Samvinnan - 01.12.1969, Síða 30

Samvinnan - 01.12.1969, Síða 30
hömlu af því, sem mikill áhugi er fyrir að framkvæmt verði. Áætlanagerðin velur ekki aðeins verkefni, heldur tímasetur þau einnig og staðsetur. Síðastnefnda atriðið, hvar hlutirnir eru gerðir, skiptir oft engu minna máli en hvenær og jafnvel hvort þeir eru gerðir. Fólk, sem býr í nágrenni fram- kvæmda, hefur að jafnaði veru- legra beinna og óbeinna hags- muna að gæta af þeim, og nægir að minna á, hve fasteignir hækka í verði á gróskumiklum athafna- stöðum. Hagsmuna- og þar með stjórnmálaátök eiga sér því mjög oft stað í sambandi við staðsetningu atvinnufyrirtækja og stofnana. Ákvarðanir verða þess vegna gjarnan mun handa- hófskenndari en efni standa til að öðru leyti og eru oft teknar án heildaryfirsýnar yfir viðkom- andi atvinnuvegi og landshluta. Kjördæmabreytingin hefur án efa haft nokkur áhrif í þá átt að skapa mönnum yfirsýn yfir vandamál og skilyrði einstakra héraða, þannig að nú verður frekar en áður hlustað á hug- myndir, er miða að heildarupp- byggingu jafnhliða verkaskipt- ingu innan stórra svæða. En meg- inhluti nýrra atvinnuhátta og annars nútímalífs miðast við þétt- býli, eins og rætt hefur verið um hér að framan. Aðaláherzluna verður því að leggja á þá kjarna, sem þéttbýlið myndar. Og í þessu sambandi ber að hafa í huga, að vissulega er ekki nóg að sjá fólk- inu fyrir frystihúsum og síldar- verksmiðjum til að halda uppi mikilli atvinnu og háum tekjum; það verður einnig að hafa góð tækifæri til að eyða aflafénu í samræmi við kröfurnar um stöð- ugt bætt lífsskilyrði. Höfuðborgarsvæðið Þegar athuga skal, hvar skil- yrði kunna að vera bezt á land- inu til myndunar þróunarsvæða, er rétt að lýsa nokkru nánar ein- asta raunverulega þróunarsvæð- inu, sem myndazt hefur, en eðli- legt er að kenna það við höfuð- borgina, Reykjavík, svo mjög sem hún ber ægishjálm yfir aðr- ar byggðir landsins. Raunhæfust mynd af aðstöðu hennar fæst þó, ef talað er um Stór-Reykjavík, er nái yfir Reykjavík, Kópavog og Hafnarfjörð auk Seltjarnar- nes-, Garða- og Bessastaðahreppa, að viðbættum meginhluta af Mos- fellshreppi. Segja má, að allt þetta svæði sé efnahags- og fé- lagsleg heild og að verulegu leyti sambyggt, enda mun það á næstu áratugum mynda samfellda borg. Á þessu svæði búa nú yfir 100 þúsund manns eða rúmur helm- ingur þjóðarinnar. Um mikilvægi höfuðborgarinn- ar fyrir þróunarsvæðið á Suð- vesturlandi og landið í heild þarf ekki að fara mörgum orðum. Ekki verður því mótmælt, að þjóðinni var lífsnauðsyn að skapa ein- hverja borgarmenningu. Án henn- ar væru íslendingar enn þjóð fá- tækra bænda og sjómanna, eins og var um svo margar myrkar aldir. Vöxtur Reykjavíkur hefur gert íslenzku þjóðinni fært að koma á fót ýmiss konar starfsemi í atvinnu- og menningarmálum, sem annars hefði ekki verið hægt. Stækkun borgarinnar hefði því ekki átt að vera mikið áhyggju- efni. En með breyttum aðstæðum er eðlilegt, að afstaða manna breytist. Reykjavík og nágrenni er á góðri leið með að geta boðið upp á eins góð skilyrði til fjöl- breytts atvinnulífs, menningar og mennta eins og borg með 150 eða jafnvel 200 þús. íbúum. En það er einmitt sú stærð, sem Reykjavík gæti náð á næstu ára- tugum. Því mun ör stækkun