn- vörpum og beittu bæði vélbyssum og flug- vélum. Báðir aðilar voru örvæntingu nær, og í fyrsta skipti virtu Bretar að vettugi hótun Gandhís um þriggja vikna föstu í febrúar 1943. Almenningsálit í Bretlandi var sammála landstjóranum, Linlithgow lávarði, um að víst mætti Gandhí deyja ef hann kærði sig um. En gamall andstæðing- ur hans frá Suður-Afríku, Smuts hershöfð- ingi, minnti Breta á, að Gandhí væri ekki svikari, heldur „eitt af mikilmennum heims- ins“. Gandhí lifði af föstuna, en var hafður í haldi í tvö ár í höll Aga Khans. Þar létust ástkær einkaritari hans og eiginkona (1944), en sjálfur veiktist hann alvarlega af mýra- köldu, bandormi og blóðleysi. Þegar halla tók undan fæti hjá möndulveldunum í stríð- inu, var honum sleppt úr haldi. Hann átti viðræður við Jinnah, leiðtoga múhameðstrúarmanna, til að fá hann ofanaf hugmyndinni um sérstakt ríki, ,,Pakistan“, en varð ekki ágengt. Eftir stríðið gerðust þau stórtíðindi í Bretlandi, að stjórn Chur- chills féll í þingkosningum, en Verkamanna- flokkurinn undir forustu Attlees tók við völdum. í stjórn hans voru margir ráðherrar vinveittir Indverjum, svosem Pethick Law- rence, Stafford Cripps, Aneurin Bevan og Ernest Bevin. Aukþess voru margir Bretar hlynntir því að hverfa frá stjórnarfari sem byggðist á fangelsunum og þvingunum. Sjálfir voru Indverjar svartsýnir, því það var ekki siður að sigurvegarar í stríði létu af hendi heimsveldi. í Indlandi mögnuðust líka viðsjár og flokkadrættir milli hindúa og múhameðstrúarmanna, sem leiddu til blóðugra átaka, fjöldamorða og allsherjar eyðileggingar. Þarvið bættust atvinnuleysi og hungursneyð. Attlee sendi stjórnarnefnd til Indlands í því skyni að safna upplýsing- um, og átti hún marga fundi við Gandhí, sem loks lét sannfærast um einlægni brezku stjórnarinnar. En landið var á hraðri leið útí algeran glundroða, sem nálgaðist borg- arastyrjöld. Hinn 16. ágúst 1946 átti sér stað hroðalegt blóðbað, þar sem óðir múha- meðstrúarmenn myrtu 5000 manns og særðu 15.000. Hindúar svöruðu í sömu mynt. Mú- hameðstrúarmenn létu næst til skarar skríða í Austur-Bengal, eyðilögðu með skipulegum hætti alla uppskeru hindúa, myrtu þá sem ekki komust undan, brenndu hús þeirra og musteri. Þetta var Gandhí þungt áfall, og hann afréð að halda á vettvang, þráttfyrir alvar- leg veikindi. Hann settist að á versta ófrið- arsvæðinu í Austur-Bengal, þar sem mú- hameðstrúarmenn voru í meirihluta og ein- ungis þrjár af 200 fjölskyldum hindúa voru enn um kyrrt. Þar tók hann sér bólfestu í húsi þvottakonu og reyndi að lægja ástríð- urnar bæði í héraðinu og landinu öllu. En árangurinn var takmarkaður. Tveim mán- uðum síðar endurtók sama saga sig í Bíhar, þar sem hindúar slátruðu múhameðstrúar- mönnum í stórum stíl, og enn hélt Gandhí á vettvang. Á þessu skeiði tók stjórn Attlees eina af hinum miklu ákvörðunum sögunnar. Hún afréð að hrista Indverja uppúr ábyrgðarleys- inu og tiltaka daginn þegar sjálfstæði lands- ins yrði lýst yfir. Churchill spáði illu einu, en Attlee sá að einungis einn maður kynni að geta ráðið framúr vandanum þessa síð- ustu mánuði. Sá var Mountbatten lávarður, og hann tók við embætti landstjórans af Wavel lávarði í marz 1947. Mountbatten tókst með persónutöfrum sínum, elju, lagni og kænsku að stýra framhjá hættulegustu skerjunum. Hann hitti