Reykjavíkur í framtíðinni ekki hafa sömu þýðingu fyrir þjóð- félagið, eins og verið hefur, enda fara nú fólksfjöldans vegna að skapast skilyrði til myndunar annarrar borgar í landinu auk höfuðborgarinnar, og verður vik- ið að því hér á eftir. Þéttara vegakerfi gæti stækkað þau svæði, sem yrðu innan klukkutímamarkanna frá Reykja- vik, en ekki má búast við, að mikið verði af slíku, þar sem þá yrði fljótlega komið upp á heið- ar og í fjalllendi. Vel byggileg landsvæði við sunnanverðan Faxaflóa eru takmarkaðri en margur hyggur. Með því að gera ráð fyrir bíl- ferju yfir Hvalfjörð og brú yfir Borgarfjörð verða bæði Akranes og Borgarnes innan tveggja tíma aksturstakmarka frá Reykjavík, og sýnist því eðlilegt, að megin- hluti af allri byggð Borgarfjarð- arhéraðs verði talinn til þróunar- svæðis Suðvesturlands. Er þá eins og á Suðurlandi hugsað til mjólk- urframleiðslunnar og þeirrar þjónustu, sem Akranes og Borg- arnes geta veitt. Ennfremur mun það styrkja aðstöðu efri byggð- anna í Borgarfirði, að um þau liggur þjóðbrautin norður í land. Með þeim framförum í sam- göngumálum, sem líklegt er að verði á næstunni, má segja, að flutningar innan höfuðborgar- svæðisins verði greiðfærir allt árið, enda liggja vegir þess að mestu um láglendi. Helztu und- antekningarnar eru Mosfellsheiði og leiðin um Þrengsli, en þessir vegir eru hæstir í 260 og 270 m yfir sjávarmál, sem ekki er hátt borið saman við ýmsa aðra fjall- vegi landsins. Verkaskipting innan svæðisins verður skýr; þar er hinn stóri framleiðslu- og þjónustukjami, sem er höfuðborgin og nágrenni hennar, og síðan eru aðrar sér- hæfðari þéttbýlismiðstöðvar fyrir austan, vestan og norðan, en utar taka við víðlend landbúnaðar- héruð. Keflavík, Grindavík og Sandgerði byggja mest á sjávar- útvegi. Sama gerir Akranes, en þar er einnig um að ræða þjón- ustu við nærliggjandi héruð. Slíka þjónustu er þó enn frekar að finna í Borgarnesi. í Hvera- gerði er stunduð grænmetis- og blómarækt, og Selfoss er aðal- þjónustumiðstöðin á Suðurlands- undirlendi. En allir þessir staðir njóta mjög nálægðarinnar við Reykjavík. Og þegar hugsað er til aðstöðunnar í heild á þróunar- svæðinu og raunar á öllu land- inu, er það engin tilviljun, að Reykjavík skyldi verða höfuð- staður og fyrsta borg landsins. Akureyrarsvæðið Þegar mynda skal þróunar- svæði utan Suðvesturlands, hlýt- ur miðbik Norðurlands að koma fyrst í hug. Þar er mannfjöldinn mestur, atvinnulífið fjölbreytt- ast, stærstur bær utan Reykja- víkur og aðstæður að mörgu leyti svipaðar og í höfuðborginni, með minni bæi í nágrenninu og land- búnaðarhéruð á báðar hliðar. Bendir í rauninni flest til, að Ak- ureyri sé eini staðurinn á land- inu, þar sem hægt væri að mynda fullkomlega sjálfstæða borg á þessari öld aðra en Reykjavík, enda myndi borg í nágrenni höf- uðstaðarins verða mjög í skugga hans. Á hinn bóginn er Akureyri langt í burtu, og þar hefur þegar skapazt mikilvægur grundvöllur Mynd nr. 1: Dreifing ibúafjöldans á fslandi árið 186]. Þá voru landsmenn 66.987 talsins, en íbúar Reykja- víkur 1444. Meginhluti punktanna táknar 50 manns, en á þéttbýlum stöðum eru tvenns konar stœrri punktar, sem tákna 50—100 manns og 100—200 manns. 30
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.