Gandhí sex sinnum og Jinnah sex sinnum, og honum tókst að fá þá til sameiginlegs fundar þar sem þeir fordæmdu ofbeldi fylgj- enda sinna. Nehru hafði sætt sig við skipt- ingu Indlands sem óhjákvæmilegan hlut, en Gandhí leit á hana sem svik. Hann vildi þó ekki spilla samkomulaginu sem hafði náðst, en mælti ekki orð af vörum daginn sem skiptingin var ákveðin (hann „ræddi“ við Mountbatten með blýantsstubbi og notuðu umslagi). „Styðjið leiðtoga ykkar,“ sagði hann eftirvæntingarfullum mannfjöldanum. Hinn 15. ágúst 1947 urðu Indland og Pakistan sjálfstæð ríki. Æviverk Gandhís var fullnað, en hann var dapur og bar kvíð- boga fyrir framtíð þjóðarinnar. Tveimur dögum fyrir hinn mikla dag fluttist hann inní hús múhameðsks verkamanns í hindúa- hverfinu í Kalkútta og fékk talið leiðtoga múhameðstrúarmanna í borginni, Suhra- wardy, á að búa þar með sér í friði og ein- drægni. Þetta hreif um sinn, og fólk af báð- um trúflokkum dansaði jafnvel saman á göt- unum. En hálfum mánuði síðar bárust fregn- ir af hryðjuverkum í Panjab-fylki, og óður múgur hindúa réðst inn til Gandhís og mis- þyrmdi honum. Þá hóf hann nýja föstu, sem skyldi standa þartil friður kæmist á. Enn beit þetta gamla vopn, og Kalkúttabúar af báðum trúflokkum skömmuðust sín. En í Panjab var ástandið miklu ískyggi- legra. Fimm milljónir síkha og hindúa voru á flótta frá Vestur-Panjab til Austur-Panjabs, og álíka hópur múhameðstrúarmanna flúði í öfuga átt. Hungur, vonleysi, heimilisleysi og beiskar minningar um ástvinamissi voru hlutskipti þessa fólks, sem átti bágt með að hlýða þeim fyrirmælum Gandhís „að fyrirgefa og gleyma“. En hann lét ekki af að prédika þennan sama boðskap. Þegar hann kom til Delhí var borgin yfirfull af allslausum flóttamönnum af báðum trúflokk- um. Hann heimsótti flóttamannabúðir mú- hameðstrúarmanna og talaði til þeirra með- an á honum dundu ókvæðisorð og svívirð- ingar; seinna tók hann þátt í múhameðskri trúarhátíð. Margir hindúar voru honum líka andsnúnir, og þegar hann hóf föstu til að „hreinsa" sjálfan sig og binda enda á við- sjárnar í Delhí, safnaðist stór hópur hindúa fyrir utan gluggann hjá honum og söng: „Gandhí á að deyja“. Þetta átti að verða lengsta fasta hans, en það fór á annan veg. Ró komst á í Delhí, og hann rauf föstuna. Hinn 20. janúar 1948 var hann að ávarpa bænasamkomu hindúa, þegar ungur hindúi kastaði að honum sprengju, sem sprakk í námunda við hann. Hann meiddist ekki og bað lögregluna að taka ekki hart á þessum „afvegaleidda unglingi“. Hann afþakkaði lögregluvernd á bænasamkomunum. Tíu dögum síðar gekk hann einsog venjulega, studdur af tveimur frænkum sínum, útað bænapallinum þar sem nokkur hundruð að- dáenda hans biðu. Ungur maður ruddist gegnum þvöguna að pallinum, hneigði sig einsog hann væri að votta meistaranum virðingu sína, dró upp skammbyssu og skaut þremur skotum á stuttu færi. „Andinn mikli“ (mahatma) hafði kvatt jarðlífið. Enginn annar stjórnmálamaður 20. aldar hefur vakið aðra eins virðingu, ást og aðdá- un og Gandhí. í Indlandi er hann löngu orðinn helgisögn, og utan Indlands fara áhrif hans og álit sívaxandi. Þessi öld hefur alið marga góða byltingarfrömuði og mörg mikilmenni, en fáa sem voru að auki hrein- hjartaðir og einfaldir í beztu merkingu þess orðs. ♦ 28

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.